155 grs A- max

Allt tengt endurhleðslu. Kúlur, hylki, púður og ýmis tæki og tól
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

155 grs A- max

Unread post by gylfisig »

Þessa kúlu hef ég verið að setja í nokkra 308 riffla, af mism. tegundum, og skemmst er frá að segja að hún er að virka afar vel.
44,0 - 45,0 grs (Max) af N-150 er hleðsla sem er að skila mjög svo ásættanlegum grúppum úr venjulegum veiðirifflum, s.s. Sako, Tikka, og Mossberg, svo einhverjir séu nefndir.

Kom svolítið á óvart hvað hlaðslan, og þá sérstakl. kúlan er að virka jafnavel, i þessa riffla.
Attachments
06052013409.jpg
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
KarlJ
Posts: 23
Joined: 15 Feb 2013 09:15
Fullt nafn: Karl Jónsson

Re: 155 grs A- max

Unread post by KarlJ »

Sæll Gylfi, hefur þú prófað N-140 með þessari kúlu. Veistu um einhvern sem hefur fellt hreindýr með þessari kúlu.
Kv. Kalli
Karl Jónsson. Akureyri.
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

Re: 155 grs A- max

Unread post by gylfisig »

Ég hef ekki notað N-140 við þessa kúlu. Reyndar hefur það verið regla hjá mér með 308 win. að við þyngri kúlur en 150 grs. nota ég N-150
Við 150 grs. kúlur nota ég N-140.
Ég þekki engan sem hefur skotið hreindýr með 155 A- max en kemur ekki á óvart þó að einhverjir noti hana við þær veiðar.
Ég gæti hugsað mér að nota hana í TRG-inn minn.
Það eru góð kaup í þessum kúlum. Verðið á 155 grs kúlunni, er 7990 kr/100 st. og oftar en ekki fær maður góðan afslátt í Ellingsen.
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
Hrafnjo
Posts: 55
Joined: 03 Jan 2011 17:33

Re: 155 grs A- max

Unread post by Hrafnjo »

Sælir

A-max er frábær kúla, er að nota hana í 6.5x47 með góðum árangri.

Er einnig mjög spenntur að sjá hvernig hún mun fara með hreindýr. Fyrst menn eru að nota 100gr Ballistic Tip úr 6.5x284 og bógskjóta þá hef ég trú á því að þessi muni virka fínt. Menn eru margir hverjir að nota hana á dádýr í ameríkuhreppi og líkar vel.

Kv,
Hrafn
Kveðja,
Hrafn Jóhannesson
konnari
Posts: 343
Joined: 12 Mar 2012 15:04

Re: 155 grs A- max

Unread post by konnari »

Það stendur skýrum stöfum á heimasíðu Hornady að A-Max kúlurnar eru EKKI ætlaðar til veiða !

http://www.hornady.com/store/30-Cal-.308-155-gr-A-MAX/
Kv. Ingvar Kristjánsson
Hrafnjo
Posts: 55
Joined: 03 Jan 2011 17:33

Re: 155 grs A- max

Unread post by Hrafnjo »

Sælir

Veit hvað Hornady segir um þessa kúlu. Hef samt notað hana á svartbak, ref og gæs. Sé lítinn mun á þeim gæsum eða refum sem ég hef skotið með 120gr BT og svo 123gr A-max. Einnig breytir það ekki þeirri staðreynd að menn nota þessa kúlu í margt annað en Hornady mælir með og líkar það vel.

Þetta er þrusunákvæm kúla og það væri gaman að vita hvernig hún fer með stærri bráð. Haus og hálsskot væru sjálfsagt í góðu lagi en spurning hvernig hún færi með dýrið ef skotið væri á lungna og hjartasvæðið með viðkomu í rifjum.

Kv,
Hrafn
Kveðja,
Hrafn Jóhannesson
User avatar
E.Har
Posts: 624
Joined: 27 May 2012 23:26
Location: Reykjavík
Contact:

Re: 155 grs A- max

Unread post by E.Har »

A-MAX®

Designed by match shooters for match shooters. With an ultra-low drag tip, our A-Max match bullets feature an aerodynamic secant ogive that delivers flat trajectories with excellent uniformity and concentricity. Find out more...
•Rapid, explosive expansion with limited penetration.
•Recommended muzzle velocity range: 2000+ fps.
•These bullets are not recommended for hunting.


InterBond®

The Hornady InterBond® features a bonded core and streamlined design that delivers ultra-flat trajectories and deep penetration and 90%+ weight retention. It's terminal performance is devastating across a wide velocity range. Find out more...
•Rapid, controlled expansion with deep penetration.
•Recommended muzzle velocity range: 2000 to 3600 fps


Veit alveg hvor er í meira uppháldi hjá mér þó hún sé ekki skilgreind sem veiðikúla.
Annars er Hornadey með mikið af skmtilegum kúlum núna eins og v-max nts og sst

Ljótustu sár sem ég hef séð gagnvart kjötskemdum eru eftir bondaðar veiðikúlur sem hitta á gróft bein á mikklum hraða. Finnst þær jafnvel ljótari en eftir varmintkúlur. Svo enn og aftur, staðsetning kúlu skiptir meira máli en hver hratt hún opnast!
E.Har

Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja ;-)
Post Reply