Þá er maður kominn heim eftir frábæran túr austur, og langar mig að deila með ykkur upplifuninni af þessum stórskemmtilega túr. Þar sem ég var með tarf á svæði sex þetta árið var ekið á sunnudag í Breiðdalinn þar sem við gistum, en við vorum tveir með dýr, ég með tarf og félgi minn með kú. Við tókum daginn snemma á mánudag og var ræs kl, 04:00 enda áttum við stefnumót við leiðsögumanninn okkar Hann Rúnar Ásgeirsson á Ásunnarstöðum í Breiðdal kl 05:00. Ókum við með Rúnari upp á Öxi því þar var ætlunin að veiða enda hafði frést af dýrum þar, en í stuttu máli þá sá Rúnar dýr mjög fljótlega en það voru menn komnir á undan okkur í þau, (greinilega fleiri sem vakna snemma

) og áttum við ekki séns á að fara í þá hjörð þar sem við misstum af henni þegar að þeir sem voru á undan okkur voru búnir að skjóta. Þá hófst mikil leit af af dýrum en í stuttu máli sáum við ekki dýr fyrr en um kl 11:00. og voru það þrír tarfar sem voru í töluerðri fjarlægð frá okkur og var tekin ákvörun að freista þess að ná einum af þeim. Hófst þá mikill eltingarleikur niður í dalbotn yfir á og svo upp hinum megin til að komast fram fyrir tarfana, eftir um ca. 30 mín hlaup komst ég í færi og náð að fella minn gaur, og var hann tekinn á 330 metrum. Reyndist þetta hinn vænsti tuddi og vigtaði hann 101kg þegar búið var að flá og snyrta.
Þá hófst leitin af beljunni og fundum við ekki beljuhjörð fyrr en kl.18:00 og var þá búið að brölta miklar vegalengdir, voru menn að verða svartsýnir að beljan myndi ekki fynnast þann daginn. En það gékk mjög hratt fyrir sig að ná beljunni, og var búið að fella hana innan við 30 mín frá því hjörðin sást fyrst, myndarkú sem vgtaði 40kg þegar búið var að flá og snyrta, en beljan var tekinn á 80 metrum sléttum. Komum við svo niður á verkunarstað um kl. 23:00 þar sem dyrin voru fláð og vigtuð.
Rifflarnir sem notaðir voru í þessar veiðar voru rem 700 6mm.284 á tarfinn og svo lánaði ég félaga mínum sako75. 243 á beljuna.
Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi