Page 1 of 4
Tveir rifflar í allt?
Posted: 17 Jan 2014 20:47
by Freysgodi
Sælir meistarar,
Nú langar mig að fá álit ykkar á eftirfarandi vandamáli:
Ég er riffillaus eftir að hafa að hafa selt 6.5x55 Sauer í svartsýniskasti í fyrra. Nú er ég allur að ókyrrast enda tófustofninn í sögulegu hámarki og ég fer að detta inn á 5 ára reglunni í hreindýrið.
Núverandi plan er að kaupa einfaldan léttan veiðiriffil í einhverju heppilegu hreindýracaliberi. Nota úr honum lásinn ofan í stillanlegt skefti (mér finnst óeðlilegt að skjóta úr nokkuri byssu - rifli eða haglabyssu - nema með kinnina almennilega á skeftinu) og kaupa á hann þungt rústfrítt hlaup í nákvæmu og hröðu varmint caliberi.
Þetta þunga hlaup myndi vera á rifflinum alla tíð - nema rétt á 5 ára fresti að ég fengi úthlutað hreindýri eða færi erlendis á einhverjar veiðar sem krefjast kraftmiklar kúlu - að ég myndi setja létta orginal hlaupið á hann.
Nú langar mig gjarnan að heyra frá ykkur hvaða tvö caliber kæmu helst til greina. En hér eru mínar núverandi pælingar í þá veru:
Létt veiðihlaup:
270
6.5x55,
6.5x57
308
eða bara hvað sem er 6.5 og yfir.
Ég geri frekar litlar nákvæmnis kröfur á létta hlaupið en það þarf f.o.f. að vera praktískt m.t.t. lítil falls, vindstöðuleika, kúlu-úrvals og úrvali á tilbúnum skotum.
Þungt varmint hlaup:
243
2506
22-250
+fleiri
Hér er nákvæmni og lítið fall og vindrek ( í þessari röð?) mikilvægustu eiginleikarnir - vil geta sett krossið í mitt dýrið og hleypt af - ekkert yfirhald eða slíkt, ef hjá því verður komist. Væri tilbúin að hlaða eða láta hlaða í þetta. Væri hugsað f.o.f. í ref en myndi vilja geta skotið gæs (í heilu lagi). Myndi e.t.v. detta svolítið inn í pappaskotfimi i - f.o.f. til að sannfæra mig að græjan væri eins góð og hún getur orðið.
Augljóslega þyrftu þessi tvö caliber að eiga samleið í sama lásnum og því e.t.v. einhver takmörk sett. Svo er ekki bannað að stinga upp á því að halda sig bara við eitt caliber - en ég veit að ég verð aldrei sáttur ef ég tel að ég hefði getað valið eitthvað "betra".
með veiðikveðju,
J ó n V a l g i e r s
Re: Tveir rifflar í allt?
Posted: 17 Jan 2014 21:07
by Spíri
Ég er buinn að eiga nokkra riffla í gegnum tíðina og búinn að leyta mikið af hinu eina rétta cal,eftir miklar pælingar og prófanir er ég kominn með CALIBERIÐ en það er 6mm284 gríðarlega hratt og mjög nákvæmt allavega að mínu mati. Miðað við þær forsendur sem þú gefur myndi ég fá mér Tikka t3 lite ryðfrían í cal .243 láta rýma orginal hlaupið í 6mm284 og fá mér þungt aukahlaup í 308win fyrir pappann og svo setja þetta í GRS hunter skefti. En þetta er pakki uppá marga peninga og hreinlega spurning að fá sér Blaser og geta skift um hlaup auðveldar en nærbuxur

Re: Tveir rifflar í allt?
Posted: 17 Jan 2014 21:32
by maggragg
Rössler Titan 6 býður uppá skiptihlaupsmöguleika.
Þetta eru þau hylki sem eru í boði hjá þeim:
TITAN 6®: .243Win. | 6,5x55Se | 6,5x57 | 6,5x65RWS | 7mm-08Rem. | 7x57 | .308Win. | .358Win. | 8x57IS | 25-06Rem. | .270Win. | 7x64 | .30-06Spring. | 6,5x47Lapua | 6,5-284Norma | 9,3x62 | 8,5x63Reb | 8x68S | 6,5x68 | 7mmRem.Mag. | .300Win.Mag. | .375Ruger | .270WSM | .300WSM; | .338Win.Mag.
Re: Tveir rifflar í allt?
Posted: 17 Jan 2014 21:46
by Jenni Jóns
Miða við þessar forsendur þá held ég að þú ættir að fá þér 6,5x284 fyrir bæði hlaupin og skjóta svo mis þungum kúlum eftir því hvað þú vilt gera á hreindýr getur notað Nosler 129 gr ABLR og pappan getur gatað með þyngstu scenar kúlunum svo kemur 100 BT sterk inn á Varmit og svo er yfirleitt hægt að fara út í búð og kaupa tilbúin skot ef þig vantar.
Re: Tveir rifflar í allt?
Posted: 17 Jan 2014 21:58
by sindrisig
Einn möguleikinn er að fara í 7mm rem mag og nota hann í allt. Hvaða pæling er þetta með að skipta um hlaup? Bara vesen að mínum dómi. Sammála Jenna, 6,5x284 dugar í allt, líkt og 7'an.
Ég fór nú að spá í þennan 6,5 Nosler, kannski ættir þú að hinkra aðeins og taka hann til kostanna. 370 metrar á dauðahringnum er nú helvíti gott.
Re: Tveir rifflar í allt?
Posted: 17 Jan 2014 22:08
by Freysgodi
Takk fyrir skemmtilegar undirtektir. Veit svosem ekki alveg með hlaupaskiptin en eins manns vesen er annars manns skemmtun.
Re: Tveir rifflar í allt?
Posted: 17 Jan 2014 22:58
by Pálmi
Sammála 7mm mag, nota 120 gr kúlu í tófu og gæs á 3500 fps , og 150-170 gr á+ 2900fps á Heindýr.
Málið er að eiga nýtt hlaup á lager í skápnum, því" krafur kostar peninga" og þannig þá ertu klár þegar hlaupið er búið. Hlaup eru eins og dekk á bílun, þetta slittnar. Í sambandi við markskotfimi er 7mm rm ekki praktíst ,nema ef menn hugsa um að kæla á milli skota.
Re: Tveir rifflar í allt?
Posted: 18 Jan 2014 00:10
by Stebbi Sniper
Re: Tveir rifflar í allt?
Posted: 18 Jan 2014 00:18
by Jenni Jóns
Re: Tveir rifflar í allt?
Posted: 18 Jan 2014 00:31
by 257wby
Góðan lás,GRS skepti og gott hlaup rímað í 260 rem, óþarfi að gera þetta eitthvað flókið
kv.
Guðmann
Re: Tveir rifflar í allt?
Posted: 18 Jan 2014 00:38
by Stebbi Sniper
Ferð þú ekkert að detta úr sambandi...
En á svona meira á alvörugefnu nótunum... þá er þetta borðleggjandi hjá þér á miðað við þær forsendur sem þú gefur og þau kaliber sem þú telur upp... .308 og .243 Sama hylkið...
Ég er samt ekki viss um að ég myndi nenna að setja .308 hlaupið á fyrir eitt hreindýr á 5 ára fresti! myndi einfaldlega skjóta það með .243 ef það væri hlaupið sem væri alltaf á...
Tæki þó eins og áður sagði frekar eitt 7 mm hylki og myndi nota það í þetta allt. Eða 6,5-284...
Re: Tveir rifflar í allt?
Posted: 18 Jan 2014 00:49
by Veiðimeistarinn
Sæll Freysgoði
Það er gaman að geta ávarpað þig sem Freysgoða
Ég er fæddur, uppalinn og hef alltaf átt heimili mitt á Vaðbrekku í Hrafnkelsdal, næsta bæ við Aðalból þar sem hrafnkell Freysgoði bjó og þaðan stjórnaði hann goðorði sínu
Nóg um það, honum tókst nú ekki alltaf jafn vel upp með það ráðslag, en það er nú önnur saga
Þegar stórt er spurt verður oft smátt og snubbótt um svör
Af áralangri reynslu minni af veiðum, hreindýra aðallega og gæsa ráðlegg ég þér sem svar við beinni spurningu þinni og uppgefnum möguleikum
Létt veiðihlaup: 270 eða bara gamla góða 3006 Springfield.
Þungt varmint hlaup: 2506 EKKI SPURNING.
Síðan ef ég vil víkja mér undan að svara spurningu þinni beint eins og flestir hafa kosið hér að ofan, meistarar flækjunnar, það er merkilegt hvað sumum tekst að flækaj svör við einföldustu spurningum.
Ég á 6,5-284 og hann dugir mér í allt sem ég þarf að nota riffil í, en ég er ekki að skjóta mikið á pappa að vísu, tek samt þátt í einni og einni skotkeppni hjá SKAUST með misgóðum árangri en ásættanlegum fyrir mig (nema þegar ég tapaði fyrir konunni)
Til að auka flækjustigið enn ferkar, bendi ég þér á að 284 ,,caliberið" er til rimmað í þrmeur kúlusverleikum 6 mm. 6,5 mm. og 7 mm. sem er alveg raunhæfur möguleiki fyrir tveggja hlaupa kerfið sem þú setur upp

Re: Tveir rifflar í allt?
Posted: 18 Jan 2014 00:52
by gylfisig
Búinn að eiga og nota flest þessi kaliber. Ef valið stendur um tvö hlaup fyrir sama lásinn, þá er valið einfalt hjá mér. 6,5x47 og 308 win.
Af hverju hverju ekki 6,5x284 eins og ýmsir nefna... og af hverju ekki td 270 win?
6,5x284 brennir ca 12-15 grs meira púðri en 6,5x47 sem þýðir mun meira slit á hlaupi (ég tala af reynslu, buinn að eiga bæði kaliberin)
Bakslag mun minna, en hraði mjög svo keimlíkur á þessum tveimur hylkjum með 120-125 grs kúlum.
Ég tel 47 hylkið nákvæmara, og það hentar til allra veiða á Íslandi. Hefur dugað vel í pappgötun líka.
6,5X55 er prýðis hylki í alla staði, en það hefur víðari botn en flest þau hylki sem við erum að tala um, og passar illa eigi að nota tvö hlaup við sama bolta, (Boltface) .
Það er ekkert mál að skiðta um hlaup. Tekur um 5 mínutur
Eigi að fara í villisvín eða elg, þá notaði ég bara hið súpernákvæma og alhliða kal. 308 Win.
Ekkert vesen, ekkert mál..
CASE CLOSED !
Re: Tveir rifflar í allt?
Posted: 18 Jan 2014 07:39
by Stebbi Sniper
Sæll Gylfi
Ágætis val hjá þér... en ef 6,5 x 47 á að vera flata varmint caliberið væri þá ekki bara skynsamlegra að sleppa því að vera með tvö cal og nota .308 í allt?
Re: Tveir rifflar í allt?
Posted: 18 Jan 2014 08:16
by Jenni Jóns
Stebbi Sniper wrote:Sæll Gylfi
Ágætis val hjá þér... en ef 6,5 x 47 á að vera flata varmint caliberið væri þá ekki bara skynsamlegra að sleppa því að vera með tvö cal og nota .308 í allt?
Jú frábær hugmynd hjá þér Stebbi eða nota 6,5x47 í þetta allt þá færðu aðeins minna vindrek

Re: Tveir rifflar í allt?
Posted: 18 Jan 2014 11:44
by Veiðimeistarinn
Ég held að þetta sé að verða komið hálfa leið út á tún
Það er undalegt hvað allir lenda út í stubbakaliberin, þegar einhver leitar ráða um veiðkaliber

Re: Tveir rifflar í allt?
Posted: 18 Jan 2014 12:22
by Jenni Jóns
Veiðimeistarinn wrote:Það er undalegt hvað allir lenda út í stubbakaliberin, þegar einhver leitar ráða um veiðkaliber

já þeir eru duglegir stubbarnir
Annars hélt ég að ég væri alveg með þokkalega ráðleggingu í 6,5x284 átti ekki von á að sjá nýja riffilinn minn auglýstan til sölu fyrir vikið
Ef menn vilja endilega vera skipta um hlaup þá held ég að létt 284 short action og þungt hlaup gæti verið 243 eða 6 mm BR fyrir Varmint.
http://www.6mmbr.com/varmint.html
Re: Tveir rifflar í allt?
Posted: 18 Jan 2014 13:47
by Veiðimeistarinn
Stubbarnir báðir Stebbi og Gylfi,
standa þar beinir, ósmeikir.
Fjögursjö og átta best skarplega skylfi,
skeleggir álykta keikir.
Re: Tveir rifflar í allt?
Posted: 18 Jan 2014 14:31
by gylfisig
Jæja.. það er bara búið að hnoða saman vísu.. Ýmislegt er nú Sigga til lista lagt
Varðandi að umræðan sé úti á túni, þá vil ég nu ekki samþykkja það.
Menn skyldu alls ekki vanmeta 6,5x47 og titla það sem eitthvað stubbakaliber. Hreint út sagt ótrúlega duglegt hylki sem er að senda 120 grs kúlu á 3000 ft. Það er einfaldlega á pari við 6,5x284 með þessari kúluþyngd. 284 hylkið er duglegra þegar komið er í þyngri kúlur eins og 130-140 grs.
en 120 grs kúla á 3000 ft er bú bara aldeilis ágætt, og dugar vel á hreindýr. Ég segi og skrifa að þetta hylki er afar heppilegt til veiða á ´öllu því sem hægt er að veiða á Íslandi.
Um 308 þarf ekkert að segja. það er ekki flatt varmint caliber með hefðbundinni veiðikúlu, en það myndi henta vel, eigi að skjóta , til dæmis elg eða villisvín í öðrum löndum. Auðvitað er fullt af öðrum caliberum sem eru öflugri, flatari, og þar fram eftir götunum, sem væru heppileg til veiða á stærri dýrum utan Íslands. Það var verið að spyrja um tvö hlaup fyrir sama lásinn, og það þrengir hringinn talsvert. 6,5x47 sem varmint/veiðikaliber hér heima, og 308 til útlanda. Einnig kæmi 7-08 vel til greina ásamt 7x57 Mauser sem er rómað veiðihylki. Við þessi kaliber er hægt að nota sama lásinn.
Re: Tveir rifflar í allt?
Posted: 18 Jan 2014 14:42
by gylfisig
Á þessari mynd eru fjögur hlaup. Þrjú Krieger hv og einn Hart Lv. Þrjú af þessum hlaupum eru á sama riffilinn/lásinn. Þau eru i kal, 6 BR Norma, 6,5x47 Lapua og svo auðvitað eitt í 308 win... bara svona rétt fyri hann Sigga, ef ég skyldi einhvern tíma þurfa að skjóta hreindýr fyrir hann á 500 plús
Síðan er ég með tvö önnur hlaup; i 6 PPc og 30 BR. sem eru á Artic Eagle bench rest riffil.
Ég er ca 5 mínutur að skipta um hlaup.
MYND...næsta síða