Hlutavelta Skotíþróttafélags Ísafjarðarbæjar.

GummiValda
Posts: 17
Joined: 05 Mar 2013 20:31
Fullt nafn: Guðmundur Valdimarsson

Hlutavelta Skotíþróttafélags Ísafjarðarbæjar.

Unread post by GummiValda »

Hlutavelta Skotíþróttafélags Ísafjarðar.
Skotíþróttafélag Ísafjarðar hefur undanfarið staðið í byggingaframkvæmdum á innanhús skotvelli við Torfnes á Ísafirði. Þessi framkvæmd kostar mikla peninga og þess vegna hefur félagið ákveðið að halda hlutaveltu til að hjálpa til við að standa straum af kostnaði við framkvæmdina.
Við fengum allnokkrar verslanir og fleiri til að styrkja okkur í þessu með vinningum og alls söfnuðust 51 vinningur. Þarna eru margir mjög veglegir vinningar. Miðaverðið er 1500 kr og einungis dregið úr seldum miðum.
Vonumst við því eftir því að sem flestir taki þátt og styrki okkur í þessu verkefni.
Nánari upplýsingar um hlutaveltuna má nálgast á heimasíðu félagsins http://www.123.is/si
Guðmundur Valdimarsson
Ísafirði
Sími 8614694
g.valda@simnet.is
GummiValda
Posts: 17
Joined: 05 Mar 2013 20:31
Fullt nafn: Guðmundur Valdimarsson

Re: Hlutavelta Skotíþróttafélags Ísafjarðarbæjar.

Unread post by GummiValda »

Þið megið gjarna láta þetta fréttast fyrir mig :D
Guðmundur Valdimarsson
Ísafirði
Sími 8614694
g.valda@simnet.is
User avatar
Jón Pálmason
Posts: 177
Joined: 16 Aug 2010 21:54
Fullt nafn: Jón Pálmason
Location: Sauðárkróki

Re: Hlutavelta Skotíþróttafélags Ísafjarðarbæjar.

Unread post by Jón Pálmason »

Sæll Guðmundur.

Er sjálfur löngu búinn að kaupa miða :)
Nú er bara að bíða og vona.
Vona að ykkur gangi vel með þetta.
Jón Pálmason
Með kveðju úr Skagafirði
User avatar
Spíri
Posts: 256
Joined: 25 Feb 2012 09:16

Re: Hlutavelta Skotíþróttafélags Ísafjarðarbæjar.

Unread post by Spíri »

Já Gummi, Ég er búinn að dreifa þessu til minna manna og kvenna :D
ps. þinn gamli (75) er að fara virkilega vel með Nosler bst 70grs. gat neglir á 100metrum með 44grs af vv-140. Endilega ef þú lumar á einhverjum hleðsluuppl. sem hann hefur lyst á, þá máttu sendu mér þær ;)
Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi
GummiValda
Posts: 17
Joined: 05 Mar 2013 20:31
Fullt nafn: Guðmundur Valdimarsson

Re: Hlutavelta Skotíþróttafélags Ísafjarðarbæjar.

Unread post by GummiValda »

Gott að heyra Þórður.
Ég var mest að nota 55gr nosler bt. VV N140 47gr.
Svo notaði ég 43gr af Norma 204 fyrir 100 gr Sierra spbt
Guðmundur Valdimarsson
Ísafirði
Sími 8614694
g.valda@simnet.is
GummiValda
Posts: 17
Joined: 05 Mar 2013 20:31
Fullt nafn: Guðmundur Valdimarsson

Re: Hlutavelta Skotíþróttafélags Ísafjarðarbæjar.

Unread post by GummiValda »

Nú er þetta alveg að detta út..... Dregið 30.05 kl 20.00

Á ekki að skella sér á miða?
Guðmundur Valdimarsson
Ísafirði
Sími 8614694
g.valda@simnet.is
Post Reply