Page 1 of 1

Endurhleðsluspurning

Posted: 27 Mar 2013 14:05
by Árni
Daginn drengir (og dömur ef einhverjar eru)

Ég var að byrja að hlaða sjálfur og tók eftir að primerinn stendur pínu út, langaði a vita hvort það væri eðlilegt eða í lagi?

Er að hlaða 6.5x47L, þetta er ekkert mikið og ég hefði í raun ekki pælt í þessu nema að ég var að bera þau saman við factory skot frá Lapua og þar er primerinn meirasegja aðeins ofaní (ef ég strýk yfir botninn þá myndar hann smá holu í stað þess að standa upp úr)

Er með CCI-BR-4 primers.
lapua1.jpg

Re: Endurhleðsluspurning

Posted: 27 Mar 2013 14:07
by Árni
Já og þetta er svona sama hvort sem ég nota pressuna (redding) eða primer töngina (hornady) til að setja þá í.

Re: Endurhleðsluspurning

Posted: 27 Mar 2013 14:40
by gylfisig
það er mjög æskilegt að þú setjir primerinn dýpra. Geri ráð fyrir að hylkið "ruggi" hjá þér þegar það stendur á sléttum fleti.
Í ný hylki er alltaf svolítið stíft að setja primera.
Þú ættir nú að geta stillt þetta einhvern veginn. Amk. get ég aðeins stillt þetta á primersetjaranum á pressunni sem ég nota til þess arna.

Re: Endurhleðsluspurning

Posted: 27 Mar 2013 16:43
by Stebbi Sniper
Mér finnst ágætt að setja primmerinn eftir tilfinningu (þýtt úr ensku "by feeling") með RCBS primmertöng. Þ.e. þrýsta honum upp í sætið og þegar þú finnur að hvellattan snertir botninn á primmer sætinu, þá stoppar þú.

Ég hef ekki orðið var við að hvellettan sé utarlega hjá mér, ég er samt með sömu primmera og þú og Lapua hylki, enda eini framleiðandinn sem framleiðir 6,5 x 47 hylki.

Re: Endurhleðsluspurning

Posted: 27 Mar 2013 16:52
by Árni
já ég held ég þurfi að láta skoða þessa hornady töng, hún stoppar við ákveðið átak, þeas ég get ekki kreist meira og hún fer ekki alveg í, ég fór hinsvegar að skoða pressuna eftir svarið hans gylfa og gat stillt það þar og núna er þetta betra, vagga ekki lengur.

Takk fyrir svörin

Re: Endurhleðsluspurning

Posted: 27 Mar 2013 23:45
by Stebbi Sniper
Ég hef reyndar ekki trú á því að það sé gott að setja primmerinn alltaf í sömu dýpt í hvellettu vasan. Ég held að hún eigi alltaf rétt að snerta botninn...

Mér finnst það lógíst að hún fari alltaf allveg inn að botninum á hvellettuvasanum, annars getur þú lent í því að pinninn byrji á því að ýta kvellettuni inn áður en hann sprengir hana...

Re: Endurhleðsluspurning

Posted: 27 Mar 2013 23:51
by maggragg
Mér sýnist á myndinni að það sé dæld í primernum. Ertu örugglega með réttann cylinder fyrir large primer. Virðist vera far eftir cylinder fyrir small primer. Primerinn verður að sitja aðeins neðar ein og á hinnu hylkinu. Þetta er ákveðið öryggisatriði líka að þeir standi ekki út.

Ég bæði hreinsa primer sætið og reame það líka með sérstöku tóli til að slétta það og gera fínt.

Re: Endurhleðsluspurning

Posted: 28 Mar 2013 20:56
by oskararn
Ha, er ekki small primer í þessu villikattar kaliberi?
Þarf ekki að leita betur?

Re: Endurhleðsluspurning

Posted: 28 Mar 2013 21:07
by gylfisig
Jújú..líklega andskoti erfitt að troða large primer í það :D

Re: Endurhleðsluspurning

Posted: 10 May 2013 20:43
by Veiðir
Sæll Árni.
Það er EKKI eðlilegt að ný hvellhetta standi út úr hylkinu og getur verið hættulegt.
Ég geri ráð fyrir að þú sért með réttar hvellhettur fyrir rétt hylki.
Og ég geri ráð fyrir að (ef þetta eru ekki ný hylki) þú þrífir hvellhettuhólfið áður en þú setur nýja hvellhettu í. Einnig gæti eitthvað verið athugavert við töngina sem þú ert að nota.
Pinninn sem gengur upp og niður í tönginni er líklega "kúbtur" á öðrum endanum og gæti hann snúið vitlaust í henni.
Ef þetta hjálpar ekki, þá er eitthvað mikið annað að hylkjunum hjá þér.
Hvellhettan á að vera staðsett eins og á hylkinu til hægri, aðeins fyrir innan botninn.

Re: Endurhleðsluspurning

Posted: 10 May 2013 22:20
by sindrisig
Þetta er ekkert nýtt af nálinni, það er nú þannig að það virðist enginn pinni vera eins í þessu tangardóti. Smíðaði mér lengri í RCBS hvellhettutöngina mína og veit að það hafa aðrir gert það sama.

Þarf oft að snúa hylkinu og kreista aðeins betur nokkru sinnum til að fá hvellhettuna alveg á sinn stað. Ekkert hættulegt við að skjóta þessu, í versta falli er stíft að loka lásnum en á meðan hann lokast þá skiptir þetta ekki máli.

Re: Endurhleðsluspurning

Posted: 10 May 2013 23:09
by johann
Getur verið að pinninn í tönginni snúi öfugt? annar endinn er sléttur en hinn er örlítið kúptur - gæti skýrt að manni sýnist hvellhettan dælduð.

Re: Endurhleðsluspurning

Posted: 10 May 2013 23:37
by Árni
Já ég prófaði nú ekki að skjóta svona úr þessu.
Pinninn snýr rétt en töngin er eitthvað ekki í réttum hlutföllum. Ég quickfixaði þetta með því að leggja lítinn járnpinna þarna inní og teipa svo yfir hann, þá fer pinnin ofar og þetta er eins og það á að virka.
Þarf bara að laga þetta endanlega við tækifæri, sést kannski ekki of vel á myndinni en læt hana fylgja með samt.

Re: Endurhleðsluspurning

Posted: 12 May 2013 00:25
by gylfisig
Ein ábending, sem ætti að að hafa í huga; það er auðvelt að eyðileggja hylkin, með þvi að stilla diann rangt, eða öllu heldur "decapping pin " pinnann sem gengur niður í gegnum diann.
Ef þessi pinni, er skrúfaður of neðarlega, þá er afl pressunnar nægilega mikið til þess að þrýsta botni hylkisins of mikið upp í kúluna (expander ball) sem er ofan við úrrekspinnann. Þá kemst primerinn einfaldlega ekki alla leið ofan í sæti sitt.
Þetta eru slæm byrjendamistök, og oft erfitt að átta sig á því hvað hefur skeð.

Re: Endurhleðsluspurning

Posted: 12 May 2013 00:44
by Jenni Jóns
Mældu dýptina á vasanum og þykktina á hvellettunni þá ættiru að sjá hvað það er mikið fríbil
Hvellettan á í öllum tilfellum að sitja í botninum á vasanum

Re: Endurhleðsluspurning

Posted: 12 May 2013 08:45
by Aflabrestur
Sælir.
Ein spurning hljóar kænski heimskulega en af fenginni reynslu, ert þú ekki örugglega með réttan "schell holder" ? Hef lent í svipuðu vandamáli þegar það víxluðust holderar milli dieasetta hjá mér. :oops: