Kúla fyrir hreindýr, cal 308

Almennt um veiði eða veiðar á bráð sem ekki eru í undirflokkunum
User avatar
Björn R.
Posts: 105
Joined: 10 Feb 2013 19:10
Fullt nafn: Björn Jensson
Location: Reykjavík
Contact:

Kúla fyrir hreindýr, cal 308

Unread post by Björn R. »

Jæja
Ég tók skotprófið með Nosler Accubond 150grs, hleðslan er eitthvað í kringum 46 eða 46,5 man það ekki uppá hár. Byssan er Sako 85, cal 308.

Ég valdi þessa kúlu eingöngu þar sem Hlað menn mæltu með henni, sum sagt ekki vegna þess að ég sé hokinn af reynslu þegar kemur að kúluvali. Kúlan og hleðslan eru nógu nákvæmar fyrir mig. Í rest gatneglir hún nánast á 100m. Skotprófið skilaði mér 38 stigum, ekkert Íslandsmet en nógu gott fyrir mig. Eftir að hafa lesið skoðanir manna eins og t.d. Veiðimeistarans og fleiri fóru að renna á mig
tvær grímur og langar mig til að reyna að veiða uppúr ykkur hvort einhver önnur kúla gæti verið betri fyrir mann sem er að hugsa um að lágmarka blessaðar kjösskemmdirnar. (Ég geri ráð fyrir að allar kúlur dugi til að drepa dýrið hratt og vel og þá er bara nýtingin eftir ;) )

p.s. Hvað eru menn þó almennt að tala um þegar átt er við kjötskemmdir, nokkur hundruð grömm eða nokkur kíló?

Með kveðju
Björn
Björn Róbert Jensson
bjorn(hja)stopp.is
618-3575
iceboy
Posts: 466
Joined: 26 Apr 2012 15:58
Contact:

Re: Kúla fyrir hreindýr, cal 308

Unread post by iceboy »

Ég hef skotið mín hreindýr með blýoddskúlum eða hollowpoint kúlum.
Ekki með 308 en með 6,5x55 og 30-06

Ellingsen á kúlu í 30 cal sem heitir Barnes tsx og er 150 gr.
Ég skaut dýr með svona kúlu i 6,5 og mjög mjög litlar skemmdir, hún snerti rifbein á leið inn, nægilega mikið til að opnast, og lítið gat þar sem hún fór út.

Mitt álit er að skemmdirnar fara meira eftir hvar þú hittir heldur en með hverju þú hittir.
Sá eitt sinn dýr skotið í gegnum báða bógana, það var andskoti mikið sem þurfti að henda, þá erum við farnir að tala um kíló, en ef vel er hitt þá er bara skorið örlítið í kringum skotgötin, það er allavega mín reynsla af þessu.

Ég notaði líka þessa kúlu í gæs með mjög góðum árangri og myndi alveg treysta mér að skjóta gæsir með 30-06 með þessari kúlu.

Ég hinsvegar þekki ekki hvernig 308 fer með 150 gr kúlur
Árnmar J Guðmundsson
Jenni Jóns
Posts: 285
Joined: 11 May 2013 21:37
Fullt nafn: Jens Jónsson

Re: Kúla fyrir hreindýr, cal 308

Unread post by Jenni Jóns »

Ég hef verið að nota Nosler BT 125 grs með N133 púður rétt undir max hleðaslu samkvæmt hleðslutöflu þá er hún að 3160 fps það hefur verið að koma vel út hjá mér.
Ég hef einu sinni notað Nosler 125 grs Accubond en það var ekki marktækt með tilliti til kjötskemmda, menn hafa mjög misjafnar skoðanir á bonduðum kúlum
en ég held að flestir séu á þessri skoðun.
iceboy wrote:Mitt álit er að skemmdirnar fara meira eftir hvar þú hittir heldur en með hverju þú hittir.
helsti gallinn við 125 grs kúlurnar í 308 er hvað þær eru viðkvæmar fyrir vindi.

veistu hvað 150 grs kúlan hjá þér er að fara hratt eða hvað hún fellur út á 200 og 300.
Jens Jónsson
Akureyri
User avatar
Björn R.
Posts: 105
Joined: 10 Feb 2013 19:10
Fullt nafn: Björn Jensson
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Kúla fyrir hreindýr, cal 308

Unread post by Björn R. »

Takk fyrir þetta strákar,
Ég veit ekki hraðann en gæti trúað um 2800, kannski rúmlega það. Sum sagt engin eldflaug. Miðað við að kíkirinn er núllaður á 100m þá er fallið um 11cm á 200m en komið um eða yfir 35cm á 300m. Þær mælingar eru þó lauslegar en þetta hefur dugað mér til að hitta á pappann.
Björn Róbert Jensson
bjorn(hja)stopp.is
618-3575
User avatar
Veiðimeistarinn
Posts: 1917
Joined: 17 Jul 2010 09:47
Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal

Re: Kúla fyrir hreindýr, cal 308

Unread post by Veiðimeistarinn »

Sæll Björn.
Nosler Accubond er einfaldlega versta kula sem þú getur fengið með tilliti til kjötskemmda, hvað sem spekingarnir í Hlað segja, en þeir segja nú ýmislegt ef þeir eiga ekki annað, til að selja upp af lagernum.
Ef illa tekst til með Accubiond kúlu erum við að tala um skemmdir í kílóavís, ég hef séð skrokka með nánast ónýta framparta eftir hana, Steini Maack kjötiðnðarmeistari á Egilsstöðum vill til dæmis banna hana á hreindýraveiðum, það finnst mér segja það sem segja þarf um þessa kúlu.
Hins vegar er hún í lagi eins og aðrar kúlur ef hún er sett á réttan stað, þá er ég að tala um lungun vel fyrir aftan bóginn ofan við mitt dýr, en hún er samt varasöm vegna þess að það er svo mikið högg af henni vegna þess að hún heldur þyngdinni svo vel vegna þess að hún er kápulímd, og hætta á að hún sprengi aftur fyrir þind.
Mér líst miklu betur á hleðsluna hjá Jenna Jóns og get mælt með henni við hvern sem er til hreindýraveiða í cal. 308.
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sveinbjörn V
Posts: 109
Joined: 13 Dec 2012 20:55

Re: Kúla fyrir hreindýr, cal 308

Unread post by Sveinbjörn V »

Sko kallinn.. Byrjaður að mæla með .308 :D
Sveinbjörn V. Jóhannsson
Post Reply