Page 4 of 5
Re: Veiði dagsins
Posted: 07 Sep 2012 23:05
by Tf-Óli
Efnilegur hann nafni þinn.
Takk fyrir að halda úti þessum stórmerkilega spjallþræði.
Re: Veiði dagsins
Posted: 08 Sep 2012 13:27
by Guðni Einars
Ég tek undir hrós til Veiðimeistarans Sigurðar Aðalsteinssonar. Það er gaman að lesa veiðifréttirnar og sjá myndirnar. Veiðimeistarinn fær fimm stjörnur fyrir dugnaðinn*****!
Re: Veiði dagsins
Posted: 08 Sep 2012 19:45
by Veiðimeistarinn
Jæja þetta er nu að verða hálfgert ættarmót í dag fór ég á veiðar með föður mínum Aðalsteini Aðalsteinssyni.
Hann skaut 105 kílóa fjögurra spaða tarf við Folavatn á Múla. Veiðiriffillinn er Remington 710 cal. 270 kúlan 130 gr. Semi Pointed úr Norma verksmiðjuhlöðnu skoti, uppgefin hraði við hlaup 957 m. sek.
Það má ekki á milli sjá hvort barnabarnabarnið í gær eða sá gamli í dag er roggnari en segja verður að skilt er skeggið hökunni.
Re: Veiði dagsins
Posted: 09 Sep 2012 11:10
by SigSig
Helvíti magnaður hann afi - glæsilegur þessi tarfur!
Gaman að skoða þennan þráð - það var þá aldrei að maður gæti ekki fylgst með úr fjarlægð!
Nafni er enn í skýjunum með föstudaginn - eins og foreldrar hans reyndar líka! Tvímælalaust einn af skemmtilegri dögum lífs míns, það verður enginn svikinn af leiðsögn Veiðimeistarans!!

Re: Veiði dagsins
Posted: 09 Sep 2012 16:30
by Spíri
Enn og aftur þakkir fyrir þennan þráð Sigurður

Er vitað hvað hann faðir þinn hefur fellt mörg hreindýr í þessi 66 ár? Það eru vafalaust fáir ef nokkrir með jafn mikla reynslu af hreindýraveiðum og hann á landinu.
Re: Veiði dagsins
Posted: 09 Sep 2012 19:16
by Veiðimeistarinn
Nei það er ekki vitað hvað hann hefur fellt mörg dýr í það heila, en við vorum einhverntíman að reyna að áætla þetta og komumst að þeirri niðurstöðu að þau væru á milli 500 og 1000.
Kannski hefur hann fellt 1009 hreindýr í allt

Re: Veiði dagsins
Posted: 09 Sep 2012 19:27
by Veiðimeistarinn
Í dag var ég að leiðsegja í fyrsta skipti á svæði 7, hef að vísu einu sinni lent þangað til veiða áður í skörun af svæði 2 og dýrin hlupu af svæði 2 yfir svæði 6 ag alla leið út á Fossárfell.
Jóhann Valdimar Helgason veiddi væna hreinkú 40 kíló rétt fyrir sunnan Líkárvötn á svæði 7 í dag.
Veiðiriffill Jóhanns var Remington 700 cal. 270, með 130 gr. Power point kúlu úr verksmiðjuhlöðnu Winchester skoti.
Færið var 124 metrar og skotið beint í hjartastað, hjartað var alveg í mauki, gjörónýtt!
Re: Veiði dagsins
Posted: 10 Sep 2012 10:52
by E.Har
Danni flottur, og tarfurinn líka

Ertu farin að fikra þig niður á firði
Kem austur í túr 2 á fimtudaginn.
Re: Veiði dagsins
Posted: 10 Sep 2012 13:10
by konnari
Veiðimeistarinn wrote:Jæja þetta er nu að verða hálfgert ættarmót í dag fór ég á veiðar með föður mínum Aðalsteini Aðalsteinssyni.
Hann skaut 105 kílóa fjögurra spaða tarf við Folavatn á Múla. Veiðiriffillinn er Remington 710 cal. 270 kúlan 130 gr. Semi Pointed úr Norma verksmiðjuhlöðnu skoti, uppgefin hraði við hlaup 957 m. sek.
Það má ekki á milli sjá hvort barnabarnabarnið í gær eða sá gamli í dag er roggnari en segja verður að skilt er skeggið hökunni.
Það þarf ekki alltaf að vera með fleiri hundruð þúsund krónu græjur til að fella hreindýr.....helv. er sá gamli flottur

Re: Veiði dagsins
Posted: 10 Sep 2012 15:53
by sindrisig
Ég sé að það er komið að úthlutunum á aukadýrum á svæði 4 og á svæði 8. Taldist til að það hefðu verið leitaðir vel á annað hundrað kílómetrar í Mjóafirði á fimmtudaginn. Sumir gengu yfir 30 km. þann daginn en í allt voru 7 að leita og fundu ekki sparð.
Re: Veiði dagsins
Posted: 10 Sep 2012 16:13
by Veiðimeistarinn
Það var ekki björgulegt veðrið í dag, ég gerði tvær tilraunir að fara upp úr Hrafnkelsdalnum til veiða, fyrst frá Aðalbóli komst upp á Kálfafellið þar var ófærð og blind bylur.
Gerði aðra tilraun að fara upp úr Skænudalnum rétt fyrir innan bæinn hjá mér, komumst inn að Tungusporði þá hamlaði ófærð og sami blind bylurinn.
Snæbjörn fór inn Fljótsdalsheiði inn og austur fyrir Snæfell, það var líka bylur, 50 metra skyggni og vegaskurðirnir við bundna slitlagið fullir af snjó.
Re: Veiði dagsins
Posted: 12 Sep 2012 20:55
by Gisminn
Hahaha ég googlaði textan og þetta er rússneskur skósali að reyna að selja okkur allskonar skó

Re: Veiði dagsins
Posted: 12 Sep 2012 23:37
by Veiðimeistarinn
Jón Gunnar Stefánsson veiddi 43 kíló hreinkú í Flatarheiði undir kvöld, veiðiriffill Jóns Gunnars var Sako 75 cal. 270 WSM, kúlan var 130 gr. Accubond hleðslan 60 gr af Norma 204 púðri sem gefur hraða uppá rúmlega 3000 fet samkvæmt töflu og færið var 166 metrar.
Re: Veiði dagsins
Posted: 12 Sep 2012 23:45
by Veiðimeistarinn
Pétur Bl. Gíslason veiddi vænan tarf sem vóg 110 kíló í Flatarheiðinni, veiðriffill Péturs er Sako 75 cal. 243 og færið um 100 metrar, kúluna setti hann undir eyrað.
Grenjandi rok var af vestri þegar þeir veiðifélagarnir Pétur og Jón Gunnar voru við veiðar í Flatarheiðinni í gær. Ekki viðraði til veiða fyrr en undir hádegi svo dagaur var að kvöldi kominn þegar bæði dýrin voru fallin og langur vegur heim að Vaðbrekku, allt frágengið og farið í koju um kl. 4 í nótt.
Re: Veiði dagsins
Posted: 12 Sep 2012 23:53
by Veiðimeistarinn
Kristján Már Kárason veiddi vænan tarf í Flatarheiðinni í dag, tarfurinn vóg 90 kíló sem kom nokkuð á óvart miðað við hornin á honum.
Veiðiriffill Kristjáns er Sauer 202 cal. 308, kúlan 180 gr. Nosler Accubond hlaðin með 44 gr af N-150 púðri sem gefur rétt um 2500 fet samkvæmt töflu.
Færið var um 80 metrar. Klára lungnaskot innskot aftur við þind eins og sést á myndinni og útskot frammi undir bóg,litlar skemmdir, nema helst á lungunum, fullkomið skot.
Re: Veiði dagsins
Posted: 13 Sep 2012 23:47
by Veiðimeistarinn
Kristmundur Skarphéðinsson og Magnús Jónasson veiddu sína kúna hvor í dag við Axará á Fljótsdalsheiði.
Veiðirifflar þeirra eru, Kristmundur með metriffilinn frá skotprófinu, Carl Gustaf cal. 6,5x55 hlaðinn 140 gr. A-Max kúlu og hann fékk 49 stig fyrir á skotprófinu.
Hér með er lýst eftir hverjum þeim sem var með jafnhátt skor og Kristmundur á skotprófinu eða hærra, ekki mikill möguleiki en hámarks skor var 50 stig.
Magnús með Jalonen Target cal. 6,5-284.
Re: Veiði dagsins
Posted: 14 Sep 2012 09:09
by Spíri
Skondið með metriffilinn! Sá sem skoraði hæst hjá Skotfélagi Vesturlands notaði einmitt gamlan svona riffil með "bónussjónauka"

. Riffilinn keyfti hann í hlað á sínum tíma greinilega eðalvopn

Svo voru menn að falla með græjum eins og sauer og sako trg!
Re: Veiði dagsins
Posted: 14 Sep 2012 09:16
by iceboy
Enda skiptir það ekki öllu máli hvernig vopn þú ert með.
Auðvitað þíðir ekkert að vera með ónýtt vopn en það er alveg sama hversu gott og flott vopn þú ert með ef þú ert ekki góð skytta. Það sem ég held að skipti á endanum loka máli er maðurinn sem heldur á rifflinum
Re: Veiði dagsins
Posted: 16 Sep 2012 23:34
by Veiðimeistarinn
Nú síðast í gær og fyrradag í Flatarheiðinni, (menn voru mishræddir þegar fari var upp og niður himnastigann frá Sturluflöt) var ég með Geldinghnappagengið á veiðum ásamt aukahnöppum, alls voru veidd fimm dýr á þessum tveimur dögum.
Geldingahnapparnir Jónas Þór Jóhannssonn veiddi 80 kílóa tarf,veiðriffill hans Sako Forrester cal. 243 og Brynjar Júlíusson veiddi 43 kílóa kú, veiðriffill hans Carl Gustaf cal. 6,5x55 kúlan 140 gr. A-Max.
Júlíus Brynjarsson aukahnappur veiddi 37 kílóa kú, veiðriffill hans Sako 75 Varmint cal. 243 með 100 gr. Norma Orix kúlu.
Ingólfur Birgir Bragason aukahnappur veiddi 97 kílóa tarf , veiðriffill hans var Sako Battue 300 Win.Mag. kúlan 180 gr. Noema Orix.
Hávar Sigurjónsson aukahnappur veiddi 38 kílóa kú, veiðiriffill hans J Jalonen Target cal. 6,4-284 kúlan 120 gr. Nosler Ballistic Tip.
Re: Veiði dagsins
Posted: 17 Sep 2012 11:02
by E.Har
Af því að það var verið að auglýsa eftir hærra skori en 49 þá náði engin hreinum 50.
Valur Righter byssusmiður á Ísafyrði

tók prófið á 2 riffla og 49 á báða.
Rösler í 300 win mag m. og Tikka 6-284 imp.
Báðir svona einhvað smekkaðir til.
Hann feldi svo éð mér í Viðfjarðarfjallinu.
með 300 hólknum. Snirtilæegt skot og já fyrir Sigga þar sem þetta er hanns þráður 150 gr ballastitipp.
