Umhverfisverðlaun.

Allt um Skeet, Trap, Sporting og aðrar haglabyssurgreinar

Moderator:Jón Kristinsson

User avatar
Jón Pálmason
Póstar í umræðu: 3
Póstar:177
Skráður:16 Ágú 2010 21:54
Fullt nafn:Jón Pálmason
Staðsetning:Sauðárkróki
Umhverfisverðlaun.

Ólesinn póstur af Jón Pálmason » 29 Sep 2013 10:13

Sælir/ar.

Skotfélagið Ósmnn hlaut nýlega umhverfisverðlaun sem Sveitarfélagið Skagafjörður og Soroptimistaklúbbur Skagafjarðar veita fyrir snyrtilegt umhverfi.
Okkur þótti að sjálfsögðu vænt um þessa viðurkenningu og teljum hana ekki aðeins okkur til framdráttar, heldur einnig öðrum skotfélögum.
Það að hafa snyrtilegt í kringum okkar aðstöðusvæði skapar jákvæða ímynd og gott umtal.
Eitthvað sem okkur veitir ekki af í dag.
Sjá nánar á heimasíðu Ósmanns. http://www.osmann.is
Jón Pálmason
Með kveðju úr Skagafirði

User avatar
Gisminn
Póstar í umræðu: 1
Póstar:1349
Skráður:29 Ágú 2011 21:47
Staðsetning:Blönduós

Re: Umhverfisverðlaun.

Ólesinn póstur af Gisminn » 29 Sep 2013 10:23

Til hamingju með þetta
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson

User avatar
257wby
Póstar í umræðu: 1
Póstar:193
Skráður:21 Sep 2011 07:39
Fullt nafn:Guðmann Jónasson
Staðsetning:Blönduós

Re: Umhverfisverðlaun.

Ólesinn póstur af 257wby » 29 Sep 2013 18:16

Félagar mínir hjá Ósmann eru virkilega vel að þessarri viðurkenningu komnir! Öll umgengni til mikillar fyrirmyndar hjá þeim!

kv.
Guðmann
Kv.
Guðmann Jónasson
kronos@simnet.is

Helstu verkfæri
Antonio Zoli Kronos 12 Ga u/y
Beretta A-300 12Ga semi auto
Otterup M70 breyttur á flesta kanta.
Mossberg 352 semi auto 22lr.

User avatar
Stebbi Sniper
Póstar í umræðu: 1
Póstar:492
Skráður:09 Jun 2012 00:58
Staðsetning:Reykjavík
Hafa samband:

Re: Umhverfisverðlaun.

Ólesinn póstur af Stebbi Sniper » 30 Sep 2013 15:37

Glæsilegt Ósmenn, til hamingju með þetta!

Alltaf gaman að heyra af því þegar skotfélög standa sig vel og Ósmenn eru til fyrirmyndar hvað rekstur skotsvæðis varðar. Orðsporið sem fer af ykkur er allavega gott.

Á reyndar enn eftir að heimsækja ykkur, en það verður örugglega í náinni framtíð.
Stefán Eggert Jónsson
Skotfélag Kópvogs

User avatar
Jón Pálmason
Póstar í umræðu: 3
Póstar:177
Skráður:16 Ágú 2010 21:54
Fullt nafn:Jón Pálmason
Staðsetning:Sauðárkróki

Re: Umhverfisverðlaun.

Ólesinn póstur af Jón Pálmason » 30 Sep 2013 17:13

Sælir.
Takk fyrir góð orð.
Og Stebbi, þú ert velkominn hvenær sem er.
Jón Pálmason
Með kveðju úr Skagafirði

User avatar
Morri
Póstar í umræðu: 1
Póstar:116
Skráður:03 Oct 2012 22:07
Staðsetning:Efri-Hólum,Núpasveit við Öxarfjörð. Grenjavinnslusvæði: Austursvæði Melrakkasléttu

Re: Umhverfisverðlaun.

Ólesinn póstur af Morri » 30 Sep 2013 18:54

Ég ætlaði mér að renna að þessu títt umrædda skotsvæði þegar ég var á rúntinum þarna framhjá í byrjun ágúst.
Þá reyndist svæðið ekki opið.

Hefði verið gaman að sjá...

Til lukku með þetta

Ómar
Ómar Gunnarsson
morri(at)kopasker.is

Hvert skott er sigur

User avatar
Jón Pálmason
Póstar í umræðu: 3
Póstar:177
Skráður:16 Ágú 2010 21:54
Fullt nafn:Jón Pálmason
Staðsetning:Sauðárkróki

Re: Umhverfisverðlaun.

Ólesinn póstur af Jón Pálmason » 30 Sep 2013 18:58

Sæll Ómar.
Hefðir bara átt að hringja. Ekkert mál að opna fyrir þig.
Ekki renna aftur framhjá án þess að reyna það.
Jón Pálmason
Með kveðju úr Skagafirði

Svara