Óska eftir 6mm/243 léttum kúlum

Fiskimann
Posts: 55
Joined: 12 Oct 2012 10:03

Óska eftir 6mm/243 léttum kúlum

Unread post by Fiskimann »

Sælir félagar
Situr e-r á léttum 6mm kúlum sem hann er ekki að nota, t.d. 55 gr. Sierra, 58 gr. Hornady. Ég væri alveg til í að losa viðkomandi við e-ð af þeim kúlum.
Ég á e-ð af kúlum í 22 cal, t.d. 55 gr. v-max og 75 gr a-max sem ég til í að selja auk samtínings í öðrum stærðum. Ég er með 6mmBR í tvisti 1/14 sem fer mjög vel með 70 gr Sierra Mk kúluna. Setur 1,7mm þriggja skota grúbbu á 2 metrum. Geri samt ekkert betur á 100 metrum og langar að prófa léttari kúlu á 100 m.
Guðmundur Friðriksson
Finnurinn
Posts: 15
Joined: 24 Aug 2012 12:21
Location: Akureyri

Re: Óska eftir 6mm/243 léttum kúlum

Unread post by Finnurinn »

Hillur verslana eru ekkert að svigna þessa dagana af 70 gr kúlum. Sá í Ellingsen á Akureyri í gær, nokkra pakka af 58 V-Max. 'u vilt líklega ekki fara mikið yfir 70 gr kúlur.?
Finnur Steingrímsson
finnasig@simnet.is
valdur
Posts: 39
Joined: 14 Mar 2014 16:55
Fullt nafn: Þorvaldur Sigurðsson

Re: Óska eftir 6mm/243 léttum kúlum

Unread post by valdur »

„Setur 1,7mm þriggja skota grúbbu á 2 metrum.“
Er algengt að menn skjóti til marks á tveggja metra færi? Ég gæti ekki einu sinni fókuserað minn kíki á svo stutt. Hvar fást sjónaukar ætlaðir fyrir svoddan skotfimi?
Þorvaldur frá Hróarsdal
Fiskimann
Posts: 55
Joined: 12 Oct 2012 10:03

Re: Óska eftir 6mm/243 léttum kúlum

Unread post by Fiskimann »

Já það er rétt, svona er að flýta sér og lesa illa yfir. Þetta átti auðvitað að vera 200 m og 1,7 cm. Þakka þér fyrir Finnur, norðanmenn ætla að senda mér 2 pakka af 58 gr Hornady.
Guðmundur Friðriksson
Post Reply