Ég hef formað hylki þannig:
Set haglabyssupúður, u.þ.b. 12 grs af venjul. haglabyssupúðri í hylkið, tek það síðan , með púðri, og primer, og sting því á kaf í sæmilega þykkt kerti, þannig að það kemur "tappi" í hálsinn.
Síðan bara að skjóta þessu upp í loftið. Alls ekki innan dyra, því það er töluvert power í þessu.
Skaut einu sinni svona vaxtappaskoti í 10 ltr svarta plastfötu, sem er alveg þokkalega sterk. Fatan fór í döðlur

. Ég held að það þurfi svolitla pressu til að endurforma svona hylki, það er að segja ef þú kemur því í riffilinn á annað borð, og getur lokað á það.
Varðandi stillingu á kúludæjanum, þá þarf að passa það að stilla þetta rétt í byrjun. Það er gert þannig, að þú rennir TÓMU hylki upp í dæjann sem er hafður frekar ofarlega. Hafa stöng pressunnar niðri, og skrúfa síðan dæjann niður, þar til þú finnur fyrirstöðu. Þá á að skrúfa dæjann aðeins upp, svo öruggt sé að hann komi ekki við hylkisbrúnina. Þetta eru talsvert algeng mistök hjá byrjendum, og frekar hvimleið, því hylkin geta faril illa á þessu.
Frumskilyrði að renna tómu hylki upp í kúludæjann, og vera viss um að það snerti ekki .
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík