Page 1 of 1
338Norma
Posted: 10 Apr 2013 17:15
by Spíri
Nú hefur sá stóri verið skapaður

en þetta verkefni hófst hjá árið 2009 er ég keypti long action Remington 700. Upphaflega planið var að útbúa riffil sem ætlaður væri fyrir "löngu" færin 1000 metra og lengra. Á leiðinni að settu marki hefur mikið vatn runnið til sjávar og mikið verið pælt, en upphaflega planið var að kaupa almennilegt hlaup á lásinn og fá sér svo Bell and Karlson skepti en er ég sá Grs skeptin í hlað varð lendingin að fá sér svoleiðis.
En verkfærið inniheldur: Rem 700 long action lás, Lothar Walther hlaup, Grs skepti, Accuracy International magasín og botnplötu, Sako útdragara og ofan á herlegheitunum er svo Night Force 8-32x56 sjónauki og eru hringirnir og basinn einnig frá Night Force.
Ég ætlaði mér alltaf að hafa riffilinn í 300 Win Mag, en er ég sá að það var möguleiki að gera hann að 338 Norma var ég ekki lengi að skipta um skoðun

Arnfinnur Jónsson sá um samsetningu og smíði og er handverkið hjá kappanum hreint listaverk, en þess skal getið að hann smíðaði breikið á hlaupið.
Re: 338Norma
Posted: 10 Apr 2013 21:03
by Gísli Snæ
Glæsilegur riffill hjá þér. Næst tekur maður sig til að býr til eitthvað svona stórt.
Redduðu Hlað menn botnplötunni og magasíninu fyrir þig eða pantaðir þú það sjálfur - þá hvar?
Re: 338Norma
Posted: 10 Apr 2013 22:01
by Pálmi
Hrikalega flottur, djöfull langar mig líka í svona

Re: 338Norma
Posted: 10 Apr 2013 22:28
by Spíri
Góður Pálmi þú þarft að fara á pósthúsið á föstudag
Gísli ég sendi þér einkaskilaboð.
Re: 338Norma
Posted: 11 Apr 2013 00:10
by Gísli Snæ
Fékk þau ekki
Re: 338Norma
Posted: 11 Apr 2013 09:58
by konnari
Þórður ! Smá forvitni.......hvaða twist er í hlaupinu ?
Re: 338Norma
Posted: 11 Apr 2013 10:00
by Tf-Óli
Flottur.
Ég sé fyrir mér big bore mót á lækjartúninu. Ég verð bara dómari, enda er ég bara með smákúlubyssur í samanburði við þig og vin okkar

Re: 338Norma
Posted: 11 Apr 2013 16:57
by Spíri
Tvistið er 1/10" og er hlaupið 26 tommur
Re: 338Norma
Posted: 11 Apr 2013 18:59
by karlguðna
Til hamingju með flottan grip.
Smá forvitni, 338 lapua er það sama hylki?
er hann að lemja mikið með brake ?
hvað kostar svona "alvöru" pakki ?
Re: 338Norma
Posted: 12 Apr 2013 06:42
by Spíri
Þetta er ekki sama hylkið, Norma hylkið er aðeins styttra en það mjókkar ekki eins fram og Lapua hylkið, þó það sé voðalítill sjáanlegur munur.
En skv norma hleðslubæklingnum er .338 Norma að senda Sierra MK300grs á 2604fps miðað við max hleðslu á móti að þá er .338 Lapua að senda sömu kúlu á 2589fps miðað við max hleðslu. Í báðum tilvikunum var notast við Norma MRP púður og var max hleðsla sú sama, 80grs.
Þannig að þessi tvö cal eru nánast á pari.
Varðandi verðið, þá var hann hverrar krónu virði

en allavega ódýrari en Sako TRG og dýrari en Sako Hunter

Re: 338Norma
Posted: 12 Apr 2013 09:55
by E.Har
Enn vantar mig like hnapp
Glæsileg græja og til lukku.
Re: 338Norma
Posted: 12 Apr 2013 21:45
by Hilmir
Ég mundi nú aldrei setja 80 gn af púðri í .338 LM hjá mér, það er bara rúmlega hálfur brúsi.
Skv. QuickLoad þá kem ég Sierra HPBT 300 gn á 2800 f/s. Reyndar með 30" hlaup.
Re: 338Norma
Posted: 12 Apr 2013 22:46
by Gisminn
Þetta er bara flott hjá þér Þórður og gaman að .ví þegar menn fylgja hjartanu og eru líka ánægðir með það
Til lukku
Re: 338Norma
Posted: 13 Apr 2013 00:10
by guffi
alltaf gamann að sjá hvað menn eru að gera en af hverju get ég ekki stækkað þessar myndir?
Re: 338Norma
Posted: 15 Apr 2013 09:23
by Spíri
Hérna kemur mynd sem er vonandi hægt að stækka.
Re: 338Norma
Posted: 15 Apr 2013 10:13
by Garpur
Til hamingju með þetta, smekkleg samsetning og gæðin örugglega eftir því.