sælir, þetta er greinilega að verða öflugra en ég átti von á...sem er hið besta mál.
Sigurður, svona aðeins fyrir forvitni. Hefurðu ekkert kíkt inn á spjallið hjá Bjarmalandi(spjall.refur.is), minnir nú að þú sért skráður í þann félagsskap. Þar væri gott að fá svona virkan notanda, sem hefur frá ýmsu að segja..kv.Jóhann Jensson
ps.maggi hvar finn ég þessar myndir sem ábending kom um á tölfupósti..
takk fyrir, en var loksins búinn að finna þetta...ætla að sýna Kidda þessar myndir næst er hann kemur í kaffi..stendur ekkert til að fara að gera eitthvað á svæðinu. kv.Jói
Jú, það stendur til að byrja núna. Stefnum á skipulagðan smíðadag næstu helgi. Ætli ég fari ekki ad undirbúa í vikunni. Ætla ad kíkja á eftir og skoða hvernig svæðið hefur komið undan vetri. Mætir þú ekki næstu helgi
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546 "Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
Sæll Jóhann.
Já það er rétt ég er félagi í Bjarmalandi og reyndar í stjórn þar.
Ég reyndi einhverntíman að fara inn á spjallið þar og skráði mig en gekk illa að fóta mig og gleymdi aðgangsorðinu mínu svo það datt einhvernvegin uppfyrir.
Kannski að ég reyni aftur?
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
veit ekki alveg hvort ég kemst um næstu helgi, það verður bara að koma í ljós..
Endilega reyndu aftur Siggi, held þú hefðir gaman af því að lesa sumt að því sem þarna hefur verið spjallað. Nú svo væri ekki verra ef þú hefðir eitthvað til málanna að leggja, vantar fleiri sem nenna að skrifa þarna inn. KV.Jói
Jæja og þá eru póstarnir á þessu spjallborði komnir yfir 1000 og aðsóknin hefur verið yfir 100 upp í 140 síðustu daga.
Þetta er frábært, enda er spjallborðið bara snilld og gleðilegt hvað hægt er að halda úti málefnalegum umræðum hér
Til hamingju enn og aftur Magnús
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Þetta er glæsilegt og gaman að sjá þetta þróast svona. Spjallið er orðið fullt af frábærum pennum og vonandi geta áhugamenn um veiði og skotfimi nýtt sér þetta
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546 "Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"