Allt tengt endurhleðslu. Kúlur, hylki, púður og ýmis tæki og tól
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
Ég sé og veit að þau eru ekki alveg eins en ég sé hinsvegar að munurinn er mjög lítill, aðallega lengdarmunur. Lee classic loader er bara neck die eftir því sem ég kemst næst og því ætti ekki að þrengja mikið að boddíinu. Axlirnar á 222 eru .357 í þvermál en .354 á 223 hylkinu. Er það ekki eini staðurinn þar sem allt gæti setið fast og orðið til vandræða eða er bara algjör vitleysa að vera að spá í þessu?
sælir.
þetta er eh. sem ég mundi ekki grauta í af fenginni reynslu. það þarf ekki meira en rangt stilltan die til allt sitji fast á verstu stundu.
Ég hef séð skot sitja fast í miðju skotprófi og það svo rækjilega að það stóð allt fast þar til tekin var sjensin á því að útdragarinn héldi og slegið á handfangið með spítukkubb þá losnaði draslið, ástæðan hylkið var ekki almennilega "siseað" alla leið. Augljóslega féll próftakinn á prófinu.
Findu þér frekar réttu græjurnar þetta er til út um allt kosta klink á ebay ef þú finnur þetta ekki hér heima, það er svo einfallt í þessum málum ef þú ert ekki 100% viss sleftu því.
kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
Sammála Jóni hér... þetta er eitthvað sem ég myndi ekki grauta í! Það væri dæmalaust vitlaust að sprengja lásin á svona tilrauna starfsemi. Það er mikið betra að redda sér bara die-a sem passar.