Harka kúlna fyrir .22lr
Posted: 28 Feb 2013 13:57
Þetta er kannski ekki alveg spurning um endurhleðslu en þó skylt.
Er einhversstaðar hægt að nálgast upplýsingar um hörku kúlna í mismunandi .22lr skotfærum?
Ástæðan fyrir því að ég spyr er að ég er með riffil með túbumagasíni og ég hef tekið eftir því að óskotnar kúlur koma marðar út úr magasíninu, sem hlýtur að skerða nákvæmni verulega (enda munar miklu um nákvæmni á rifflinum hversu varlega ég hleð hann).
Ég hef verið að nota Lapua Club skot í hann og var semsagt að velta fyrir mér hvort hægt sé að fletta upp einhversstaðar hvort einhverjar kúlur séu harðari en aðrar í þessu dóti. Eins ef þið vitið um einhver standard velocity skot með koparhúðuðum kúlum eða kúlum flötum að framan eða svoleiðis eitthvað.
takk fyrir,