Veiði dagsins 2014

Allt sem viðkemur hreindýrum
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Veiði dagsins 2014

Unread post by Veiðimeistarinn »

Já Árni, von að þú spurjir.
Við vorum að læðast að dýrunum þrír, tveir veiðimenn og ég leiðsögumaðurinn, ég sá þau að því er mér virtist alveg róleg að dóla fram og til baka á bakvið mel sem við vorum upp á og áætlunin var að skríða fram á melinn í gott færi.
En allt í einu komu dýrin upp á melinn beint á móti okkur fyrst ein kú og við hentum okkur niður, og lágum grafkjurrir, síðan komu fleiri og fleiri og stefndu á okkur, þegar þau áttu eftir 15 metra í okkur stoppuðu þau fremstu og störðu á okkur og þegar þau virtust vera að átta sig á að við værum þarna sagði ég þeim sem var nær mér að skjóta fremstu beljuna og hann skaut hana upp í gegn um hálsinn rétt fyrir aftan kverkina.
Þeir sem horfðu á okkur úr bílnum sögðu okkur að nokkur dýr hefðu verið komin aftur fyrir okkur sitt hvoru megin við okkur þegar hann skaut en við sáum það ekk þar sem við vorum fastir og urðum að horfa beint fram fyrir okkur til að hreyfa okkur sem minnst.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
konnari
Posts: 343
Joined: 12 Mar 2012 15:04

Re: Veiði dagsins 2014

Unread post by konnari »

Það er eins gott að vera þá ekki með 10-50 sinnum stækkun á sjónaukanum eða álíka gáfulegt á rifflinum þegar færið er ekki nema 15 metrar :)
Kv. Ingvar Kristjánsson
Jenni Jóns
Posts: 285
Joined: 11 May 2013 21:37
Fullt nafn: Jens Jónsson

Re: Veiði dagsins 2014

Unread post by Jenni Jóns »

konnari wrote:Það er eins gott að vera þá ekki með 10-50 sinnum stækkun á sjónaukanum
Það var líka heppilegt að hann komst svona nálægt með þetta caliber :D
Jens Jónsson
Akureyri
konnari
Posts: 343
Joined: 12 Mar 2012 15:04

Re: Veiði dagsins 2014

Unread post by konnari »

Jenni Jóns wrote:
Það var líka heppilegt að hann komst svona nálægt með þetta caliber :D
N.b. hann var með 25-06 !! EKKI 308 8-)
Kv. Ingvar Kristjánsson
User avatar
gkristjansson
Skytta
Posts: 250
Joined: 02 May 2012 14:21
Location: Ungverjaland

Re: Veiði dagsins 2014

Unread post by gkristjansson »

15 metrar, bara slá í haus með skeftinu á rifflinum......

Bara að grínast, hef reyndar lent í því sjálfur að skjóta "warthog" á svipuðu færi, ekki sjálfgefið að hitta ef kíkirinn er stilltur á 100 metrana......

;)
Kveðja,

Guðfinnur Kristjánsson
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Veiði dagsins 2014

Unread post by Veiðimeistarinn »

Ég fór á svæði 1 í dag með þrjár kýr. Dýr fundust á stór Kollseyrudalssvæðinu við Einbúa.
Karl Rósenkjær veiddi vel hornum prýdda væna gelda hreinkú, hún vóg 55 kg. og hafði 23 mm. bakfitu, veiðiriffill hans er Sako forester cal. 243 hann notaði 100 gr Norma Orix kúlu og færið var 160 metrar.
Egill Þór Sigurðsson og Guðbjartur Ellert Jónsson veiddu sinn hvora kúna veiðiriffill Egils er Tikka cal. 6,5x55 hann notaði 156 gr. Norma Orix kúlu, veiðiriffill Guðbjartar er Sako 85 cal. 6,5x55 hann notaði 120 gr. Nosler ballistic tip kúlu.
Attachments
Karl stoltur við kúna sem var óvenju þung af kú að vera.
Karl stoltur við kúna sem var óvenju þung af kú að vera.
Kýr Karls var óvenjulega vel hornum prýdd, það er sjaldgæf sjón að sjá svi stórar krúnur á kúm, þessi var til dæmis fjögurra pinna sem er afar sjaldgæft.
Kýr Karls var óvenjulega vel hornum prýdd, það er sjaldgæf sjón að sjá svi stórar krúnur á kúm, þessi var til dæmis fjögurra pinna sem er afar sjaldgæft.
Egill Þór til vinstri, ásamt veiðifélaga sínum með kúna sem hann veiddi í dag.
Egill Þór til vinstri, ásamt veiðifélaga sínum með kúna sem hann veiddi í dag.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Veiði dagsins 2014

Unread post by Veiðimeistarinn »

Það hefur verið eitthvað tölvuvandamál hjá mér eða öllu heldur netvandamál, léleg gæði á 3G pungnum hjá mér svo að ég hef ekki komið efni inn á þráðin í tvo daga eða svo.
Ég fór í gær með Aðalstein son minn og Pétur Bl. Gíslason http://kvennabladid.is/2014/05/27/viltu ... fyrir-mig/ á veiðar, þeir voru báðir að veiða tarfa.
Aðalsteinn veiddi 100 kg. tarf með 54 mm. bakfitu, veiðiriffill hans var riffillinn minn Mauser 98 cal. 6,5-284 hann var hlaðinn 100 gr. Hornady A-Max kúlu og hausskot hanns hitti í mark með aðstoð mil dot á 200 m. færi.
Pétur veiddi vænan tarf en þó ekki eins vænan og oft áður, hann heldur góðu meðaltali eftir sem áður.
Veiðriffill hans er Sako 75 cal. 243 hann notaði hentugustu ballistic tip kúluna til verksins, færið var 70 metrar.
Attachments
Aðalsteinn Sigurðarson með fyrsta hreindýrið sem hann fellir opinberlega.
Aðalsteinn Sigurðarson með fyrsta hreindýrið sem hann fellir opinberlega.
Pétur stoltur með tarfinn.
Pétur stoltur með tarfinn.
Já veiðimenn verða blóðugir um hendurnar af að taka innan úr vænum törfum.
Já veiðimenn verða blóðugir um hendurnar af að taka innan úr vænum törfum.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Veiði dagsins 2014

Unread post by Veiðimeistarinn »

Guid number one og guid number two hittust á veiðum í gær og það urðu fagnaðarfundir, þeir áttu gott samstarf sem jafnan og oft áður.
Við miðluðum upplýsingum um ferðir dýranna og forfærðum bílana hvor fyrir annann eftir framvindu veiðanna.
Attachments
Hér eru þeir við tarf  sem Skarphéðinn Smári Þórhallson felldi. Talið frá vinstri guid number one, guid number two og Skarphéðinn með son sinn efnilegan veiðimann.
Hér eru þeir við tarf sem Skarphéðinn Smári Þórhallson felldi. Talið frá vinstri guid number one, guid number two og Skarphéðinn með son sinn efnilegan veiðimann.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Veiði dagsins 2014

Unread post by Veiðimeistarinn »

Í dag fórn ég enn og aftur á veiðar á svæði 1 eins og allaf á þessu veiðitímabili ef ekki er annað tekið fram hér í þessum innslögum.
Einar Jón Vilhjálmsson felldi sitt fyrsta hreindýr í dag, hann veiddi 38 kg. mylka kú, veiðiriffill hans er Remington 710 cal. 270 hann notaði verksmiðjuhlaðið skot frá Winchester með 130 gr. soft point kúlu og færið var 56 metrar, enda gatið á dýrinu stórt sérstaklega útgatið sem lungnatægjurnar stóðu út um þegar kýrin féll.
Kristján B. Purkhús felldi einnig sitt fyrsta dýr í dag hann veiddi gelda kú sem vóg 47 kg. með 20 mm. bakfitu. Veiðiriffill hans er Sako 85 cal. 243 hann notaði 100 gr. Norma semi pointed kúlu úr verksmiðjuhlöðnu skoti og færið var 126 metrar.
Attachments
Einar Jón Vilhjálmsson vígalegur og vel vopnum búin við sitt fyrsta hreindýr.
Einar Jón Vilhjálmsson vígalegur og vel vopnum búin við sitt fyrsta hreindýr.
Purkhúsfeðgagengið við kú Kristjáns ásamt guidinum sem reynir að troða sér allsstaðar. Frá vinstri Jón Hilmar, Kristján Bjarki, Jákup Napoleon faðir þeirra og undirritaður í stormsteytunni og moldrokinu sem gerði menn bíldótta í dag.
Purkhúsfeðgagengið við kú Kristjáns ásamt guidinum sem reynir að troða sér allsstaðar. Frá vinstri Jón Hilmar, Kristján Bjarki, Jákup Napoleon faðir þeirra og undirritaður í stormsteytunni og moldrokinu sem gerði menn bíldótta í dag.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Veiði dagsins 2014

Unread post by Veiðimeistarinn »

Ég fór á svæði 1 í dag að leita tveggja kúa og fann yst á Meyjardalnum.
Jóhann Jóhannsson veiddi 44 kg mylka kú veiðiriffill hans er Sako 85 cal. 270 hann notaði 130 gr. Sierra Gameking kúlu og færið var 170metrar.
Aðalsteinn Hákonarson veiddi einnig mylka kú í dag, sú vóg 40 kg. veiðiriffill hans er Albin Custom (Rassi) cal 243 hann notaði 100 gr. Nosler partition og færið var 160 metrar, herðakambsskot og kýrin steinlá.
Attachments
Jóhann Jóhannsson ásamt Pétri syni sínum við kúna.
Jóhann Jóhannsson ásamt Pétri syni sínum við kúna.
Aðalsteinn Hákonarson með ,,Rassa" við kúna sem hann veiddi í Austari Fjallgarðinum í dag.
Aðalsteinn Hákonarson með ,,Rassa" við kúna sem hann veiddi í Austari Fjallgarðinum í dag.
Herðakambsskot valda oftast litlum kjötskemmdum en kosturinn er að dýrið fellur strax til jarðar. Þetta er útskot eftir 100 gr. Nosler partition úr cal. 243.
Herðakambsskot valda oftast litlum kjötskemmdum en kosturinn er að dýrið fellur strax til jarðar. Þetta er útskot eftir 100 gr. Nosler partition úr cal. 243.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Veiði dagsins 2014

Unread post by Veiðimeistarinn »

Smári Brynjarsson veiddi tarf á svæði 1, síðasta dag tarfaveiða.
Hann vóg 86 kg. og hafði 45 mm. bakfitu veiðriffill Smara er Tikka cal. 270 hann notaði 110 gr. Hornady V-Max kúlu og færið var 260 metrar.
Attachments
Smári með tarfinn.
Smári með tarfinn.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Veiði dagsins 2014

Unread post by Veiðimeistarinn »

Bræðurnir Skarphéðinsson fóru með mér á veiðar á svæði 1, ásamt Pétri veiðifélaga sínum.
Kristmundur veiddi 43 kg. mylka kú, sú hafði 15 mm. bakfitu.
Veiðrffill Kristmundar var kunnulegur, Mauser cal. 6,5-284 í þetta skiptið.
Það helgast af því að bíll Kristmundar bilaði daginn áður og var skilinn eftir á fjallinu meðan beðið var íhluta til lagfæringar og svo hrapalega vildi til að skotin hans gleymdust í bílnum.
Kúlan var 100 gr. Hornady A-Max og færið 240 metrar.
Grétar Njáll bróðir hans veiddi 40 kg mylka kú, veiðriffill hans einnig lánsriffill, er Tikka T3 cal 6,5x55 hann notaðu 125 g. Nosler partition kúlu og færið var 170 metrar.
Attachments
Kristmundur stillti sér upp með kúna þó hann væri hálf þreyttur eftir amstur dagsins.
Kristmundur stillti sér upp með kúna þó hann væri hálf þreyttur eftir amstur dagsins.
Það er jafnan glatt á hjalla í veiðiferðum hjá þeim bræðrum.
Það er jafnan glatt á hjalla í veiðiferðum hjá þeim bræðrum.
Þeir bræður Grétar og Kristmundur voru kampakátir ásamt veiðifélaga sínum Pétri K. Hilmarssyni.
Þeir bræður Grétar og Kristmundur voru kampakátir ásamt veiðifélaga sínum Pétri K. Hilmarssyni.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Veiði dagsins 2014

Unread post by Veiðimeistarinn »

Ég fór á veiðar 20. september, síðasta dag veiðitímabilsins með þrjár kýr á svæði 1.
Eftir nokkra leit og yfirferð frá því klukkan 5:30 um morguninn fundust dýrin við Mælifellsána neðst á Mælifellsdalnum.
Guðbjörg Þorvaldstóttir veiddi væna kú mylka hennar fyrsta hreindýr. Kýrin var með 16 mm bakfitu og vóg 52 kg.
Veiðiriffil fékk Guðbjörg léðan hjá undirrituðum enda hæg heimatökin, Mauser 98cal. 6,5-284 hleðsla 60 gr. Nprma MRP púður bakvið 100 gr Hornady A-Max kúlu og færið var 130 metrar.
Magnus Jónasson veiddi mylka kú með 19 mm. bakfitu sem vóg 47 kg.
Veiðiriffill hans er Jalonen cal. 6,5-284 hann notaði 120 gr. Nosler Partition kúlu og færið var 182 metrar.
Júlíus Brynjarsson veiddi 46 kg. mylka kú með 3 mm. bakfitu veiðiriffillinn sem hann notaði er Mauser 98 cal. 6,5-284 með 100 gr. Hornady A-Max kúlu og færið var 285 metrar.
Langur dagur, við vorum að flá dýrin klukkan 20:00 um kvöldið.
Attachments
Guðbjörg rígmontin og stolt með sitt fyrsta hreindýr væna kú, ekki laust við að sjáist móta fyrir sigurbrosi á vör.
Guðbjörg rígmontin og stolt með sitt fyrsta hreindýr væna kú, ekki laust við að sjáist móta fyrir sigurbrosi á vör.
Magnús með Jalonenenin og kúna.
Magnús með Jalonenenin og kúna.
Júlíus var svo mikið að flýta sér að ná flugi að ekki var tími til að taka mynd af honum með kúnni, faðir hans yfirstressari Geldingahnappana hljóp með honum í bílinn og hann rétt náði fluginu á eitthvað álversnámskeið úti í Ungverjalandi.
Júlíus var svo mikið að flýta sér að ná flugi að ekki var tími til að taka mynd af honum með kúnni, faðir hans yfirstressari Geldingahnappana hljóp með honum í bílinn og hann rétt náði fluginu á eitthvað álversnámskeið úti í Ungverjalandi.
Svo var bara rúllað með dýrin heim á leið á sexhjóli Magnúsar undir kvöld.
Svo var bara rúllað með dýrin heim á leið á sexhjóli Magnúsar undir kvöld.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Veiði dagsins 2014

Unread post by Veiðimeistarinn »

Þá er þessu veiðitímabili lokið, nema nóvemberveiðinni á svæðum 8 og 9.
Ég fór með 45 veiðimenn þetta árið sem er nokkru færra en venjulega, orsökin líklega að færri af mínum föstu kúnnum fengu úthlutað leyfum í þetta skiptið.
Ég var mest á svæði 1 eða með 39 dýr þar, 5 á svæði 2 og eitt á svæði 7.
Ég var með 23 tarfa og 22 kýr.
Veiðtimabilið gekk upp og niður illa gekk að finna dýrin á svæði 1 til að byrja með en eftir að sunnanáttin fór að verða ríkjandi um miðjan ágúst fór þetta að ganga betur enda ívenju gott veður ríkjandi lengst af.
Dýrin fóru samt ekki lengra inneftir en inn að Búrfellsvatni í Jökuldalsheiðinni, ég vil kenna eldsumbrotunum og brennisteinsmenguninni um það, dýrunum hefur ekki líkað lyktin sýndist mér, auk þess sem gróður sölnaði á einni nóttu óvenju snöggt þó hitnn væri um 20 gráður dag eftir dag, þegar gufurnar fóru að leggjast yfir.
Attachments
Þetta er samt vænst bunki af kortum þrátt fyrir allt en mest hef ég farið með 90 veiðimenn á einu veiðitímabili.
Þetta er samt vænst bunki af kortum þrátt fyrir allt en mest hef ég farið með 90 veiðimenn á einu veiðitímabili.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Veiði dagsins 2014

Unread post by Veiðimeistarinn »

Ég set samanburðartöfluna með þróun caliberana milli ára hérna inn líka til gamans og glöggvunar.

Kalíber......2009.......2010......2011......2012......2013......2014
243..............21.........13........12........14..........10...........7
6,5x55.........14.........19........11........12...........11..........12
6,5-284.........4............9..........5..........4...........7.........11
6,5x57..........0............0..........0..........0..........0...........1
6,5x65...........0...........1..........3..........1...........1..........1
270...............4............4..........8..........7..........6..........6
7-284.............0............0..........0..........0.........1..........0
7 mm Rem...4............4...........2..........3............5..........0
308.............12............9.........13.........6...........5..........1
3006.............4............2...........0.........2...........1.........1
300 Win........3............3...........0.........3............0.........1
300 WSM.....1............2...........0..........1.............0.........0
270 WSM.....0............0............0.........1.............0.........0
2506.............4.............1...........1.........2..........5.........2
7x57.............5.............0...........0.........0..........0.........0
7x64.............1.............0...........0.........0..........0.........0
7x65.............1.............0...........0.........0..........0.........0
300 H&H.....1.............0..........0..........0.............1.........1
300 Wetherby Mag........0.........0...........0............0.........1
375 H&H.....0.............0...........0.........0.............2........0
338 Blazer....0.............0..........1..........0............0........0
.........alls......79..........67........56........56..........55......45
Attachments
Skemmtileg mynd með skyttuna og leiðsögumanninn fylgjast með tarfinum falla og hjörðina ber yfir riffil veiðimannsins, Remington M721 cal. 300 Holand&Holand.  Mynd Daði Sigurðarson.
Skemmtileg mynd með skyttuna og leiðsögumanninn fylgjast með tarfinum falla og hjörðina ber yfir riffil veiðimannsins, Remington M721 cal. 300 Holand&Holand. Mynd Daði Sigurðarson.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Veiði dagsins 2014

Unread post by Veiðimeistarinn »

Hérna koma nokkrir fróðleiksmolar, eftirtekja af veiðtímabilinu :D
Það eru tímamot hjá mér í ár, nú í september eru liðin 40 ár frá því ég skaut mitt fyrsta hreindýr, þá hef ég verið 16 ára.
Eins og fram hefur komið fór ég með 45 veiðimenn til veiðaá þessu veiðtímabili, þar af hafði ég farið með 23 af þeim áður á veiðar en 22 voru að fara með mér í fyrsta skipti nú.
Eftir þetta veiðtimabil hef ég farið með 409 veiðimönnum samtals á hreindyraveiðar, sumum þeirra oft og jafnvel margoft.
Á þeim 23 árum sem ég hef starfað sem leiðsögumaður hef ég leiðsagt um það bil 1200 veiðimönnum.
Flest dýrin voru veidd á svæði 1 þetta haustið.
Meðalvigt dýranna sem veiddust með mér í haust var í góðu meðallagi.
Ein kú á svæði 2 hún vóg 43 kg.
Ein kú á svæði 7 hún vóg 40 kg.
5 tarfar á svæði 2 vigtuðu að meðaltali 89 kg.
18 tarfar á svæði 1 vigtuðu að meðaltali 100,6 kg.
20 kýr á svæði 1 vigtuðu að meðaltali 45.6 kg.
Þyngstu kýrnar hjá mér á svæði 1 voru 55 kg. þrjár talsins, sú léttasta var 38 kg.
Þyngstu tarfarnir hjá mér á svæði 1 voru 114 kg. tveir talsins, sá léttasti var 65 kg.
Þyngsti tarfurinn á svæði 2 hjá mér var 105 kg. sá léttasti var 60 kg.
Þyngsti tarfur sem hefur veiðst méð mér var 118 kg. veiddur í Þrætutungum í Smjörfjöllum.
Síðan hafa veiðst með mér áður, tveir 117 kg. tveir 116 kg. og tveir 115 kg.
Þyngsta kýrin sem hefur veiðst hjá mér er 60 kg. veidd í Austari Fjallgarði við Flugufell fyrir ári síðan, veiðimaður Karl Rósenkjær. Hann á raunar eina af þremur þyngstu kúnum í ár líka.
Attachments
Halldór Jónsson við sinn 114 kg. tarf.
Halldór Jónsson við sinn 114 kg. tarf.
Mihalay Kerekes við sinn 114 kg. tarf.
Mihalay Kerekes við sinn 114 kg. tarf.
Karl Rósenkjær við sína 55 kg. kú.
Karl Rósenkjær við sína 55 kg. kú.
Jónas Bergsteinsson við sína 55 kg. kú.
Jónas Bergsteinsson við sína 55 kg. kú.
Sveinn Aðalsteinsson við sína 55 kg kú.
Sveinn Aðalsteinsson við sína 55 kg kú.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Veiði dagsins 2014

Unread post by Veiðimeistarinn »

Hér er mynd af þyngsta tarfinum!
Attachments
Þyngsti tarfur sem hefur veiðst á mínum vegum 118 kg. veiðimaður Jósef Jene frá Ungverjalandi, hann notaði riffilinn minn til verksins.
Þyngsti tarfur sem hefur veiðst á mínum vegum 118 kg. veiðimaður Jósef Jene frá Ungverjalandi, hann notaði riffilinn minn til verksins.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Veiði dagsins 2014

Unread post by Veiðimeistarinn »

Ég varð mikils heiðurs aðnjótandi þegar ég kom úr Ameríkuhrepp á dögunum, fékk mín fyrstu ritlaun fyrir skrifin hérna, það er ekki lítill heiður að mér finnst.
Ég fór í Beco á Langholtsveginum til að sækla myndavelina mína sem þar var í viðgerð meðan ég snattaði í henni Ameríku.
Jú, jú myndavélin var að sönnu tilbúin, viðgerð og betri en ný, og á reikningnum sem fylgdi stóð.
Viðgerðin kostar ekkert vegna skemmtilegra skrifa eigandans á Skyttuspjallinu :D
Takk kærlega fyrir mig Óskar Andri :D
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Gunson
Posts: 36
Joined: 03 Jul 2012 09:05

Re: Veiði dagsins 2014

Unread post by Gunson »

Þegar farið er yfir afrakstur sumarsins, kemur í ljós að Sigurður veiðimeistari hefur komið víða við. Héraðið allt er undir, einkum þó hálendið inn að Snæfelli og svo öll heiðadrög norður í Bakkafjörð. Ekki má þí gleyma að hann fékk nasasjón af svæði 5 sem er sveipað tálsýnum, þoka og hæðir sem renna saman í dulræna hrauka og vörður, svo engin er fjarlægðin og nálægðin blekkir. Dýr sáust, dýr hurfu, komu og fóru. Hann taldi ekki eftir sér að fara með mér og syni mínum yfir svæðið að hluta, en afraksturinn var ekki í hlutfalli við áhugann. Í Davíðssálmi segir: ,,Ég hef augu mín til fjallanna, hvaðan kemur mér hjálp?" Svarið er í 120.1. En nafni minn má alveg nefna flottasta veiðibílinn, sem stendur á óhagganlegri undirstöðu og er tilbúinn í allt, þegar kallið kemur. Þegar farið er yfir afraksturinn, þyngsta tarfinn, stærstu hornin, lengsta færið og stærsta kaliberið... flottasta veiðibílinn, sem sjá má í afrakstri sumarsinsi myndasafni hans, vil ég þakka Nafna fyrir þolinmæðina. En veðrið var ekki sem best til veiða, enda svæðið umvafið dulúð. Þegar horft var til fjallatindanna, voru dýrin við fjöruborð, og þegar átti að skjóta, hlupu þau í friðlandið, veiðimönnum til skapraunar. En allt þetta skerpir veiðigleðina og loks þegar skotið hljóp af, fullkomnaðist allt í lokapunkti þeirrar athafnar sem veiðistundin gefur. Enn eitt sumar, enn eitt dýr, enn ein veiðiferð og erfiði dagsins hélst í hendur við þá ábyrgð, að að gera að bráðinni og skila í hús. Vonandi að ári verður sama athöfn, sama aðferð, sama veiðigleði, og sami áhugi að sækja það dýr sem kanna að falla í hlut þess sem sækir um, til að uppfylla þrána. ,, Ég hef þá augu mín til fjallanna, hvaðan kemur mér hjálp?"" Í ljósi alls þessa er hvatinn til staðar, og enginn tekur meira en úthlutað er, það er að vera ráðsmaður lífríkisins og kunna sér hóf. Þær skyldurhöfum við við lífið sjálft. Með kveðju til veiðimanna.
Með kærri kveðju
Sigurður Rúnar Ragnarsson
Neskaupstað
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Veiði dagsins 2014

Unread post by Veiðimeistarinn »

Mæl þú manna heilastur, séra nafni.
Semmtileg lesning með áhugaverðum tilvitnunum :D
Þú segir nafni minn: ,,Ég hef þá augu mín til fjallanna, hvaðan kemur mér hjálp?""
Svo ég svari þeirri spurningu af mínu auðmjúka lítilæti, auðvitað kemur hjálpin frá hreindýraleiðsögumanninum þínum :lol:
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Post Reply