Glæsilegt framtak
gaman að sjá kvaða græjur menn eru að nota og einnig gaman að sjá skorin.
Kannski að maður treysti sér til að skjóta á móti þessum í góðu tómi.
Í það minnsta frábært, svo þarf þetta að breiðast um landið bæði norður og vestur og enda sem landsmót
E.Har
Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja
Smá leiðrétting Einar, þó þetta skipti náttúrulega engu máli þannig séð. En réttara væri að segja að skaust menn héldu mótið að hætti skotkóp manna.
Þetta mót er hugarfóstur varaformans Skotfélags Kópavogs, Jóns Péturssonar mínka og refabana. Ég hef verið viðloðandi þetta mót allt frá upphafi og skrifaði upphaflegu reglurnar eftir spjallfund þeirra sem stóðu að fyrsta mótinu.
Skaust menn höfðu svo samband við Jón Pétursson til þess að fá upplýsingar um mótið og upphaflegu skífuna. Þeir hafa svo þróað sínar reglur eftir sínu höfði en mér sýnist textinn minn vera á heimasíðu þeirra með örlitlum breitingum.
Þeir hafa t.d. þróað annað stigakerfi sem er kannski sanngjarnara fyrir þá sem hitta vel á lengri færunum, skotið standandi í eitthverjum mótana á tveimur færum ef ég man rétt o.s.frv. á meðan við höfum haldið meira í einfaldleikan og breitt reglunum mjög lítið frá fyrsta mótinu.
Ef menn hefa áhuga á því að halda svona landsmót þá er ég til í þá umræðu, en Jón Pé hefur oft talað um að það væri gaman að halda svona mót á sama tíma í öllum landshlutum, eftir sömu reglum.
Gallinn er að erfitt getur verið að samræma veðurskilirði.