Allt tengt endurhleðslu. Kúlur, hylki, púður og ýmis tæki og tól
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
Icefox wrote:Ég hef ekki hraðamæli svo ég veit ekki mun fyrir og eftir og þar sem ég skipti um kúlur á sama tíma er nákvæmnin ekki marktæk!
Er að nota Berger 55gr flatbase match og 36gr af N-140 í norma hilkjum og cci 200 hvellhettur
Ég er að giska á að hraðinn sé um 3600-3650fps og enginn þrístimerki en er að lenda í vandræðum með að hvellhettuvasinn er orðinn slappur eftir 3 skot úr hilkinu og er ekki sáttur við þá endingu.
Riffilinn er að grúppa ágætlega með þessu en fæ stundum eitt skot töluvert úr grúppu en held að það sé meira að gera með hversu lélegt plastskeptið er á honum en hleðsluna.
Ef hvellhetturnar eru orðnar lausar í eftir circa 3 skot þá er það merki um yfirþrýsting eða á mörkum þess. Norma hylki eiga að vera mjög góð og 3 skipti er ekki ásættanlegt. Einnig geta óútskýrðir flyerar verið merki þess að hleðslan sé á mörkunum.
En... Vertu velkominn í Molybdenumdisulfide hópinn.
Kveðja Norz.
Með sjúklegri vinsemd, grunsamlegri virðingu og smá öfund, bara smá.
Jú yfirþrístingur er möguleiki en sé ekki önnur merki um þrísting og er 0,6gr undir max skv bókinni.
Norma hylki eru fínustu hylki en hef oft lesið um að þau séu mjög mjúk og ég er farinn að halda að það sé stór hluti af vandamálinu.
Er að bíða eftir lapua hylkjum en ef ekki þá fæ ég mér remington hylki frekar en að kaupa norma aftur, bara of dýrt fyrir ekki betri endingu.