Page 1 of 1

284.win

Posted: 24 Apr 2015 21:11
by sindrisig
Það hefur staðið í mér að kaupa "neck die" fyrir þetta cal. Ekki alveg til í að borga uppsett verð frá útlandinu. Mundi síðan eftir því að eiga "full size die" sem fékk mjög slæma útreið við tilraunir til að losa 7mm rem mag hylki sem reif sig fast.

Nú þá kíkir maður í heimsókn til rennismíðameistarans og útbýr sér "neck die-a" úr því og notar fyrir 284 win...
neckdie.jpg
neckdie.jpg (38.75 KiB) Viewed 2241 times
Og ég get ekki annað séð en að þetta virki nákvæmlega eins og það á að gera.
neckdie3.jpg

Re: 284.win

Posted: 26 Apr 2015 07:32
by Siggi Kári
Vel gert, er græjan klár ?

Re: 284.win

Posted: 26 Apr 2015 11:06
by sindrisig
Sælir.

Brúkhæf skulum við segja, það þyrfti að fræsa axlirnar í die-anum niður um 1,5mm til að ná að forma allan hálsinn.

Annars er maður ekkert að fara í mikla tilraunastarfsemi, það er engin leið að skjóta neinu hér með viti nema snjókúlum.

Re: 284.win

Posted: 05 May 2015 17:05
by Jenni Jóns
Prófaði nýja kúlu í dag er nokkuð sáttur en þetta eru bara 3 skota grúppur, ég á eftir að prófa 56,5 gr hleðslu betur
Púður 55 gr Meðalhraði 924,8 m/s Munur á hæsta og lægsta 7,6 m/s
Púður 55,5 gr Meðalhraði 931,3 m/s Munur á hæsta og lægsta 0,9 m/s
Púður 56 gr Meðalhraði 936,8 m/s Munur á hæsta og lægsta 1,5 m/s
Púður 56,5 gr Meðalhraði 940,1 m/s Munur á hæsta og lægsta 0,9 m/s
Púður 57 gr Meðalhraði 949,8 m/s Munur á hæsta og lægsta 1,2 m/s Hér var aðeins að byrja verða vart við þrýsting.
Scenar 150 grs.jpg
Scenar 150 grs.jpg (60.23 KiB) Viewed 2038 times