Veiði dagsins 2012
Re: Veiði dagsins
Glæsilegir, dýrið og veiðimennirnir (tala ekki um ljósmyndarann). Ég verð bara að photoshop-a mig inn á þessa mynd 

kv. Ingvar J. Guðmundsson
- Veiðimeistarinn
- Posts: 1917
- Joined: 17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
- Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Veiði dagsins
Jæja, það er loksins frídagur hjá mér, kærkomin kvíld ég er búinn að vera á veiðum alla daga frá 17. águst og sumir dagarnir orðið frekar langir í veltingi í bíl á veiðilausum dögum.
Veiðidagarir hafa líka sumir verið langir, dýrin oft ekki að finnast fyrr en undir lok dags vegna lélegs skyggnis og þoku.
Var með þrjá menn í kýr í fyrradag, náði tveimur þann dag og þeirri síðustu undir myrkur í gærkveldi.
Var búinn að vera á ferðinni allan daginn báða þessa daga í éljagangi og allt upp í hávaða kóf vindur af norðvestri allt upp í um 20 metrar ásekúndu, það blés af svona inn á milli svo sýni varð sæmilegt þó grátt væri í rót.
Fór upp frá Klausturseli í fyrradag austur á Miðheiðarháls upp í Bræður og út allan AA veginn. Sáum fyrstu dýrin austur af Stóröxlinni við Húsána, þetta voru fá dýr nokkrar beljur og ungtarfar um 20 dýr, fór með alla þrá til að skjóta en við komum aðeins einu skoti á þau og þá voru þau rokin en höfðum þó fyrstu kúna þarna, dýrin fóru inn fyrir austan Stóröxlina síðan niður á Vestari Grjótháls og þaðan niður í Hnefludrög og hurfu okkur þar í hríðina.
Síðan frétti ég af dýrum við Stóra Sandvatnið fyrir innan Grasöxlina og ákvað að keyra áfram út AA veginn og kíkja á þau.
Mætti þeim við Skálafellið 100 til 150 dýra hópur þá voru þau búin að fara um 10 kílómetra á smátíma og stefndu hraðbyri vestur, þar náðist að koma einu skoti á þau dýr og ná einni kú síðan rauk hópurinn í blind spreng norður fyrir utan Grjóthálsinn og síðasti veiðmaðurinn á eftir en hafði ekki erindi sem erfiði og dýrin hurfu í éljagang og náttmyrkur niður í Husárdrög.
Meðan beðið var eftir að veiðimannahópurinn sameinaðist á Grjóthálsinum til að halda heim efir AA veginum sömu leið til baka var grenjandi kóf og allt orðið hvítt.
Heim var komið upp úr tíu þá var flegið og sest að kvölmatarsnæðingi upp úr klukkan ellefu.
Í gærmorgun var aftur haldið af stað enn upp frá Klausturseli á Miðheiðarháls, út allan AA veg og alveg niður í Teigasel, þá fréttist af dýrunum frá Skálafellinu í Hnefludrögum og þau sem voru við Stóröxlina voru komin niður að Valavatni utan í Merkishálsinum.
Var þá ekið sem leið lá frá Teigaseli og upp frá Merki hittum á dýrin, stærri hópinn austan við Merkishálsinn við Stóralækinn misstum þau fram hjá okkur og eltum þau inn að Tregagilsá (Treglu) þar sem síðasta kýrin náðist undir myrkur í gær.
Við vorum fjórir leiðsögumenn með sjö veiðimenn að snúast kringum þessi dýr eftir að þau fundust og náðum aðeins fjórum dýrum, þar af tveimur undir harðamyrkur, þegar þau voru aðeins farin að róast eins og jafnan undir ljósaskiptin.
Hóparnir sameinuðust síðan undir kvöldið og fóru upp með Treglu upp undir Svartöldu þar sem skilið var við hann í myrkri.
Ég frétti síðan af dýrunum í morgun við slóðina upp frá Klausturseli á Fossáröldunni en það náist ekki að veiða úr þeim fyrr en inni við Stóralæk og þau stefndu yfir Eyvindarána vestur á Klausturranan inn norðan við Eyvindarfjöll.
Nú eru dýrin búin að renna síðan upp úr hádeginu í fyrradag á tveimur sólarhringum nær 70 kílómetra, þó ekki hafi verið mikið reynt að veiða úr þeim á þessum tíma, það er veðrið sem hefur þessi áhrif á dýrin í þetta skiptið.
Norðvestan 15-20 metrar á sekúndu með slyddu í gær og fyrradag og síða stífum suðvestan vindi í dag, þó bjart sé.

- Attachments
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Re: Veiði dagsins
Hvaða slóð er það sem þú kallar AA veg ?
Aðalsteinn Sigurðarson
Vaðbrekku
894-1070
Vaðbrekku
894-1070
- Veiðimeistarinn
- Posts: 1917
- Joined: 17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
- Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Veiði dagsins
Það er slóðin út Miðheiðina frá Bræðrum út um Stóröxl, Grjótháls, Skálafell og Miðheiðarháls niður í Teigasel og Fjallssel sem Agnar í Fjallseli lagaði á beltagröfunni í fyrrahaust að hugmynd Aðalsteins í Kausturseli, það þótti rétt að kenna hana við þá með upphafsstöfum þeirra beggja 

Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
- Veiðimeistarinn
- Posts: 1917
- Joined: 17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
- Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Veiði dagsins
Þórarinn Sveinsson og Einar Magnús Ólafsson veiddu vænar hreinkýr við Haugsvæðið á aðgöngum 2 á Fljótsdalsheiðinni.
Kýrin hans Þórarins vigtaði 42 kíló, veiðiriffillinn hans er Tikka T3 6,5x55 hann notaði 130 gr. Accubond kúlu hlaðna 47 gr. N-160.
Kýrin hans Einars vóg 38 kíló hans veiðriffill er af gerðinni Remington 700 cal. 3006 með 150 gr. Sierra gameking kúlu með 54 gr. hleðslu af N150 púðri.
Óli Grétar bróðir Þórarins veiddi 80 kílóa tarf á Brúardölum daginn eftir.
Kýrin hans Þórarins vigtaði 42 kíló, veiðiriffillinn hans er Tikka T3 6,5x55 hann notaði 130 gr. Accubond kúlu hlaðna 47 gr. N-160.
Kýrin hans Einars vóg 38 kíló hans veiðriffill er af gerðinni Remington 700 cal. 3006 með 150 gr. Sierra gameking kúlu með 54 gr. hleðslu af N150 púðri.
Óli Grétar bróðir Þórarins veiddi 80 kílóa tarf á Brúardölum daginn eftir.
- Attachments
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
- Veiðimeistarinn
- Posts: 1917
- Joined: 17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
- Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Veiði dagsins
Ingólfur Jóhannesson veiddi 80 kílóa tarf yst á Álftadalsfjalli á Brúardölum.
Veiðriffill Ingólfs er Sako 75 cal. 6,5x55.
Hann notaði 100 gr. Ballistic tip kúlu, hlaðna með 40,7 gr. af N-140 sem gerir um 3000 fet á sekúndu samkv. töflu.
Veiðriffill Ingólfs er Sako 75 cal. 6,5x55.
Hann notaði 100 gr. Ballistic tip kúlu, hlaðna með 40,7 gr. af N-140 sem gerir um 3000 fet á sekúndu samkv. töflu.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
- Veiðimeistarinn
- Posts: 1917
- Joined: 17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
- Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Veiði dagsins
Veiðifélagarnir Jóhann Már Þórisson og Manuel Arjona með væna tarfa og hornprúða sem þeir veiddu sunnan í há Álftadalsfjalli við Báruvatn. Tarfarnir vógu 95 og 98 kíló.
Jóhann með Sako 75 cal. 270 með 130 gr. Sierra gameking kúlu færið 207 metrar.
Manual er einnig með Sako 75 og notaði 100 gr. Ballistic tip á 180 metrum.
Veiðfélagi þeirra, Hallgrímur Hallsson smokraði sér inn á myndina svo tarfarnir sýndust stærri
Jóhann með Sako 75 cal. 270 með 130 gr. Sierra gameking kúlu færið 207 metrar.
Manual er einnig með Sako 75 og notaði 100 gr. Ballistic tip á 180 metrum.
Veiðfélagi þeirra, Hallgrímur Hallsson smokraði sér inn á myndina svo tarfarnir sýndust stærri

Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
- Veiðimeistarinn
- Posts: 1917
- Joined: 17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
- Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Veiði dagsins
Þórir Jónsson veiddi sitt fyrsta hreindýr norðan við Þrælaháls út undir Sykurdragi, veiðriffillinn var Sako 75 cal. 270 og kúlan 130 gr. Gameking.
Færið var 124 metrar, kýrin var mylk og vóg 43 kíló.
Færið var 124 metrar, kýrin var mylk og vóg 43 kíló.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
- Veiðimeistarinn
- Posts: 1917
- Joined: 17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
- Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Veiði dagsins
Hallur Þór Hallgrímsson veiddi sitt fyrsta hreindýr útaf Þrælaöldu, veiðiriffillinn var Sauer 202 cal. 2506 kúlan 100 gr. HP og hleðslan 51,4 af N-160 á kring um 3100 fetum á sek. samkv. töflu.
Kýrin var tveggja vetra mylk vóg 37 kíló, gott matdýr.
Færið var 124 metrar og kýrin var skotin einum hvelli með kú Þóris hér að ofan, báðar skotnar í háls.
Kýrin var tveggja vetra mylk vóg 37 kíló, gott matdýr.
Færið var 124 metrar og kýrin var skotin einum hvelli með kú Þóris hér að ofan, báðar skotnar í háls.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
- Veiðimeistarinn
- Posts: 1917
- Joined: 17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
- Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Veiði dagsins
Jónas Bergsteinsson veiddi 95 kílóa tarf í Álftadalsdrögum á Vesturdölum Brúardala.
Veiðriffillinn var Sako 75 cal. 6,5x55 með 120 gr. Nosler Ballistic tip kúlu.
Með honum á myndinn er frændi hans og veiðifélagi Hallgrímur Hallsson og veiðirifflarnir framan við tarfinn eru taldir framanfrá, Sako 75 cal. 6,5x55, Sauer 202 cal. 2506 og Mauser 98 cal. 6,5-284.
Veiðriffillinn var Sako 75 cal. 6,5x55 með 120 gr. Nosler Ballistic tip kúlu.
Með honum á myndinn er frændi hans og veiðifélagi Hallgrímur Hallsson og veiðirifflarnir framan við tarfinn eru taldir framanfrá, Sako 75 cal. 6,5x55, Sauer 202 cal. 2506 og Mauser 98 cal. 6,5-284.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
- Veiðimeistarinn
- Posts: 1917
- Joined: 17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
- Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Veiði dagsins
Hjörtur Sveinn Grétarsson veiddi vænan tarf í Grjótöldu skammt utan Vatnshæðamælis á Fljótsdalsheiði, tarfurinn vóg 101 kíló og færið var 99 metrar.
Veiðiriffill Hjartar er Sako 75 cal. 243 og hann notaði 100 gr. Orix kúlu úr verksmiðjuhlöðnu Norma skoti.
Veiðiriffill Hjartar er Sako 75 cal. 243 og hann notaði 100 gr. Orix kúlu úr verksmiðjuhlöðnu Norma skoti.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Re: Veiði dagsins
Strákarnir mínir leika sér gjarnan í veiðileikjum með Legó. Fannst þessi kall glettilega líkur einum á spjallinu. Þetta er náttúrulega vel þekktur veiðimaður en ég vissi ekki að búið væri að smíða Legókall honum til heiðurs 

Elskið friðinn og strjúkið kviðinn
Þórir Kristinsson
Þórir Kristinsson
- maggragg
- Skytta
- Posts: 1287
- Joined: 02 Jul 2010 07:59
- Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
- Location: Vík
- Contact:
Re: Veiði dagsins
Hehe, LEGO sækjir viðföngin víða, gætu hafa séð myndir hér á spjallinu 

Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546
"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Vík
868 0546
"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Re: Veiði dagsins
Hahahahahaha
eða
Le hah, Le hah, Le hah ef maður hlær á frönsku
En það er sérstaklega þetta óhemju skelfda "hreindýr" á myndinni sem að vekur kátínu
Hér eftir á maður eftir að glotta púkalega þegar Lego ber á góma eða er með auglýsingu
Með
kveðjum Keli

Le hah, Le hah, Le hah ef maður hlær á frönsku

En það er sérstaklega þetta óhemju skelfda "hreindýr" á myndinni sem að vekur kátínu

Hér eftir á maður eftir að glotta púkalega þegar Lego ber á góma eða er með auglýsingu

Með

- Veiðimeistarinn
- Posts: 1917
- Joined: 17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
- Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Veiði dagsins
Steinarr Magnússon veiddi 37 kílóa kú við Hölkná austan Kálfafells. Veiðiriffill Steinarrs var Tikka T3 300 WSM. Kúlan 150 gr. Sierra Gameking og hleðslan 67 gr. af Norma 204 sem gefur hraða vel yfir 3000 fet á sekúndu. Færið var 120 metrar og kýrin skotin í framanverðan bóginn.
Steinarr bar hana síðan 1,5 til 2 km. að bílnum.
Steinarr bar hana síðan 1,5 til 2 km. að bílnum.
- Attachments
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
- Veiðimeistarinn
- Posts: 1917
- Joined: 17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
- Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Veiði dagsins
Reynir S. Jóhannesson veiddi vænan hreintarf sem vóg 100 kíló og er reyndar hans fyrsta hreindýr við Langahnjúk á Vesturöræfum.
Veiðriffill Reynis er Savage model 16 cal. 243 win. Kúlan 100 gr. úr verksmiðjuhlöðnu Sako skoti með Gamehead kúlu og færið var 80 metrar, lungnaskot.
Veiðriffill Reynis er Savage model 16 cal. 243 win. Kúlan 100 gr. úr verksmiðjuhlöðnu Sako skoti með Gamehead kúlu og færið var 80 metrar, lungnaskot.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
- Veiðimeistarinn
- Posts: 1917
- Joined: 17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
- Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Veiði dagsins
Friðþjófur Adolf Ólason ,,Dolli" veiddi væna kú í Sauðafelli á Fljótsdalshéraði við ,,Flugvöllinn".
Veiðriffill hans var Sako 75 Hunter, kúlan 120 gr. Sierra gameking, færið 160 metrar, skotið lungnaskot í aftasta lagi en 20 til 30 metra vindur á sekúndu stóð þvert á skotstefnuna sem tók kúluna 20 til 30 sentimetra af leið.
Veiðriffill hans var Sako 75 Hunter, kúlan 120 gr. Sierra gameking, færið 160 metrar, skotið lungnaskot í aftasta lagi en 20 til 30 metra vindur á sekúndu stóð þvert á skotstefnuna sem tók kúluna 20 til 30 sentimetra af leið.
- Attachments
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
- Veiðimeistarinn
- Posts: 1917
- Joined: 17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
- Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Veiði dagsins
Sigurgeir Hrafnkelsson veiddi sitt fyrsta hreindýr í dag á svæði 2 á Múla, við ármót Kelduár og Grjótár.
Hann fékk fallega 38 kílóa mylka fimm vetra hreinkú, veiðriffillinn var Sauer 202 cal. 6,5-284 kúlan 100 gr. Lapua scenar og færið um 100 metrar, áætlað fjarlægðarmælirinn minn akkúrat batteríislaus, vindur vestan rok 20 til 30 metrar á sekúndu þvert á skotstefnu, tók kúluna um 15 til 20 cm. hálsskot út um haus.