Strákar. Nú var ég ekkert ad alhæfa það ad hlaupaending sé ekki nema 500 skot. Mér finnst það hins vegar trúlegt, ef við tökum mið af öðrum kaliberum. Þetta er langt hylki, sem tekur mikið púðurmagn, og þar af leiðandi mikill bruni í gegnum þröngt rými, 6,5mm. Jalonen rifflarnir i cal 6,5x284 sem komu býsna margir til landisns, voru fanta nákvæmir, og gaman ad skjóta varg með þeim á löngum færum. Svo löngum, ad það þurfti ad halda marga máva yfir

(: Ríkishleðsla i þá var 53,7 grs af Norma MRP með 120 grs. Nosler bt. Ef riffillinn skaut því ekki, þá var eitthvad mikið að.
Ég er ad tala um að hitta krónu á 200 m. til ad svara spurningu Sindra. Á hreindýr fann ég mjög góða hleðslu sem var 54,5 grs með MRP við 125 grs. Nosler partition, og ég held ad sú hleðsla sé notuð töluvert i dag. Ég varð svo var við það, ad i kringum 500 skot, fór nákvæmnin ad dala. Massaði hlaupið, og riffillinn lagaðist. Þetta var svona i fleiri Jalonen rifflum. Í kringum 500 skotin, þá fóru hlutirnir ad breytast. Hef ekki orðið var við þetta i 6,5x47 sem notar um 15 grs minna púður við sömu kúlu, eða um 39,0 grs. Hart hlaupið á Sakoinum mínum ( er með 4 hlaup á hann ) heldur enn prýðisgóðri nákvæmni, þótt komin séu um 1000 skot i gegnum það.
Siggi, voru þessir kanar ekki bara með 357 Weatherby ?
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík