Harka kúlna fyrir .22lr

Allt tengt endurhleðslu. Kúlur, hylki, púður og ýmis tæki og tól
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
Baldvin
Posts: 35
Joined: 28 Jan 2013 23:34
Fullt nafn: Baldvin Örn Einarsson

Harka kúlna fyrir .22lr

Unread post by Baldvin »

Þetta er kannski ekki alveg spurning um endurhleðslu en þó skylt.

Er einhversstaðar hægt að nálgast upplýsingar um hörku kúlna í mismunandi .22lr skotfærum?

Ástæðan fyrir því að ég spyr er að ég er með riffil með túbumagasíni og ég hef tekið eftir því að óskotnar kúlur koma marðar út úr magasíninu, sem hlýtur að skerða nákvæmni verulega (enda munar miklu um nákvæmni á rifflinum hversu varlega ég hleð hann).

Ég hef verið að nota Lapua Club skot í hann og var semsagt að velta fyrir mér hvort hægt sé að fletta upp einhversstaðar hvort einhverjar kúlur séu harðari en aðrar í þessu dóti. Eins ef þið vitið um einhver standard velocity skot með koparhúðuðum kúlum eða kúlum flötum að framan eða svoleiðis eitthvað.

takk fyrir,
Baldvin Örn Einarsson
Reykjavík
Baldvin
Posts: 35
Joined: 28 Jan 2013 23:34
Fullt nafn: Baldvin Örn Einarsson

Re: Harka kúlna fyrir .22lr

Unread post by Baldvin »

Ég trúi því varla að enginn hafi neitt að segja um þetta ...
Baldvin Örn Einarsson
Reykjavík
Bc3
Posts: 156
Joined: 15 Jun 2012 16:15
Location: Grindavík

Re: Harka kúlna fyrir .22lr

Unread post by Bc3 »

er ekki málið að kíkja með hann til byssusmiðs frekar og lata hann kíkja á þetta þvi þetta getur ekki verið neitt annað en vandamal, trúi ekki að rifillin sé svona illa smíðaður.
Kv Alfreð F. Bjōrnsson
User avatar
skepnan
Skytta
Posts: 256
Joined: 01 Apr 2012 12:35

Re: Harka kúlna fyrir .22lr

Unread post by skepnan »

Sæll Baldvin, ég veit algerlega ekkert um hörku skota en ég mundi eftir því að Veiðihornið var með flöt skot á vefsíðunni hjá sér:
http://www.veidimadurinn.is/Default.asp ... 42&vID=835
Þau eru reyndar hraðari en standard. Vonandi duga þessi fyrir þig.
En heimasíður t.d. CCI er ekkert þar að finna?

Kveðja Keli
Þorkell D. Eiríksson
keli.skepnan@gmail.com
Fljótsdalur í Fljótshlíð
Baldvin
Posts: 35
Joined: 28 Jan 2013 23:34
Fullt nafn: Baldvin Örn Einarsson

Re: Harka kúlna fyrir .22lr

Unread post by Baldvin »

Takk fyrir þetta strákar. Ég vil síður setja hraðari skot en standard í riffilinn því að bæði er hann gamall og ég veit ekki hvað hann þolir og svo er ég að skjóta innanhúss þar sem hraðari skot eru illa séð.

Jú, það er möguleiki að fara með hann til byssusmiðs og láta skoða hann en ég held reyndar að þetta sé bara hönnunargalli. Til að hlaða riffilinn þarf að taka followerinn alveg úr magasíninu og troða honum svo á eftir skotunum. Ég veit reyndar ekki hvort það er bara hleðsuferlið eða bakslagið líka sem fer svona með skotin.
Baldvin Örn Einarsson
Reykjavík
Bc3
Posts: 156
Joined: 15 Jun 2012 16:15
Location: Grindavík

Re: Harka kúlna fyrir .22lr

Unread post by Bc3 »

Hvernig rifill er þetta?
Kv Alfreð F. Bjōrnsson
Baldvin
Posts: 35
Joined: 28 Jan 2013 23:34
Fullt nafn: Baldvin Örn Einarsson

Re: Harka kúlna fyrir .22lr

Unread post by Baldvin »

Marlin Model 99. Útlitslega eftirherma af M1 Carbine.
Baldvin Örn Einarsson
Reykjavík
Bc3
Posts: 156
Joined: 15 Jun 2012 16:15
Location: Grindavík

Re: Harka kúlna fyrir .22lr

Unread post by Bc3 »

Viltu ekki bara selja hann eins og hann er? :)
Kv Alfreð F. Bjōrnsson
Baldvin
Posts: 35
Joined: 28 Jan 2013 23:34
Fullt nafn: Baldvin Örn Einarsson

Re: Harka kúlna fyrir .22lr

Unread post by Baldvin »

Nei, nýbúinn að fá hann í hendurnar og var að kaupa nýjan bakslagsgorm og stuðpúða að utan til að reyna að hressa hann aðeins við. Ég vonast til að hann geti verið nokkuð góður í silhouettuna. :)
Baldvin Örn Einarsson
Reykjavík
Post Reply