Ég tók skotprófið með Nosler Accubond 150grs, hleðslan er eitthvað í kringum 46 eða 46,5 man það ekki uppá hár. Byssan er Sako 85, cal 308.
Ég valdi þessa kúlu eingöngu þar sem Hlað menn mæltu með henni, sum sagt ekki vegna þess að ég sé hokinn af reynslu þegar kemur að kúluvali. Kúlan og hleðslan eru nógu nákvæmar fyrir mig. Í rest gatneglir hún nánast á 100m. Skotprófið skilaði mér 38 stigum, ekkert Íslandsmet en nógu gott fyrir mig. Eftir að hafa lesið skoðanir manna eins og t.d. Veiðimeistarans og fleiri fóru að renna á mig
tvær grímur og langar mig til að reyna að veiða uppúr ykkur hvort einhver önnur kúla gæti verið betri fyrir mann sem er að hugsa um að lágmarka blessaðar kjösskemmdirnar. (Ég geri ráð fyrir að allar kúlur dugi til að drepa dýrið hratt og vel og þá er bara nýtingin eftir

p.s. Hvað eru menn þó almennt að tala um þegar átt er við kjötskemmdir, nokkur hundruð grömm eða nokkur kíló?
Með kveðju
Björn