
Talandi um að vera kominn aftur á sama stað, þá er hreindýraveiðitímabilið að byrja eina ferðina enn í dag, nú má veiða tarfa frá og með 15. julí, svona ef menn hér a spjallinu hafa ekki frétt það

Það er þoka í fjöllum hér eystra í dag þannig að útlitið er ekkert sérstakt, þess vegna verður varla horft til fjallanna eins og stendur skrifað í bókinni góðu, nánar tiltekið í Davíðssálmum ,,Hefjum augu vor til fjallanna" og svo framvegis,
Ég stefni engu að síður til veiða á svæði 3 í dag, með innmúruðum Borgfirðingum, sko, einu sinni Borgfirðingur (eystri) alltaf Borgfirðingur

Ég mun hefja augu mín yfir Eyjuna á leiðinni niðureftir, annars liggur leiðin sennilega til Loðmundarfjarðar, vegna þess að til þess hef ég augun til að sjá hreindýr með þeim þessa dagana
