Page 5 of 5
Re: Veiði dagsins
Posted: 17 Sep 2012 12:59
by Stebbi Sniper
Er Valur fluttur? Síðast þegar ég vissi þá bjó hann á Ísafirði?
Re: Veiði dagsins
Posted: 17 Sep 2012 15:33
by E.Har
Stebbi hann býr enn á Íssafirði! Aðlastræti ef ég man rétt

Búinn að leiðrétta póstinn

Skil ekki hvernig mér tókst að flytja hann hreppaflutningum.
Fæ örugglega að heyra það í vikunni þar sem ég þarf að renna á hann.
Re: Veiði dagsins
Posted: 19 Sep 2012 13:52
by Veiðimeistarinn
Jæja, þá fer nú að hægjast um hjá mér og veiðitímabilið senn á enda runnið, kannski einn veiðimaður sem kom inn af biðlistanum í blálokin eftir.
Alfreð Atlason veiddi 40 kílóa kú á Múla í Múlahrauninu innaf Folavatninu.
Eins og sjá má er snjór á jörðu, og sumir fjallaslóðar orðnir hálf eða alófærir svo það er frekar harðsótt til veiða þessa síðustu daga.
Veiðiriffill Alfreðs er Parker Hale Midland cal. 243, kúlan 100 gr Core lock úr verksmiðjuhlöðnu Remington skoti.
Færið var 110 metrar, skotið fullkomið lungnaskot eins og sjá má á myndinni, vel aftalega og ofarlega, ofurlítið á ská fram og út aðeins neðar vegna þess að skotið var undan brekkunni.
Re: Veiði dagsins
Posted: 21 Sep 2012 17:47
by Veiðimeistarinn
Jæja þá er þessu hreindýraveiðitímabili lokið, það var strembið að mörgu leiti vegna veðurs. Gott veður var þó í byrjun tímabilsins en síðan brá til verri tíðar með þokum og úrkomu sem tafði veiðarnar með veiðilausum dögum og lengdi þá einnig oft á tíðum þar sem þoka lá oft yfir, fram undir og yfir hádegi.
Hvað um það kvótinn náðist furðulega þrátt fyrir hrakspár hjá mér og fleirum, aðeins virðast 13 dýr hafa verið eftir af kvótanum 7 tarfar og 6 kýr.
Síðasta daginn fór ég á veiðar með hreindýraleiðsögumennina og veiðimennina Aðalstein Hákonarson og Einar Þ. Axelsson sem fengu úthlutað leyfum að morgni síðasta dags veiðitímans.
Þeir skutu vænar kýr báðar geldar yst á Eyjabökkum neðan í Múlahrauni kýr Aðalsteins vóg 43 kíló en kýr Einars 47 kíló.
Veiðirifflar þeirra félaga eru, Aðalsteinn með gamla ,,Rassa" sem svo var kallaður í gamla daga en nú er búið að skinna hann upp og setja á hann nýtt hlaup furir nokkru síðan, Alpine Custom cal. 243 með 100 gr. kúlu.
Einar er aftur með Sako cal. 6,5-284 og 100 gr. Ballistic tip kúlu. færið var 135 metrar og þeir félagarnir veiddu kýrnar einum hvelli eftir að hafa talið í, eins og reyndar kom fram í kvöldfréttum sjónvarps í gærkveldi og aftur í tíufréttunum.
Sjöfréttir:
http://www.ruv.is/sarpurinn/frettir/200 ... -midnaetti
Tíufréttir, hreindýrafréttin er þegar 7 mínútur eru liðnar.
http://www.ruv.is/sarpurinn/tiufrettir/20092012-0
Re: Veiði dagsins
Posted: 21 Sep 2012 18:21
by TotiOla
Til hamingju með góðan endi á tímabilinu
Mig langaði þó að spyrja þig út í eitt.
Veiðimeistarinn wrote:Ég leigi ekki út sexhjól og nota ekki svoleiðis til veiða.
Er þetta þá hjólið hans Reimars?
Re: Veiði dagsins
Posted: 21 Sep 2012 18:30
by Veiðimeistarinn
Nei, þetta er hjólið hans Einars Axelssonar!
Re: Veiði dagsins
Posted: 21 Sep 2012 18:40
by TotiOla
Það er svoleiðis. Vissi ekki að hann ætti hjól kallinn

Bið að heilsa honum ef þú hittir eitthvað á hann á næstunni og þú mátt skjóta því að honum að það var nú ágætt að ég tók skotin í 284 með þegar ég kom austur

Hann var nú ekkert á því að hann þyrfti þau nauðsynlega hehehe.
Re: Veiði dagsins
Posted: 22 Sep 2012 22:53
by adalsteinn
Góður dagur á fjöllum í góðum félagsskap, takk fyrir mig.
Re: Veiði dagsins
Posted: 22 Sep 2012 23:40
by adalsteinn
http://www.ruv.is/sarpurinn/frettir/200 ... -midnaetti
Veiðimeistarinn bað mig um þetta ég er ekki svona sjálfhverfur

Re: Veiði dagsins
Posted: 23 Sep 2012 07:33
by Gisminn
Bara flott og flott aðstaða þarna
Re: Veiði dagsins
Posted: 23 Sep 2012 08:23
by Veiðimeistarinn
Aðalsteinn velkominn hérna, en mundu eftir að setja fullt nafn í fasta kveðju svo þú verðir tekinn alvalega hérna, hér eru allir fullurðnir með sitt fulla nafn í fastri kveðju neðanundir textanum
Þetta kemur alveg eins út slóðin sem þú settir inn, þetta fer alltaf á byrjunina á fréttunum í minni tölvu

Re: Veiði dagsins
Posted: 24 Sep 2012 11:37
by Veiðimeistarinn
Ja hérna hér, getur þetta verið
Bara farinn að draga ýsur

Re: Veiði dagsins
Posted: 24 Sep 2012 12:19
by Garpur
Sæll meistari, mig langar að þakka þér fyrir innleggin í haust, það hefur verið gaman að fylgjast með þessu hjá þér. Allavega fyrir mína parta.
kv
Re: Veiði dagsins
Posted: 25 Sep 2012 14:38
by Veiðimeistarinn
Eftir að hreindýraveiðtímabilinu lauk hef ég verið að fara yfir bókhaldið hjá mér og safna saman tölum úr skránum hjá mér.
Þar kemur í ljós að frá árinu 2001 hef ég fylgt alls 820 manns til hreindýraveiða, sumir komu jú ár eftir ár, þá eru ekki talin með árin 1991 til 2000 en þau ár hélt ég ekki skrá yfir þá sem ég fór með, þá var ég ekki búinn að eignast tölvu til að auðvelda utanumhaldið.
Það gerir tæpa 70 veiðmenn á ári að meðaltali.
Síðan kemur fram að ég hef fylgt alls 371 einstaklingi til veiða á þessum árum, þar af 11 konum, það hallar greinilega mjög á konurnar.
Re: Veiði dagsins
Posted: 25 Sep 2012 22:12
by Veiðimeistarinn
Já, góðan daginn

Þá er þessi þráður dottinn í 6000 flettingar

Re: Veiði dagsins
Posted: 28 Sep 2012 20:39
by xp800
Frábær þráður hjá þér V-meistari og vonandi verður framhald á þessu hjá þér næsta sumar.
Re: Veiði dagsins
Posted: 29 Sep 2012 16:15
by Lærlingur
Flottur þráður já og takk fyrir leiðsögnina í haust Sigurður Aðalsteinsson
Re: Veiði dagsins
Posted: 02 Oct 2012 00:23
by Veiðimeistarinn
Þessi frétt er á agl.is og fjallar um á myndrænan hátt hvar hreindýrin veiðast.
Það verður hins vegar að taka með í reikninginn að töluvert var um skörun milli svæða en þetta er miðað við hvað úthlutað var mörgum dýrum á hvert svæði, svo það gefur ekki alveg rétta mynd.
Það var til dæmis skörun í veiði tarfa milli svæðis 2 og 6 allan veiðitímann og margir tarfar af svæði 2 veiddir á svæði 6.
http://www.austurglugginn.is/index.php/ ... reindyrin_