Veiði dagsins 2013

Allt sem viðkemur hreindýrum
karlguðna
Posts: 471
Joined: 13 Feb 2013 13:46
Fullt nafn: guðmundur karl guðnason

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by karlguðna »

Sælir allir , þráður ársinns og þó lengra væri leitað, vona að ég eyðileggi ekki þennan þráð fyrir neinum en hvernig er það er 270 cal að vinna á sem cal í þessa veiði???
svo er bara eitt sem vantar sem er bara frekja af minni hálfu ,,,,!!! er einhver möguleiki að fá upplýsingar um hvaða sjónauka menn eru að nota ???
en enn og aftur takk fyrir þetta Veiðimeistari.
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by Gisminn »

Sæll Karl ég var með Sightron Slll 8-32x56 milrad
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
User avatar
Stebbi Sniper
Posts: 492
Joined: 09 Jun 2012 00:58
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by Stebbi Sniper »

Er einhver að leita að tarfi á svæði 7??? Þetta er útsýnið hjá mér út um stofugluggan! Kannski ekki stærsti tuddinn!

Færi 13 metrar! :lol: :lol: :lol:
Út um stofugluggan
Út um stofugluggan
20130830_181259.jpg (85.88 KiB) Viewed 5208 times
Tók líka eina í gegnum sjónaukann...
Í gegnum sjónaukann
Í gegnum sjónaukann
20130830_181431.jpg (83.21 KiB) Viewed 5208 times
Stefán Eggert Jónsson
Skotfélag Kópvogs
karlguðna
Posts: 471
Joined: 13 Feb 2013 13:46
Fullt nafn: guðmundur karl guðnason

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by karlguðna »

sælir snillingar, gismi ég sé aða þú valdir 6,5x55 frekar en 270 cal ef ég man rétt átt´u bæði. af hverju valdir þú þetta en ekki hitt ?? ég þarf nú að fá að kíkja í gegnum þennan sigþorn :? þú ert greynilega með verkfæri sem virkar
Elskun náungann.
BKV. Karl Guðna.
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by Gisminn »

Hehehe nei ég á bara 6,5x55 fyrir hreindýr en 270 lengst til vinstri er riffillinn sem ég var að finna hleðsluna í og tókst vel hann skaut sitt á 240 og grúbban úr honum er 14-17mm á 100.
En 6,5x55 með 120gr nosler BT með þessari hleðslu þá treysti ég honum 100% á 0-300 metra og vel samt eftir það og já þú þarft að koma og kíkja á græjuna og meira að segja var mildottið í honum notað sem fjarlægðarmælir á dýrin :-)
Og svona til gamans þá voru 3 rifflar á svæði eitt með hleðslur eftir mig ;) tveir í 270 og einn 6,5x55
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
User avatar
skepnan
Skytta
Posts: 256
Joined: 01 Apr 2012 12:35

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by skepnan »

Sæll Karl, apparatusið ofan á Howunni er Leupold VX3 4,5-14x50LR með Boone & Crockett krossi, sem að var hannaður fyrir .270 :geek: Ég var búinn að lesa mig bláann í framan á netinu áður en ég ákvað hvaða sjónauka og hvaða kross ég ætlaði að nota :oops: Fallstrikin á krossinum virka mjög vel með hleðslunni sem að dottið var niður á :D En eins og félagi minn í sálsýkinni hann Steini sagði þá treysti ég mínum 100% á 300m enda ef eitthvað klikkaði myndi ég kenna honum um vegna mistaka í hleðslu :lol: :lol: :lol:

Kveðja Keli
Þorkell D. Eiríksson
keli.skepnan@gmail.com
Fljótsdalur í Fljótshlíð
User avatar
sindrisig
Posts: 313
Joined: 09 Oct 2010 08:45
Location: Neskaupstaður

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by sindrisig »

Þetta er eins og Veiðimeistarinn segir: "það er svo krúttlegt að mynda dýrin saman". Þetta er alveg snilldar setning og kemur beint frá hjartanu eins og ávallt þegar eðal-menn koma sér beint að efninu.

Annars var þessi túr alger andstæða þess fyrra, veðrið eins og best verður og skyggni ágætt, upp á gamla mátann. Árangur var eftir því og svæði eitt stóð undir fornu frægðarnafni, þ.e. "aktu og taktu" þó svo að hlutir séu aldrei það einfalldir, nema þegar allt gengur upp.

Varðandi putta og hald um hlaup þá er ástæða fyrir þessu, ég vildi ekki sýna að það er ekkert framsigti á rifflinum!!

Siggi er meistari í uppstillingum, enda var ég þreyttari á því að pósa fyrir myndavélina hjá honum en að bisa við dýrið... En þetta er allt afstætt, eða ég svona helvíti lélega á mig kominn. Annars er þessi mynd lýsandi fyrir vesenið í kringum þetta myndavéladæmi hjá honum. Svei mér þá ég hélt að hann væri að tína ber en þarna var ekkert nema eyðimerkurgróður og engin ber.
Hinn mikli myndasmiður í leit að berjum?
Hinn mikli myndasmiður í leit að berjum?
IMG_2655.jpg (100 KiB) Viewed 5143 times
Í upphafi skal endinn skoða, þið hafið nú þegar séð hann og ég fer því afturábak í tíma og hendi inn einni mynd af hópnum séð í gegnum OCE Stella 10x50 (það var jú einhver að spyrja um nafn á glerjum).
Ágætis gler í Stellu, ca. 1933 módel
Ágætis gler í Stellu, ca. 1933 módel
IMG_2630b.jpg (41.26 KiB) Viewed 5143 times
Nú og svona til að hafa alvöru mynd af Eyðimerkurljóninu í veiðiskónum þá er þessi hér í ætt við Dakar rallið, enda er konungur jeppanna þar í reglulegum áreiðanleika prófunum, líkt og í þessari ferð. (smella á myndina til að sjá skóna!!)
Sandöldur með nýlegu sandflóði, Eyðimerkurljónið í öllu sínu veldi...
Sandöldur með nýlegu sandflóði, Eyðimerkurljónið í öllu sínu veldi...
IMG_2620g.jpg (38.01 KiB) Viewed 5143 times
Síðan svona til þess að klára veiðina þá var kíkt á heiðagæs og þar var ýmislegt sem kom upp á. Fyrsti fugl á gervigæsirnar var að öllum líkindum fálki, ég hélt fyrst að þetta væri önd að setjast við þær en sá að það gat ekki verið, enda var hljóðið eins og einhver væri að renna sér á vatninu - án þess að setjast, síðan voru smá læti og því næst flaug fuglinn á brott. Þetta var diskúterað niðri í Vaðbrekku og mér fannst fuglinn ekki nógu stór til að vera fálki. Kvöldið eftir sat fálki á steini nærri pollinum sem við vorum á kvöldið áður, þannig að það var á hreinu hver var að verki kvöldið áður. Ekki veit ég hve margar gæsir fálkinn náði en við erum fyllilega sáttir við tvö hreindýr, 8 gæsir og leiðsögumann í gulum skóm með óbilandi húmor.
Sindri Karl Sigurðsson
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by gylfisig »

Og ég sem hélt að Rommel væri dauður .
Gisminn... var ekki Sauer 25-06 þarna líka?
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by Gisminn »

Jú passar Gylfi hann feldi tarfinn mér fannst kúlan full þung var að spá í 85gr hehehhe :-)
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by gylfisig »

Já.. hún var alveg heil 100 grs. Og mig rámar eitthvað í það, að ég hafi hlaðið í hann.
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by Gisminn »

Passar og hún gerði sitt tarfurinn stóð ekki upp :-)
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
johann
Posts: 95
Joined: 18 Jul 2012 08:48

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by johann »

Stebbi, er þessi tarfur eitthvað skyldur honum Tiger Woods á golfvellinum á Hamri?
tigerwoods.jpg
tigerwoods.jpg (60.67 KiB) Viewed 5068 times
Mér krossbrá þegar ég sá hann, enda sjaldan sem maður sér stök hreindýr - eins gott að við vorum á eftir kúm.
-----
Jóhann Þórir Jóhannsson - SFK
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by Gisminn »

Hvað segja meistararnir! Er að reyna að læra að meta aldur er þetta ekki 2-3 vetra tarfur ?
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
User avatar
pgests
Posts: 17
Joined: 25 Aug 2012 07:55

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by pgests »

Gaman að sjá og heyra að veiðar ganga betur. Óneitanlega er þetta búið að vera köflótt veiðitímabil. Þessi spjallþráður er alveg frábær, gaman að fylgjast með. Ég rak augun í einhversstaðar að dýrin væru á leið aftur úteftir á sv.1. ekki veit ég alveg hvort það er gott ef þau ætla að halda sig í Miðfjarðaheiðinni, við Kverkána, Hágangana, Kistufell eða Mælifell. Mér fannt þetta nú ekki auðveldasta svæðið yfirferðar. En þau voru komin ansi norðarlega þegar ég var þarna. En mestu skipti að þetta var skemmtileg veiðiferð þó löng væri og óneitanlega kynntist maður svæði 1 betur. Ekki skemmir nú landslagið og náttúrufegurðin fyrir. Hlakka til næstu austurferðar - vonandi verður hennar ekki langt að bíða.
Pálmi Gestsson
User avatar
pgests
Posts: 17
Joined: 25 Aug 2012 07:55

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by pgests »

Já og ein spurning, ég var að reyna að setja inn prófílmynd hérna, en þessi síða virðist vera óvenjuvandlát á myndir. Mér gekk ekkert við það. Kannski tekur hún ekki hvern sem er. Kann einhver ráð við þessu? Er búinn eftir bestu samvisku að fara eftir leiðbeiningum síðunnar hvað þetta varðar en ekkert gengur.
Pálmi Gestsson
User avatar
gkristjansson
Skytta
Posts: 250
Joined: 02 May 2012 14:21
Location: Ungverjaland

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by gkristjansson »

Sæll Pálmi,

Þú er sjálfsagt þegar búinn að reyna þetta en framgangurinn er eftirfarandi:
- Fara í "stillingarnar mínar" í vinstra horninu á síðunni, undir "Forsíða"
- Velja "Prófíll" flipann
- Velja "Breyta smámynd"
- Smella á "Browse" til að finna myndina á tölvunni þinni og velja hana
- Smella á "Senda" til að uppfæra prófílinn

Það eru takmörk á stærð myndarinnar:

Hámarksstærðir; breidd: 100 punktar, hæð: 90 punktar, skráarstærð: 53kB.

Veit ekki hvort þetta hjálpar en sakar ekki að reyna.
Kveðja,

Guðfinnur Kristjánsson
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by gylfisig »

Það er gaman að segja frá því að þetta svæði sem verið er að tala um; Kverkárdrög Miðfjarðarheiði osfrv... Ég fór um þetta svæði fyrir 2 vikum síðan í gönguferð.
Síðastliðin 25 ár er ég búinn að stunda laxveiði, í Þistilfirði, og einna mest í Hafralónsá, og Kverká.
Búinn að vaða 100 sinnum yfir Kverkána þar sem hún er laxgeng niði í Þistilfirði. Fyrir 2 vikum fórum við konan mín svo í gönguferð þarna inn eftir, og rákumst m.a. á slóðir eftir hreindýr við Kverkána, þar sem hún rennur þarna syðst, um 30 km. í loftlínu frá því svæði niður frá, þar sem ég veiddi lax. Mér fannst það svolitið fyndið, að enn skyldi ég vera að vaða Kverkána nokkrum tugum km. sunnar, og hugsanlega hreindýr í grenndinni. :D
Við fórum til að skoða sérstakan stein, sem stendur þarna aleinn, stakur uppi á mel. Þessi steinn heitir Surtur, og stendur við hana Kverká mína :D
Þar rétt hjá, voru slóðir eftir hreindýr.
Attachments
surtur 1.jpg
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by gylfisig »

,
Attachments
10082013547.jpg
10082013547.jpg (108.01 KiB) Viewed 5020 times
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by Veiðimeistarinn »

Í gær veiddi Böðvar Örn Sigurjónsson kú hjá mér á svæði 1. Við fundum stóra hópinn austan við Haug skammt innan við Austari Símakofann.
Hann fékk 40 kg mylka kú, veiðiriffillinn var CZ550 cal. 308 kúlan 150 gr. Soft point og færið 56 metrar. (segðu svo að ég fari aldrei eftir því sem þú segir Gylfi)
Jóhann tarfurinn á myndinni er veturgamall eða tvævetur, sennilega heldur tvævetur.
Attachments
Böðvar örn við kúna ásamt Helga bróður sínum.
Böðvar örn við kúna ásamt Helga bróður sínum.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

Re: Veiði dagsins 2013

Unread post by gylfisig »

Ég held að færið hafi verið 556 m. en ekki 56 fyrst kúlan var svona hrikalega þung ! :D
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
Post Reply