Page 1 of 1

Datt niður á skemmtilegt efni á Youtube

Posted: 01 May 2012 22:29
by Gísli Snæ
Var eitthvað að skoða á Youtube og rakst á þetta

Road to Precicion

http://www.youtube.com/watch?v=HUx-lC8Eiqc

Þarna fáum við að fylgjast með þar sem maður er að byrja að æfa sig, hlaða og græja upp í F-Class. Mjög gaman að þessu. Er sjálfur bara búinn að horfa á fyrstu 10 hlutana og þetta verður áhugaverðara eftir því sem á líður. Fyrst er þetta mjög bacis en var t.d. að hofra á videó frá fyrstu F-Class keppnunum hjá honum. Mjög áhugavert.

Re: Datt niður á skemmtilegt efni á Youtube

Posted: 01 May 2012 23:36
by Gísli Snæ
Búin að horfa upp í númer 15 núna. Mjög áhugavert að sjá þegar að hann fer að betrum bæta riffilinn og endurhleðslu aðferðir sínar.

Re: Datt niður á skemmtilegt efni á Youtube

Posted: 02 May 2012 09:14
by maggragg
Þetta eru mjög skemmtileg video hjá kallinum. Hann er að æfa við svipaðar aðstæður og við höfum hér á Íslandi og stefnir á F-Class sem væri gaman að koma á fót hér heima. Þetta inniheldur líka fræðslu um helstu grundvallaratriði í nákvæmnisskotfimi. Maður dettur inn í þetta hehe.

Re: Datt niður á skemmtilegt efni á Youtube

Posted: 02 May 2012 10:13
by Gísli Snæ
Já þetta er áhugavert. Eitt sem ég fór að hugsa um varðandi F-Class. Þar sem enginn skotvöllur er með svona útbúnað á mörkunum hvernig myndu menn leysa stigagjöfina? Gengur ekki að fara út að markinu eftir hvert skot.

Re: Datt niður á skemmtilegt efni á Youtube

Posted: 02 May 2012 14:21
by maggragg
Ég hef svolítið pælt í því og eitt af því sem mig langar að gera á skotsvæðinu væri að setja gryfju fyrir framan 300 metrana og 500m/600y markið. Það er þó ekki á dagsskrá strax þar sem margt annað gengur fyrir. Hin lausnin og sennilega dýrari er að setja upp rafrænar skífur en kostnaður við það er talinn í miljónum. En það væri allavega skemmtilegt að hafa svona búnað á brautinni.