Ég mun í þessum þræði leitast við að birta myndir af þeim veiðimönnum sem ég mun leiðsegja á þessu veiðitímabili.
Í dag fór ég upp af Öxi norður með Ódáðavötnum, út að Steninum og sá dýrin (reyndar sá konan í hópnum þau fyrst) úti á Klapparlækjardal.
Þar skaut Andri Freyr Þorsteinsson 87 kílóa tarf, sem er gott af júlí tarfi að vera, hann hefði orðið um 100 kíló í september en aðeins bætt við sig fitu á þeim tíma.
Vopnið var Tikka cal. 243 með 100 gr. Orix kúlu og færið 150 metrar
