Veiði dagsins 2012

Allt sem viðkemur hreindýrum
User avatar
Tf-Óli
Posts: 119
Joined: 08 Mar 2012 21:26
Location: Borgarnes.

Re: Veiði dagsins

Unread post by Tf-Óli »

Efnilegur hann nafni þinn.
Takk fyrir að halda úti þessum stórmerkilega spjallþræði.
Kveðja - Ólafur Ágúst Stefánsson
User avatar
Guðni Einars
Posts: 31
Joined: 25 Apr 2012 13:04

Re: Veiði dagsins

Unread post by Guðni Einars »

Ég tek undir hrós til Veiðimeistarans Sigurðar Aðalsteinssonar. Það er gaman að lesa veiðifréttirnar og sjá myndirnar. Veiðimeistarinn fær fimm stjörnur fyrir dugnaðinn*****!
Með kveðju,
Guðni Einarsson
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Veiði dagsins

Unread post by Veiðimeistarinn »

Jæja þetta er nu að verða hálfgert ættarmót í dag fór ég á veiðar með föður mínum Aðalsteini Aðalsteinssyni.
Hann skaut 105 kílóa fjögurra spaða tarf við Folavatn á Múla. Veiðiriffillinn er Remington 710 cal. 270 kúlan 130 gr. Semi Pointed úr Norma verksmiðjuhlöðnu skoti, uppgefin hraði við hlaup 957 m. sek.
Það má ekki á milli sjá hvort barnabarnabarnið í gær eða sá gamli í dag er roggnari en segja verður að skilt er skeggið hökunni.
Attachments
Aðalsteinn Aðalsteinsson, Danni á Vaðbrekku 80 ára enn að, en hann skaut sinn fyrsta hreitarf 14 ára svo þetta eru orðin 66 á á veiðum.
Aðalsteinn Aðalsteinsson, Danni á Vaðbrekku 80 ára enn að, en hann skaut sinn fyrsta hreitarf 14 ára svo þetta eru orðin 66 á á veiðum.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
SigSig
Posts: 1
Joined: 09 Sep 2012 10:51
Location: Egilsstaðir

Re: Veiði dagsins

Unread post by SigSig »

Helvíti magnaður hann afi - glæsilegur þessi tarfur!

Gaman að skoða þennan þráð - það var þá aldrei að maður gæti ekki fylgst með úr fjarlægð!

Nafni er enn í skýjunum með föstudaginn - eins og foreldrar hans reyndar líka! Tvímælalaust einn af skemmtilegri dögum lífs míns, það verður enginn svikinn af leiðsögn Veiðimeistarans!! :D
Sigríður Sigurðardóttir yngri
Vaðbrekku
User avatar
Spíri
Posts: 256
Joined: 25 Feb 2012 09:16

Re: Veiði dagsins

Unread post by Spíri »

Enn og aftur þakkir fyrir þennan þráð Sigurður :) Er vitað hvað hann faðir þinn hefur fellt mörg hreindýr í þessi 66 ár? Það eru vafalaust fáir ef nokkrir með jafn mikla reynslu af hreindýraveiðum og hann á landinu.
Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Veiði dagsins

Unread post by Veiðimeistarinn »

Nei það er ekki vitað hvað hann hefur fellt mörg dýr í það heila, en við vorum einhverntíman að reyna að áætla þetta og komumst að þeirri niðurstöðu að þau væru á milli 500 og 1000.
Kannski hefur hann fellt 1009 hreindýr í allt :D
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Veiði dagsins

Unread post by Veiðimeistarinn »

Í dag var ég að leiðsegja í fyrsta skipti á svæði 7, hef að vísu einu sinni lent þangað til veiða áður í skörun af svæði 2 og dýrin hlupu af svæði 2 yfir svæði 6 ag alla leið út á Fossárfell.
Jóhann Valdimar Helgason veiddi væna hreinkú 40 kíló rétt fyrir sunnan Líkárvötn á svæði 7 í dag.
Veiðiriffill Jóhanns var Remington 700 cal. 270, með 130 gr. Power point kúlu úr verksmiðjuhlöðnu Winchester skoti.
Færið var 124 metrar og skotið beint í hjartastað, hjartað var alveg í mauki, gjörónýtt!
Attachments
Jóhann merktur að hætti veiðimeistara í útlandinu eftir að hafa fellt sitt fyrsta dýr.
Jóhann merktur að hætti veiðimeistara í útlandinu eftir að hafa fellt sitt fyrsta dýr.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
E.Har
Posts: 624
Joined: 27 May 2012 23:26
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Veiði dagsins

Unread post by E.Har »

Danni flottur, og tarfurinn líka :-)
Ertu farin að fikra þig niður á firði :-)

Kem austur í túr 2 á fimtudaginn.
E.Har

Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja ;-)
konnari
Posts: 343
Joined: 12 Mar 2012 15:04

Re: Veiði dagsins

Unread post by konnari »

Veiðimeistarinn wrote:Jæja þetta er nu að verða hálfgert ættarmót í dag fór ég á veiðar með föður mínum Aðalsteini Aðalsteinssyni.
Hann skaut 105 kílóa fjögurra spaða tarf við Folavatn á Múla. Veiðiriffillinn er Remington 710 cal. 270 kúlan 130 gr. Semi Pointed úr Norma verksmiðjuhlöðnu skoti, uppgefin hraði við hlaup 957 m. sek.
Það má ekki á milli sjá hvort barnabarnabarnið í gær eða sá gamli í dag er roggnari en segja verður að skilt er skeggið hökunni.
Það þarf ekki alltaf að vera með fleiri hundruð þúsund krónu græjur til að fella hreindýr.....helv. er sá gamli flottur :D
Kv. Ingvar Kristjánsson
User avatar
sindrisig
Posts: 313
Joined: 09 Oct 2010 08:45
Location: Neskaupstaður

Re: Veiði dagsins

Unread post by sindrisig »

Ég sé að það er komið að úthlutunum á aukadýrum á svæði 4 og á svæði 8. Taldist til að það hefðu verið leitaðir vel á annað hundrað kílómetrar í Mjóafirði á fimmtudaginn. Sumir gengu yfir 30 km. þann daginn en í allt voru 7 að leita og fundu ekki sparð.
Sindri Karl Sigurðsson
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Veiði dagsins

Unread post by Veiðimeistarinn »

Það var ekki björgulegt veðrið í dag, ég gerði tvær tilraunir að fara upp úr Hrafnkelsdalnum til veiða, fyrst frá Aðalbóli komst upp á Kálfafellið þar var ófærð og blind bylur.
Gerði aðra tilraun að fara upp úr Skænudalnum rétt fyrir innan bæinn hjá mér, komumst inn að Tungusporði þá hamlaði ófærð og sami blind bylurinn.
Snæbjörn fór inn Fljótsdalsheiði inn og austur fyrir Snæfell, það var líka bylur, 50 metra skyggni og vegaskurðirnir við bundna slitlagið fullir af snjó.
Attachments
Svona var skyggnið þegar best lét, slóðinn sást þokkalega en síðan ekki söguna meir.
Svona var skyggnið þegar best lét, slóðinn sást þokkalega en síðan ekki söguna meir.
Skyggnið fór ofan í ekki neitt þegar verst lét og aðeins sást fram á húddið.
Skyggnið fór ofan í ekki neitt þegar verst lét og aðeins sást fram á húddið.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Veiði dagsins

Unread post by Gisminn »

Hahaha ég googlaði textan og þetta er rússneskur skósali að reyna að selja okkur allskonar skó :-)
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Veiði dagsins

Unread post by Veiðimeistarinn »

Jón Gunnar Stefánsson veiddi 43 kíló hreinkú í Flatarheiði undir kvöld, veiðiriffill Jóns Gunnars var Sako 75 cal. 270 WSM, kúlan var 130 gr. Accubond hleðslan 60 gr af Norma 204 púðri sem gefur hraða uppá rúmlega 3000 fet samkvæmt töflu og færið var 166 metrar.
Attachments
Dagur var að kveldi kominn þegar kýrin féll hjá Jóni Gunnari.
Dagur var að kveldi kominn þegar kýrin féll hjá Jóni Gunnari.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Veiði dagsins

Unread post by Veiðimeistarinn »

Pétur Bl. Gíslason veiddi vænan tarf sem vóg 110 kíló í Flatarheiðinni, veiðriffill Péturs er Sako 75 cal. 243 og færið um 100 metrar, kúluna setti hann undir eyrað.
Grenjandi rok var af vestri þegar þeir veiðifélagarnir Pétur og Jón Gunnar voru við veiðar í Flatarheiðinni í gær. Ekki viðraði til veiða fyrr en undir hádegi svo dagaur var að kvöldi kominn þegar bæði dýrin voru fallin og langur vegur heim að Vaðbrekku, allt frágengið og farið í koju um kl. 4 í nótt.
Attachments
Pétur Bl. Gíslason með vænan tarf, fallið vóg 110 kíló.
Pétur Bl. Gíslason með vænan tarf, fallið vóg 110 kíló.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Veiði dagsins

Unread post by Veiðimeistarinn »

Kristján Már Kárason veiddi vænan tarf í Flatarheiðinni í dag, tarfurinn vóg 90 kíló sem kom nokkuð á óvart miðað við hornin á honum.
Veiðiriffill Kristjáns er Sauer 202 cal. 308, kúlan 180 gr. Nosler Accubond hlaðin með 44 gr af N-150 púðri sem gefur rétt um 2500 fet samkvæmt töflu.
Færið var um 80 metrar. Klára lungnaskot innskot aftur við þind eins og sést á myndinni og útskot frammi undir bóg,litlar skemmdir, nema helst á lungunum, fullkomið skot.
Attachments
Hornin segja ekki alltaf til um vænleika tarfanna.
Hornin segja ekki alltaf til um vænleika tarfanna.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Veiði dagsins

Unread post by Veiðimeistarinn »

Kristmundur Skarphéðinsson og Magnús Jónasson veiddu sína kúna hvor í dag við Axará á Fljótsdalsheiði.
Veiðirifflar þeirra eru, Kristmundur með metriffilinn frá skotprófinu, Carl Gustaf cal. 6,5x55 hlaðinn 140 gr. A-Max kúlu og hann fékk 49 stig fyrir á skotprófinu.
Hér með er lýst eftir hverjum þeim sem var með jafnhátt skor og Kristmundur á skotprófinu eða hærra, ekki mikill möguleiki en hámarks skor var 50 stig.
Magnús með Jalonen Target cal. 6,5-284.
Attachments
Kristmundur með metriffilinn og Magnús með Jalonen, dýrin komin í körfuna og Krúserinn tilbúinn að tölta heim á leið.
Kristmundur með metriffilinn og Magnús með Jalonen, dýrin komin í körfuna og Krúserinn tilbúinn að tölta heim á leið.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
Spíri
Posts: 256
Joined: 25 Feb 2012 09:16

Re: Veiði dagsins

Unread post by Spíri »

Skondið með metriffilinn! Sá sem skoraði hæst hjá Skotfélagi Vesturlands notaði einmitt gamlan svona riffil með "bónussjónauka" :lol: . Riffilinn keyfti hann í hlað á sínum tíma greinilega eðalvopn ;) Svo voru menn að falla með græjum eins og sauer og sako trg!
Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi
iceboy
Posts: 466
Joined: 26 Apr 2012 15:58
Contact:

Re: Veiði dagsins

Unread post by iceboy »

Enda skiptir það ekki öllu máli hvernig vopn þú ert með.
Auðvitað þíðir ekkert að vera með ónýtt vopn en það er alveg sama hversu gott og flott vopn þú ert með ef þú ert ekki góð skytta. Það sem ég held að skipti á endanum loka máli er maðurinn sem heldur á rifflinum
Árnmar J Guðmundsson
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Veiði dagsins

Unread post by Veiðimeistarinn »

Nú síðast í gær og fyrradag í Flatarheiðinni, (menn voru mishræddir þegar fari var upp og niður himnastigann frá Sturluflöt) var ég með Geldinghnappagengið á veiðum ásamt aukahnöppum, alls voru veidd fimm dýr á þessum tveimur dögum.
Geldingahnapparnir Jónas Þór Jóhannssonn veiddi 80 kílóa tarf,veiðriffill hans Sako Forrester cal. 243 og Brynjar Júlíusson veiddi 43 kílóa kú, veiðriffill hans Carl Gustaf cal. 6,5x55 kúlan 140 gr. A-Max.
Júlíus Brynjarsson aukahnappur veiddi 37 kílóa kú, veiðriffill hans Sako 75 Varmint cal. 243 með 100 gr. Norma Orix kúlu.
Ingólfur Birgir Bragason aukahnappur veiddi 97 kílóa tarf , veiðriffill hans var Sako Battue 300 Win.Mag. kúlan 180 gr. Noema Orix.
Hávar Sigurjónsson aukahnappur veiddi 38 kílóa kú, veiðiriffill hans J Jalonen Target cal. 6,4-284 kúlan 120 gr. Nosler Ballistic Tip.
Attachments
Jónas Þór Jóhannsson Geldingahnappur við fallinn öræfakóng, að baki hans Geldingahnappar og aðrir hnappar. Júlíus Brynjarsson aukahnappur, Hávar Sigurjónsson aukahnappur, Sigurjón Hávarsson aukahnappur, Jóhann P Hansson Geldingahnappur og Ingólfur Birgir Bragason aukahnappur.  Geldingahnapparnir Sveinn Jónsson og Hákon Erlendsson voru fjarri góðu gamni, sennilega erlendis.
Jónas Þór Jóhannsson Geldingahnappur við fallinn öræfakóng, að baki hans Geldingahnappar og aðrir hnappar. Júlíus Brynjarsson aukahnappur, Hávar Sigurjónsson aukahnappur, Sigurjón Hávarsson aukahnappur, Jóhann P Hansson Geldingahnappur og Ingólfur Birgir Bragason aukahnappur. Geldingahnapparnir Sveinn Jónsson og Hákon Erlendsson voru fjarri góðu gamni, sennilega erlendis.
Júlíus Brynjarsson aukannappur og ,,svæfingalæknir" stillir sér upp.
Júlíus Brynjarsson aukannappur og ,,svæfingalæknir" stillir sér upp.
Það er að ýmsu að hyggja, innanúrtaka og ljósmyndun, Brynjar Júlíusson Geldingahnappur mundar myndavélina en náði þó ekki að festa Sigurð Aðalsteinsson Geldingahnapp á filmu, hann var að hlaupa í allar áttir.
Það er að ýmsu að hyggja, innanúrtaka og ljósmyndun, Brynjar Júlíusson Geldingahnappur mundar myndavélina en náði þó ekki að festa Sigurð Aðalsteinsson Geldingahnapp á filmu, hann var að hlaupa í allar áttir.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
User avatar
E.Har
Posts: 624
Joined: 27 May 2012 23:26
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Veiði dagsins

Unread post by E.Har »

Af því að það var verið að auglýsa eftir hærra skori en 49 þá náði engin hreinum 50.
Valur Righter byssusmiður á Ísafyrði :? tók prófið á 2 riffla og 49 á báða.
Rösler í 300 win mag m. og Tikka 6-284 imp.
Báðir svona einhvað smekkaðir til. :-)

Hann feldi svo éð mér í Viðfjarðarfjallinu.
með 300 hólknum. Snirtilæegt skot og já fyrir Sigga þar sem þetta er hanns þráður 150 gr ballastitipp. :mrgreen:
Last edited by E.Har on 17 Sep 2012 15:30, edited 1 time in total.
E.Har

Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja ;-)
Post Reply