Page 1 of 1
Nýtt 6.5 mm hylki - 26 Nosler
Posted: 16 Jan 2014 20:52
by Sveinn
Nosler auglýsti í haust að fyrirtækið myndi setja á markað nýtt 6,5 mm hylki, 26 Nosler. Hylkið átti að þeyta 129 gr AccuBond LR á 3400 fps og vera eitt flatasta hylkið í flórunni, Max Point Blanc Range (MPBR) upp á 415 yd (374 m). Engar frekari upplýsingar voru gefnar í haust en hylkið var kynnt á SHOT sýningunni í Vegas í vikunni. Búið að samþykkja hylkið hjá SAAMI en engar almennilegar upplýsingar um hylkið gefnar nema lítið málsett teikning.
Menn eru að giska á að þetta sé blendingur af 300 Rem Ultra Mag (RUM) og 30-06, allavega sama OAL eins og 30-06. Vatnsrúmmál 26N er 93 gr þannig að þetta er Magnum hylki án beltis, í 30-06 lengd.
Frekari upplýsingar á
http://www.26Nosler.com sem var opnuð í vikunni. Menn nokkuð vissir að þetta verði duglegur hlaupbrennari... Nosler kynnti líka riffil (þeir framleiða nokkrar týpur í dýrari kantinum) fyrir þetta hylki. Nosler framleiðir kúlur, brass og riffla þannig að það eru einhverjar líkur að þetta hylki nái einhverri útbreiðslu.

- 26N vs 300rum vs 30-06 S.jpg (36.77 KiB) Viewed 5145 times
Re: Nýtt 6.5 mm hylki - 26 Nosler
Posted: 17 Jan 2014 00:04
by gylfisig
Hmm,,, örugglega flatt.. örugglega hlaupabrennari.
Re: Nýtt 6.5 mm hylki - 26 Nosler
Posted: 18 Jan 2014 14:25
by agustbm
Sælir,
Hér má sjá samanburðinn á 6.5x47 vs 26 Nosler :
Re: Nýtt 6.5 mm hylki - 26 Nosler
Posted: 18 Jan 2014 14:35
by agustbm
Og með helstu málsetningum :
Re: Nýtt 6.5 mm hylki - 26 Nosler
Posted: 18 Jan 2014 14:52
by Veiðimeistarinn
Er þetta ekki svipað og 6,5-06 A I
Re: Nýtt 6.5 mm hylki - 26 Nosler
Posted: 18 Jan 2014 14:56
by agustbm
Sælir,
Kannski slagar AI hylkið eitthvað uppí þetta. Þó er þetta heldur stærra.
kv,
Re: Nýtt 6.5 mm hylki - 26 Nosler
Posted: 18 Jan 2014 20:16
by Kristmundur
Virðist vera byggt á .404 Jeffrey eins og flest þessi nýju og sveru hilki.
Re: Nýtt 6.5 mm hylki - 26 Nosler
Posted: 18 Jan 2014 21:36
by Veiðimeistarinn
Kristmundur, hver er þá munurinn á þessu hylki, 26 Nosler og 6,5-06 AI ?
Re: Nýtt 6.5 mm hylki - 26 Nosler
Posted: 19 Jan 2014 02:59
by Kristmundur
Munurinn á 26 Nosler og 6.5-06 AI er mikill ef eins og eg held að það sé byggt á Jeffrey hylkinu.
Þá tekur Nosler hylkið um 85+ grains af vatni á móti ca.72 í 06 hylkinu.
Re: Nýtt 6.5 mm hylki - 26 Nosler
Posted: 19 Jan 2014 14:50
by Sveinn
26 Nosler er 13,5 mm í þvermál (botn) borið saman við 12,01 mm á 6.5-06AI, lengdin á 26N er 65,8 mm miðað við 63,3 mm á 06 hylkinu. 6.5-06AI er með 40° halla en ég hef ekki séð axlahalla á 26 Nosler. Ef það er byggt á 300 RUM hylkinu (sem aftur er byggt á 404 Jeffery) þá ætti hallinn að vera 30°.
Samkvæmt 26Nosler.com er vatnsrýmdin 93 gr í 26N en ca 68 gr í 6.5-06AI.
Mynd af nokkrum hylkjum til samanburðar:
Re: Nýtt 6.5 mm hylki - 26 Nosler
Posted: 20 Jan 2014 07:42
by Veiðimeistarinn
Mitt 6,5-284 hylki sýnst bara ,,sjortari" við hliðina á 26 Nosler á þessari mynd
Ég er sennilega barasta kominn í stubbafélagið með Gylfa og Stefáni

Re: Nýtt 6.5 mm hylki - 26 Nosler
Posted: 20 Jan 2014 10:41
by Stebbi Sniper
Veiðimeistarinn wrote:Mitt 6,5-284 hylki sýnst bara ,,sjortari" við hliðina á 26 Nosler á þessari mynd
Ég er sennilega barasta kominn í stubbafélagið með Gylfa og Stefáni

Ha ha ha...

Góður
Það er bara spurning hvort við tökum við þér í stubbafélagið... Við Gylfi sættum okkur ekki svo glatt við einhverja meðalmensku...

Re: Nýtt 6.5 mm hylki - 26 Nosler
Posted: 06 Feb 2014 17:52
by ivarkh
Þeir sem vilja skoða 26 Nosler geta kíkt á
http://www.26nosler.com/ en þar eru þeir með smá kynningu á þessu... Kemur fram að hægt er að ná 380m dauðahring sem er ótrúlega gott. Spurning hver verður fyrstur til að prófa þetta hérna heima.