Í stuttu máli snýst Ladder Test um að finna "accuracy node" á rifflinum þar sem lítið breitileg hleðsla hefur sem minnst áhrif á ákomuna á löngum færum og að í einni ákveðinni hleðslu er munurinn á milli skota sem minnstur á lóðréttum (vertical) ási.
Ég reyndar hafði ekki tíma til að klára tilraunina á sínum tíma og skaut bara eitt sett af hleðslum frá lágmarki upp í hámark.
Miðað við þessa einu tilraun sem ég er búinn að gera þá myndi ég segja að 500 metrar sé ágæt vegalengd og það sem þarf er góður undirbúningur, það er nokkuð auðvelt að klúðra þessu þannig að niðurstaðan verði ekki marktæk.
Ég byrjaði á því að hlaða skotin og steppaði á 0.2 grs frá lágmarki upp í hámark samtals 15 skot. Hér má bæta við að sumum finnst tilgangslaust að hlaða fyrri helminginn af skotunum (mildu hleðslurnar), vegna þess að flestir vilja frekar vera í efri hlutanum til að ná sem mestum hraða út úr viðkomandi hylki. Hinsvegar finnst mér gaman að stúdera og skjóta, svo ég sé ekki ástæðu til að stytta sér leið.
Ég byrjaði á því að "colour coda" kúlurnar, þannig að ég litaði þær með 4 mismundi litum og lét eina vera ólitaða (3x5 skot), til þess að aðgreina þær í sundur á blaðinu þegar ég væri búinn að skjóta. Það er ekki auðvelt að sjá 6,5 mm göt á þessu færi þó það gangi alveg við ákveðin skilirði. Ég var svona hóflega bjartsýnn á að þetta myndi skila sér á blaðið, svo það kom mér skemmtilega á óvart að þetta virkaði, og reyndar betur en ég þorði að vona.
Smella á myndina til að sjá stærri:

Svo stillti ég hraðamælinum upp og skaut sighter til að setja mig c.a. á blað. Næsta mál var að skjóta testið. Ég skaut þetta nokkuð rólega ef ég man rétt til þess að hita ekki hlaupið of mikið og endaði á því að lenda í rökkri þegar ég var búinn að ná í og skoða fyrsta blaðið, svo ég náði aldrei að klára. En þetta blað var niðurstaðan:
Smella á myndina til að sjá stærri:

Í stuttu máli þá fannst mér þetta gefa nokkurnveginn þá mynd sem ég bjóst við, en um leið verð ég segja til þess að fá góða mynd á hvað þetta er að gera, þá er líklega rétt að framkvæma tilraunina a.m.k þrisvar til að fá góða mynd af þessu og þá komum við aftur að því að hugsanlega er óþarfi að skjóta 5 - 8 mildustu hleðslunum þar sem þú munt að öllum líkindum ekki nota þær.
Ég skráði hleðslurnar í grs við hvert gat og einnig hraðan í m/s. Í long range skiptir miklu máli að ná hraðanum stöðugum á svipuðum slóðum því það er hann sem ræður mestu um hæðina á löngum færum. Í prófinu hjá mér fannst mér merkilegt að sjá hraðan stökkva upp í skrefum og þess vegna hefði ég þurft að endurtaka tilraunina aftur til þess að bera saman. Einnig var skrítið að sjá að aukinn hraði skilaði sér ekki endilega í hærri ákomu og það er vel hugsanlegt að um sé að kenna "shooter error"...


Skjótið á mig spurningum ef þið haldið að ég geti hjálpað til og endilega ef einhver framkvæmir þetta test að pósta því hér inn ásamt hugleiðingum.
Það er til ágæt lesning um þetta test á 6mmbr.com og fleiri stöðum fyrir þá sem hafa áhuga á því að kynna sér þetta betur og svo væri líka sniðugt ef menn myndu pósta niðurstöðuni hér í framhaldinu og sínum pælingum fyrir þá sem á eftir koma til að læra af.
Grein á 6mmbr.com um Ladder test á 1000 yards
Mynd úr þessu testi:
