Önnur O.A.L. spurning.
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.

Ok þetta er kannski pínu ruglingslegt en ég ætla að reyna að gera mig sem skiljanlegastan.
Ég er semsagt með 6,5x47L.
Upphaflega lét ég hlað.is hlaða fyrir mig, hlóðu 100/123graina scenar fyrir mig og heildarlengdin var 69,5mm.
Þetta þrýsti kúlunni fram í rillur svo að ég gat ekki dregið skotið úr án þess að kúlan myndi sitja eftir í hlaupinu.
Svo fór ég að hlaða sjálfur og hef hlaðið að mestu leiti aðrar kúlur en fór svo að hlaða 123scenar, ég ákveð að prófa að mæla C.O.L. fyrir þá kúlu og fæ þá út 68mm.
Þegar ég var að láta hlaða fyrir mig, var þá kúlusetningin ekki allt of framarlega? ætti heildarlengdin ekki að vera ca 68,2 eða eitthvað smávegis yfir 68 ef ég vildi setja hana fram í rillur? eða er óhætt að setja hana svona rosalega framalega?
Ástæðan fyrir að ég spyr er að 69,5 heildarlengd virkaði ágætlega en ég hefði haldið að það væri hreinlega hættulegt að hafa hana svona mikið í rillur... eða er það kannski allt í lagi og ég að rugla?

Re: Önnur O.A.L. spurning.
Það er afar furðulegt að Hlaðmenn skuli hafa sett kúluna fram í rillur. Trúi því varla að þeir hafi gert það, nema samkv beiðni frá þér. Það á alls ekki að setja kúlur í rillur, nema þá af manni sem er að hlaða sjálfur í eigin riffil, og ætlar að skjóta í mark. Maður notar ekki svoleiðis skotfæri í veiði. Þeir sem hlóðu, hljóta að hafa haft riffilinn til að mæla þetta.
En þú átt að gera þetta sjálfur, á einfaldan hátt.
Taktu hylki sem þú ert búinn að þrengja, en hafðu ekki primer í þv, og ekki púður.
Setur sams konar kúlu og þú ætlar að nota, í TÓMT hylkið, og passar að setja hana frekar grunnt í, í byrjun
Síðan færðu þér fína stálull, og pússar kúluna smávegis, og setur síðan hylkið í riffilinn.
Finnur strax þegar þú ætlar að loka að það er stíft, vegna þess að kúlan er mikið fram í rillum.
Þú setur kúluna aðeins dýpra... bara örlitla færslu í einu. Pússar kúluna með stálullinni, og átt að sjá skýr för eftir rillurnar á pússaðri kúlunni.
Gerðu þetta, með mjög lítilli færslu á kúlunni í hvert skipti.
Þegar kemur að því að rilluförin sjást ekki á kúlunni, þá ertu orðinn nokkuð öruggur um það að hún snerti ekki.

Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
Re: Önnur O.A.L. spurning.
69,5 er uppgefin max C.O.L í Vihtavuori bókini þannig að það er ekkert óeðlilegt að Hlaðmenn hafi sett þetta í þá lengd . Er sjálfur að hlaða sömu kúlu í 6,5x47 með C.O.L 70,15 sem er ekki fram í rillum, kannski er þrótið bara styttra hjá þér.
Kv. Pálmi S. Skúlason
When discussing caliber, Dead is dead and it’s not worth arguing about.

- Veiðimeistarinn
- Posts: 1917
- Joined: 17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
- Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Önnur O.A.L. spurning.
Hlað....... 

Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
-
- Posts: 53
- Joined: 06 May 2011 13:31
Re: Önnur O.A.L. spurning.
Sælir,
Keyptir þú hann klárann eða léstu smiða fyrir þig ? og þá hvaða reamer var notaður ?
Er sjálfur að nota 70 mm og er ekki í rillum.....

Sigurður Kári Jónsson
Re: Önnur O.A.L. spurning.
veit ekki hvaða reamer var notaður, en Arnfinnur setti þetta saman fyrir mig.
Rem700 lás, krieger 8.5twist
Rem700 lás, krieger 8.5twist
- Stebbi Sniper
- Posts: 492
- Joined: 09 Jun 2012 00:58
- Location: Reykjavík
- Contact:
Re: Önnur O.A.L. spurning.
Ég hleð minn í 69.95 með 100 grs Scenar... ég myndi kíkja með hann í skúrinn til Finna og biðja hann að hjálpa þér að finna út úr þessu.
68 mm hljómar ekki rétt og eins og Pálmi segir þá gefur Lapua bókin upp 69,5 mm fyrir 100, 108, 120L, 123, 136L og að ég held 139 grs Scenar kúlur.
Minn riffill er að vísu ekki rýmaður með sama reemer og þeirra, en er væntanlega með sama throat!
70 mm og 39,5 grs af N-140 (ATH í hámarki og út við rílur VARLEGA) er hleðsla sem gatneglir hjá mörgum, en 38 grs kom að vísu enn betur út hjá mér!

Stefán Eggert Jónsson
Skotfélag Kópvogs
Skotfélag Kópvogs
Re: Önnur O.A.L. spurning.
Ég tel það óþarfa að fara með riffilinn til byssusmiðs. Þeir sem eru að hlaða sjálfir, þurfa að kunna skil á því hvort kúlan er í rillum, eður ei.
Það er m.a. gert á þann hátt sem ég útskýrði.
Mjög einfalt, og á ekki að vera tiltökumál.
Hvað varðar hleðslur í 6,5x47 Lap. þá nota ég eingöngu RE -15 púður og 120-123 grs kúlur.
Hleð 39,0 grs og nota ávallt bench rest primera.
Eitt vil ég benda sérstaklega á; það, að vera með custom smíðaðan riffil, og fara síðan með skotfæri úr honum í endurhleðslu, getur verið varasamt, nema sá sem hleður fái riffilinn einnig, svo hægt sé að mæla hvaða kúlusetning sé örugg. Viðkomandi fer í bók, og athugar þar, hvað sé standard setning, hafi hann ekki riffilinn. Það er alls ekki víst að það gildi þegar verið er með custom smíðaðan riffil.

Ég mæli þetta sjálfur, að vísu ekki með þeirri leið sem þú lýsir gylfi en ég get ekki séð að ég sé að mæla rangt.
1. ég set boltann í og loka rifflinum.
2. sting hreinsistöng inn í riffilinn (með lokuðum enda) og set klemmu á hana alveg upp við hlaupenda og dreg hana svo hálfa leið til baka.
3. tek boltann úr, set lausa kúlu í lásinn og ýti henni fram með lítilli stöng.
4. ýti á hreinsistöngina aftur þartil hún stoppar á kúlunni, set aðra klemmu á stöngina og mæli svo heildarlengdina.
5. geri þetta allt aftur með nýrri kúlu í hvert skipti og tek svo meðaltalið af ca 5 skiptum.
En upphafleg spurning min var samt hvort það væri ekki hættulegt að setja svona langt fram í rillur ef heildarlengd er 68. getur ekki hreinlega verið að ef hún er svona mikið of framarlega að ég sé hreinlega að ýta henni eitthvað ofan i hylkið þegar ég loka boltanum?
Annars er besta hleðslan sem ég hef hlaðið úr þessum riffli 123 Nosler CC, 35,8g N140, BR-4 og þá mældi ég einmitt heildarlengd 68 líka og færði hana í 67,8 O.A.L. til að jumpa henni og sú hleðsla svínvirkar, grúppar undir 2tommum á 500m svo ég á bátt með að trúa að það sé rangt mælt hjá mér.

Í aðalatriðum.. jú, það er varasamt að hafa kúlu alveg í rillum, sérstaklega ef unnið er með max hleðslur.
Einnig, eins og þú bentir á, að kúlan getur setið föst í hlaupinu, ætlir þú að hætta við að skjóta.
Ég átti alls ekki við að þú værir að mæla eitthvað vitlaust. Einungis það, að varasamt væri að hafa kúluna frammi í rillum, og/eða vera ekki klár á því hveð skeður, eða getur skeð, þegar þannig er hlaðið.
Ég hef gefið upp hleðslur hér sem ég veit að eru öruggar í aðra riffla, en kúlusetningu gef ég yfirleitt ekki upp, þar sem throat er misjafnt milli riffla, nema sami reamer hafi verið notaður. Þar af leiðandi hefur það ekkert upp á sig, að gefa hana upp, og getur að auki verið hættulegt.