Ég fór í fyrsta túrinn í dag og það á svæði 5 í fyrsta skipti og gerði víðreist, ekki var nú árangurinn samt í samræmi við yfirferðina.
Má heita að ég hafi verið í læri hjá Sævari leiðsögukonungi Guðjónssyni á svæði 5 í allan dag, hreyfði mig lítið nema ráðfæra mig við hann, Sævar hafðu bestu þakkir fyrir að sinna þessu hvabbi mínu

Við byrjuðum á að fara og horfa eftir Hólmatinds törfunum, eftir að hafa séð tarfana á Lambeyrardalnum af hlaðinu hjá Sævari og Berglindi á Mjóeyri, sem Sigurgeir Jóhannsson veiddi úr eldsnemma í gærmorgun í 900 metra hæð í Hólmatindinum.
Ég og veiðmenn mínir, Sigurður Rúnar Ragnarsson og Ragnar sonur hans rákumst á þá 14 saman inn af Hólmanesinu Eskifjarðarmegin við gömlu ruslahaugana, þeir fóru síðan rakleitt út fyrir Hólmaborg og héldu sig í friðlandinu þar í allan dag, af þessum 14 eru 7 vænir tarfar um 100 kíló sýndist okkur.
Því næst var farið út í Vöðlavík þar sem veiðimenn mínir sáu blandaða hjörð upp undir eggjum beint fyrir ofan Ferðafélagsskálann á Karlsstöðum, ekki sáum við neitt til þeirra í dag þrátt fyrir að kíkja á allan Dysjadalinn og upp á Sanda við Dysina.
Okkur fannst of seint að fara eftir það upp á Lambeyrardal, enda menn í törfunum þar og fórum því heim við svo búið en fylgjumst grannt með törfunum í Hólmanesinu og hugsum þeim þegjandi þörfina þega þeir láta svo lítið að fara aftur upp fyrir veg
