Leiðist hálfpartinn hérna úti á sjó og datt í hug að leita í viskubrunn meðlima spjallborðsins varðandi endurhleðslu.
Nú er ég ekki búinn að vera að hlaða lengi og á MIKIÐ eftir ólært, en þetta kemur smátt og smátt eftir því sem maður stendur lengur í þessu.
Mér datt í hug að athuga hvort að þið eigið ekki einhver "trikk" sem geta aðrir gætu nýtt sér. Þegar ég tala um "trikk" þá á ég við einhverjar aðferðir sem ekki eru kenndar á grunnnámskeiðum og geta flýtt fyrir endurhleðsluferlinu, gert það betra og útkoman verði betri og nákvæmari skot. Einnig geta þetta verið einhver tæki - ódýr og dýr - sem hafa valdi því að þið hafið hugsað "hvernig fór ég að án þessa áður".
Endilega láta okkur njóta reynslu ykkar.
Endurhleðslu "trikk"
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
Re: Endurhleðslu "trikk"
Þegar ég byrjaði að nota grafít keypt í veiðihorninu til að dýfa hálsinum á hylkjunum ofaní áður en ég nekkaði var bylting fyrir mig. Bæði fljótlegra,hreinlegra og síðast en ekki síst þá hefur kúla ekki gróið í hálsinum á hylki eftir það og þú ert altaf öruggur með að mótstaðan eða viðnámið sé það sama.
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
Þorsteinn Hafþórsson
Re: Endurhleðslu "trikk"
Akkúrat svona ráð sem ég var að leita eftir. Hef lengi ætlað að prufa grafít. Eignaðirst það bara fyrst um daginn og náði ekki að prufa það.
Þegar ég byrjaði að hlaða var ég með hefðbundið case lube en kunni ekki við það. Fékk mér fljótlega Imperial Sizing Die Wax og það er mikið betra að mínu mati.
Þegar ég byrjaði að hlaða var ég með hefðbundið case lube en kunni ekki við það. Fékk mér fljótlega Imperial Sizing Die Wax og það er mikið betra að mínu mati.