Nú hefur sá stóri verið skapaður

en þetta verkefni hófst hjá árið 2009 er ég keypti long action Remington 700. Upphaflega planið var að útbúa riffil sem ætlaður væri fyrir "löngu" færin 1000 metra og lengra. Á leiðinni að settu marki hefur mikið vatn runnið til sjávar og mikið verið pælt, en upphaflega planið var að kaupa almennilegt hlaup á lásinn og fá sér svo Bell and Karlson skepti en er ég sá Grs skeptin í hlað varð lendingin að fá sér svoleiðis.
En verkfærið inniheldur: Rem 700 long action lás, Lothar Walther hlaup, Grs skepti, Accuracy International magasín og botnplötu, Sako útdragara og ofan á herlegheitunum er svo Night Force 8-32x56 sjónauki og eru hringirnir og basinn einnig frá Night Force.
Ég ætlaði mér alltaf að hafa riffilinn í 300 Win Mag, en er ég sá að það var möguleiki að gera hann að 338 Norma var ég ekki lengi að skipta um skoðun

Arnfinnur Jónsson sá um samsetningu og smíði og er handverkið hjá kappanum hreint listaverk, en þess skal getið að hann smíðaði breikið á hlaupið.
Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi