Hér erum við Ármar algjörlega sammála. Skyttan skiptir meira máli en caliberið.
Menn hafa hér áður verið að veiða hreindýr með 22-250 og 223
Mín skoðun er einföld. 6.5 mm kúla er með fína flughæfni og er nóg á allt á Íslandi.
Breyðari kúla kallar á meiri hleðslu til að komast á sama hraða. Meira bakslag.
Flatara er betra. Til veiða vil ég blása þessu á 3300 fet + Bara af því að það er ekki altaf tími til að mæla og pæla.
Svo riffill 1 t.d 6.5 einhvað stærra en 55
Léttur til að hlaupa með og meiri stækkun er netri. Engin tré fyrir hér heima.
Ef menn vilja 270 þá vil ég auðvitað 270 wsm, leiðast þessi hylki með sljóu öxlunum.
Óþarfi að fara í 300 mag einhvað Bara meira púður bakslag hávaði.
Nota að vísu 300 wsm. sem er sprægt en er með tiltölulegar léttar kúlur.
Er líka með 6.5-284 hlaup á þeim sama, og nota jöfnum höndum.
Ef vilji er fyrir riffil 2 frekar en setja meiri aur í no eitt og fá hann vandaðri.
Þá no 2. T.d 6 mm einhvað t.d 243 eða xc eða Br, eða ef honn er 6,5 fara niður í 223.
Má alveg vera þyngri, hinn er veiðigræjan þessi meira plinkari.
Riffill 2 tvö verður pappagatari, ekkert að því.
Hvað varðar komboið 243-270 finnst mér þeir of líkir.
0,7 mm kúlubreidd.....
Rétt eins og 6-284 og 6,5 -284
Hvorn á að nota í hvað? Ef hvor riffill kostar tæpa hálfa með sjónauka og festingum,
Af hverju ekki einn vandaðri? Bíða svo í rólegheitunum og ná í einhvað vel smíðað custom dót seinna
