Það þarf ekki að hafa nein orð um Skotprófsskífuna hún er upp á níu komma níu
Þá er það hreindýraleiðsögumanna skífan
Þakka þér fyrir Siggi, það dugar mér þangað til ég þarf aftur að sýna færni mína á hundrað metrum...
Hausskotið er dálítið riski, það á aldrei að skjóta á haus nema dýrið sýni alla hliðina
Ég beið og beið og beið, það bara vildi ekki sýna mér alla hliðina... Svo þá var ekki um annað að ræða en að setja það á augað.
Þetta var nú meira til gamans gert, mitt augað var áætlaður lendingarstaður svo ég var nú bara nokkuð sáttur þegar ég sá hvar það fór. Tíkallinn er samt líklega ekki inn í myndinni hjá mér strax...
Hraðinn: Léttur samanburður fyrir talnanörda.
100 grs Nosler BT á 3500 fps við hlaup er á c.a. 2560 á 300 metrum með 1450 pundfet í slagkraft
130 grs Berger á 2700 fps við hlaup er á c.a. 2200 fps á 300 metrum með 1390 pundfet í slagkraft
100 grs Nosler fer undir 3000 fps rétt hægrameginn við 150 metrana.
Eftir 350 metra er Berger kúlan í stubbakaliberinu mínu kominn framm úr 100 grs Nosler kúluni í slagkraft.
Nýi 284 riffilinn hans Jenna lítur svolítið betur út og reikar yfir 6,5-284 (100 grs Nosler) með
168 grs Berger á 2860 fps við hlaup er með sama slagkraft á 600 metrum eins og 100 grs Nosler er með á 300. UST metur 168 grs kúluna hæfa til þess að fella hreindýr á 650 metrum miðað við þennan upphafshraða.
130 grs kúlan í 6,5 fer inn og út hinumeginn á lungnasvæðinu á 270 metrum og skilur eftir sig útsár á stærð við gólfkúlu, svo ég hef ekki ástæðu til þess að ætla að hún geri það ekki líka á 300. Þetta er líklega ekkert frábær veiðikúla, en hefur dugað mér ágætlega hingað til. Myndi sennilega henta betur í 6,5-284 Norma, með nóg af púðri á bakvið sig.
Ég leyfi mér að giska á að skotið sem hitti ekki inn í hringina tvo hafi verið no. 6 í röðinni, þ.e. þegar var búið að skjóta 5 á sighter, slíkt er því miður ekki í boði á veiðum.
ha ha... Sumir eru aldrei ánægðir!!!

Enda á ekki að sætta sig við meðalmensku... Reyni að gera betur næst!
Það var reyndar númer 11 í röðinni, því ég var áður búinn að skjóta 5 á 100 og hinum 5 á 300. Ég tek hausskotið til baka, enda var það nú bara tekið til að storka egóinu í mér... er bara nokkuð sáttur með útkomnua úr hinum.
Ég á helling eftir ólært í skotfimi sem betur fer, það þarf alltaf að hafa einhvað til að stefna að....
Jón Viðar: Jóhann á nú allan heiðurinn af þessu sprelli, hann var til langt að ganga 3 um nóttina að setja myndbandið saman eftir að við komum heim úr Höfnum... Sannur heiðursmaður þar á ferðinni.
Annars var ég nú alveg hundsvektur að ná ekki að klára þessa skífu með 50 stig, spurning hvort það séu margir sem hafa náð fullu húsi stiga, ég held að það hafi enginn náð 49 stigum hjá SFK áður, án þess að ég muni það alveg.