Page 1 of 2

Kúla í 6,5x55

Posted: 19 May 2012 18:30
by iceboy
Jæja þá fer að styttast í að mér verði hleypt á fast land aftur og þá ætla ég að hlaða einhver skot í Mauserinn minn, það fer að verða kominn tími á að prófa græjuna.

Og þar sem það fer að nálgast skotpróf þá er spurningin mín þessi.

Með hvaða kúlu mælið þið í hreindýraveiðina?
Og hvað mynduð þið setja á bakvið?

Ég er bara með eina smá sérvisku og hún er að ég vill ekki sjá plastodd:-)

kv Árnmar

Re: Kúla í 6,5x55

Posted: 19 May 2012 18:39
by maggragg
Ég held að Veiðimeistarinn sé bestur til svara hvað þetta varðar.

Ég sjálfur er með Berger 140 gr. VLD en hef ekki farið sjálfur á hreindýr. Hinsvegar eru þessar kúlur seldar sem veiðikúlur og veit ég um tvo sem hafa notað þessa kúlu á hreindýr með mjög góðum árangri, þar af annar sem notaði hleðslu frá mér og kom það mjög vel út, engar kjötskemmdir og beint í mark. Einnig er kúlan sérstaklega góð í vindi en hún fer ekki mikið hraðar en 2800 fps þannig að ferillinn er ekki eins flatur og á léttari kúlunum á stuttu færum en munar þó ekki miklu. Ég myndi sjálfur nota þessa kúlu þar sem hún er bæði nákvæm og virðist vera góð á bráð.

Væri einmitt til í að heyra frá Sigurði með þetta líka, einnig hvað honum finnst um 140. gr. VLD

Re: Kúla í 6,5x55

Posted: 19 May 2012 18:46
by iceboy
Já Siggi veit þetta pottþétt. Gæti svosem hringt í hann þegar ég kem í land, alltaf gaman að spjalla við hann, en það er líka gaman að fá fleiri álit:-)

Re: Kúla í 6,5x55

Posted: 19 May 2012 18:56
by maggragg
Hehe, já Sigurður er sá sem best er að tala við um þetta.

Til upplysingar varðandi VLD skotið þá var útgatið ekki nema 2-3 cm en lungun í tætlum og dýrið féll fljótlega steindautt. Leiðsögumaðurinn hélt að skyttan hefði ekki hitt í fyrstu en dýrið féll áður en hann ætlaði að láta skjóta það aftur.

Útgatið:
Image

Þessar kúlur eru með þunna kápu og því "tætast" þær í sundur þegar þær eru komnar nokkrar tommur inn í bráðina og aðeins lítill hluti kúlunnar fer í gegn en mest af slagkraftinum lendir í dýrinu. Hljómar eins og góð kúla. Þessvegna er ég sjálfur spenntur að fá dóm Sigurðar á þessari kúlu ;)

Re: Kúla í 6,5x55

Posted: 19 May 2012 20:12
by Spíri
Nosler ballistic tip 120 grs. og 50grs af vv 160 púðri á bakvið. Þetta er frekar heit hleðsla en er mjög nákvæm í Tikka rifflinum mínum. Annars var veiðimeistarinn að benda mér hér á vefnum um daginn að nota 100.grs nosler bst. og á ég eftir að prufa þær :)
Og svo skíturðu bara í hausinn til að skemma ekki kjötið ;)

Re: Kúla í 6,5x55

Posted: 19 May 2012 20:54
by Tf-Óli
Nosler Partition 125gr með 46gr af vv 550 er sennilega sú kúla sem er hvað nákvæmust í mínum Tikka riffli. Ég hef notað hana á Hreindýraveiðum með góðum árangri. Enginn plastoddur þar.
Sammála Spíra með ballistic tip 120 gr. Hún svínvirkar með soldið heitri hleðslu. Reyndar skaut ég síðustu hreinkú með slíkri kúlu.
Er að prufa mig áfram með 100 gr ballistic tip. Lofar góðu.

Re: Kúla í 6,5x55

Posted: 19 May 2012 21:57
by gylfisig
Árnmar.
Á hvaða skipi ertu?

Re: Kúla í 6,5x55

Posted: 19 May 2012 22:24
by Gisminn
Ein spurning sem gylfi gæti mögulega svarað. 100grn nosler í 6,5x55 er hún ekki með full mikið frí speis áður en hún hittir rillur og gæti hún mögulega skemt hlaupið? En hún er svakalega nákvæm hjá mér það er ekki það.
Bara pæling sem ég heyrði einhverstaðar

Re: Kúla í 6,5x55

Posted: 20 May 2012 00:55
by gylfisig
Sæll Gísli.
Ég tel það hæpið að kúlan muni skemma hlaupið þó hún sé langt frá rillum.
Ég sé ekkert að því að nota kúluna, ef hún er að gera góða hluti í rifflinum

Re: Kúla í 6,5x55

Posted: 20 May 2012 10:06
by iceboy
Takk fyrir þetta strákar ;) Ég mun skoða þetta eitthvað ef ég kemst í land á morgun.

Gylfi ég er ekki á skipi. Ég vinn á Olíuborpalli í Norðursjónum og er á Ekofisk Kilo að vinna.

http://www.google.com/search?q=ekofisk+ ... =firefox-a

Myndir af pallinum :)

En þokan er svo þykk hérna í dag að það er ekkert flogið, vonandi lagast það áður en ég á að fljúga heim á morgun. Það er 20 metra skyggni núna og engar þyrlur sem fljúga :cry:

Re: Kúla í 6,5x55

Posted: 20 May 2012 15:33
by Veiðimeistarinn
Já, kúla í hreindýraveiðina.
Ég hef ákveðnar skoðanir á því eins og vafalaust hefur komið fram.
Ég vil hafa kúluna sem léttasta svona kring um 100 til 120 gr. eftir kalíberum, það helgast fyrst og fremst af því að hreyindýrin eru ekki mjög skothörð dýr og alger óþarfi að vera með stærri kúlur til að skjóta þau, dýrin eru jafn steindauð með þessum léttu kúlum og þyngri kúlurnar drepa dýrin ekki fljótar nema síður sé.
Vargkúlurnar, til dæmis Ballistic tip og V-MAX, drepa þau á fljótlegasta og öruggasta mátann, en þær skemma ekki meira bara ef þær eru settar á rétta staði á dýrinu.
Léttari kúlur hafa líka flatari feril sem er ótvíræður kostur á þessum opnu landsvæðum sem við höfum sem gerir það að verkum að færin eru mjög misjafnlega löng, þá er fljótlegra að geta drepið dýrið ef ekki þarf að hugsa mikið um fjarlægð og fall, síðan eru bara allt of fáir veiðimenn sem vita eitthvað um fall kúlna miðað við þyngd þeirra.
Íslenskir veiðimenn eru flestir því marki brenndir að vilja komast á sem auðveldastan hátt frá hlutunum án þess að þurfa að pæla of mikið, það er of áberandi miðað við mína reynslu af hreindýraveiðimönnum.
Þess vegna borgar sig ekki að vera að eyða löngum tíma í að skýra út fyrir mönnum feril eftir þyngd og hraða kúlna, flestir einfaldlega hlusta ekki, kannski búnir að gera sér ákveðnar hugmyndir, og svo gleyma menn þessu hratt.
Þess vegna ráðlegg ég öllum hreindýraveiðimönnum að fá sér kalíber sem stabíliserar léttar kúlur á miklum hraða og hafa flatan feril.
Það er svo varasamt að ætla að kenna mönnum alla skotfræðina sem vanir veiðimenn eru búnir að afla sér með áratuga reynslu, eins og reyndar á við um flesta sem eru að tjá sig hér.
Óvanir menn eru svo fljótir að alhæfa og hlusta bara á það sem hentar þeim, vegna þess að þeir telja sig oft vita svo mikið, sem oft er engin innistæða fyrir :!:
En þetta var bara útúrdúr, einhvers konar formáli fyrir hvaða kúlu ég mæli með í 6,5x55.
Ég mæli með 100 gr. Nosler ballistik tip og síðan partition 100 til 120 gr.
Annað hvort vil ég að kúlan springi alveg í frumeindir sínar þegar hún hittir bráðina, eða sveppist mjög reglulega og það flísist sem allra minnst úr koparkápunni og hún haldi algerlega sveppalöguninni alveg gegn um dýrið :)
Það virðast miklar andstæður í þessu svari en þegar betur er að gáð er ekki svo.
Þegar ballistic kúlan hittir dýrið, nota bene, sé hún nógu létt springur hún strax í tætlur en þar sem hún tvístrast svo mikið missa allar agnirnar sem eru svo litlar og léttar allan kraft og fara ekki langt frá skotstefnu kúlunnar.
Hitti hún á lungnasvæðið, inn á milli rifja smýgur hún að miklu leiti í gegn og springur kannski ekki fyrr en á útleiðinni hitti hún í rif. Hitti hún hins vegar á rif í innskotinu springur hún og fer oft ekki í gegn um dýrið, þetta á sérstaklega við um stóra tarfa.
Partition kúlan sveppast hinsvegar og heldur öllum massanum alveg í gegn um dýrið.

Re: Kúla í 6,5x55

Posted: 20 May 2012 17:23
by iceboy
Takk fyrir þetta Siggi. Pabbi er á sömu skoðun og þú, vill léttar kúlur:)

Hvernig líst ykkur á þessa?

6,5 mm/.264 Cal. 120 grain SPT

Er til hjá hlað.

Og hvað gæti passað á bakvið hana?

Re: Kúla í 6,5x55

Posted: 20 May 2012 20:25
by gylfisig
Það gætu passað 46-48 grs af N- 160
Hvaða tegund af kúlu er þetta?

Re: Kúla í 6,5x55

Posted: 21 May 2012 04:37
by iceboy
Þessi kúla er frá Sierra

Re: Kúla í 6,5x55

Posted: 22 May 2012 22:56
by Sveinn
Hef notað Sierra ProHunter 120 gr SPT sem hefur reynst vel á hreindýr. BC 0,356. Hleðsla 49 grs N 160 vv, col 76 mm hlaðið af Hlaðmönnum. Fantafín hleðsla. Langar þó að prófa:

100 grs Nosler Ballistic Tip, BC 0,350
120 grs Nosler Ballistic Tip, BC 0,456
130 Berger VLD Hunting BC 0,552 (140 hefur betri BC en hef meiri trú á að léttari kúlur vinni sína vinnu)

Held að það sé töluverður verðmunur á milli sísta og besta BC.

Hef trú á að Nosler 120 grs sé besta alhliða veiðikúlan en á eftir að prófa hvernig hún kemur út í minni Tikku light 6,5x55.

6,5x55 hefur frábæra holunarhæfni (penetrating power) eins og sjá má á á mörgum þráðum.

Re: Kúla í 6,5x55

Posted: 23 May 2012 20:44
by Gisminn
Skaut skolla í dag á bæjarhlaðinu á einum sveitarbæ með nosler 100 grn á 70 metrum og útsárið var á stærð við golfbolta. Grenjaskyttuni var gert viðvart um þessi afföll svo hún muni ekki eyða tíma í legu eftir dauðu dýri. En mín reynsla er góð af 100 og 120 nema ég hef einusinni gegnumskotið ref með 120 sem hljóp upp allt fjallið og drapst þar ca 400-500 metra beint upp.
En ég er búin að hlaða 140 VLD kúlur sem eru svakalega nákvæmar en ég á eftir að sjá áhrifin á bráð. það bíður gæsatímabilsins. ' meðan læri ég bara á fallið á henni frá 100-400 það er meira en nó fyrir minn veiðiskap þar sem lengsta færið er enn 289 metrar

Re: Kúla í 6,5x55

Posted: 28 May 2012 00:10
by E.Har
Er hægt og rólega að vera meira og meira sammála Veiðimeistaranum. Hef flegið dyr fellt með flestum caliberum. Frá 243 upp í 416 rem. Dýrin sem hafa farið verst er eftir kúlur sem eiga að sveppa en annað hvort lent á beini á innleið eða hitt á mikklum harða og rifnað samt. 416 rem kúlan penslaðist milli rfja inn og út, ósveppuð er hún örugglega breiðari en 243 hvort eð er og dýrið steinlá. Annar tarfur felldir við hliðina á honum var tekin með 300 weterby, sú kúla rifnaði ílla. færið um 50 metrar og mikið skemt. Kulan hélst ekki saman. Síðan hef ég flegið stóran tarf skotin með 300 wm og ballastic tip kúlu. Lungun í döðlum en engar skemdir aðrar. Ekkert útgat.

Stærsta málið er hinsvegar auðvitað að kúlan endi þar sem hún á ad fara. Gef ekki mikið fyrir læri eftir ballastoctip ;-) Hallast samt ennþá að t.d Norma Vilkan og alaska kúlunum. En er orðin alveg sáttur við léttar varmint kúlur. Skemma einfaldlega ekker meira séu þær á réttum stað og drepa vel.

E.Har

Re: Kúla í 6,5x55

Posted: 28 May 2012 09:13
by Norz
Þegar dýr eru skotin með léttum hraðfleygum kúlum, t.d. .30calibera 100gr V-max eða 120gr BallisticTip, ef kúlan brotnar eitthvað á leið í gegn (ef hún fer í gegn) hversu langt dreyfast flísar og agnir úr kúlunni inní dýrinu, já eða bara úr öðrum dæmum sem þið þekkið með öðrum kúlum og caliberum?

Re: Kúla í 6,5x55

Posted: 28 May 2012 09:31
by Veiðimeistarinn
Nors, ég skal segja þér það vinur um leið og þú kemur fram undir nafni hérna :D
Ég er ekki mikið fyrir ,,noname" lélegt dót , ég hef meira álit merkjavörunni :)

Re: Kúla í 6,5x55

Posted: 28 May 2012 10:57
by E.Har
Ég fló ekki mörg dýr í fyrra en slatta í hittifyrra og þar áður. Fann fallega sveppaðar kúlur úr t.d 6.5 -55 En fann einnig kúlur sem áttu að vera bondaðar úr 300 wetherby og stuttufæri úr 30.06
Í þeim tilfellum hafði sepi af sveppnum rifnað af. 30.06 var dýrið aðeins á ská svo kúlan snerti axlarbein á leiðinni inn. Bógurinn innmegin eginlega ónýtur. Wethrbyinn rann beint í gegn og leit allt snirtilega út þangað til ég opnaði dýrið. Þá hafð kúlubrot losnað fra og snúist aftur dýrið og náð í magaopið. Hafði einhvernvegin dregið gramsið úr maganum fram dýrið. Skömmu seinna var ég með tvo Ísfirðinga sem skutu ef ég man rétt 150 g ballastic tip Bæði dýrin lungnaskotin. Allt í döðlum í lungnasvæðinu, ekkert útgat engin kúlubrot.

Sjálfur er ég hrifin af Lapua mega Norma Orix finnst þær pennsla snirtilega í gegn. En það er auðvitað fleirra sem spilar inn í. Hraðin sem kúlan hittir bráðina skiptir mikklu máli. Við erum margir að nota óþarflega mikklar fallbyssur til veiða. 300 win mag er t.d óþarfi til veiða á Íslandi. Fáir veiðimenn sem teygja sig út fyrir 300 m. Þetta er hnnsvegar fin gædabyssa. Ef kemur að þér er færið langt og allt í vitleysu. Þá er besta að keta drið hvernig sem kvikindið snýr!

Hvað varðar kúlubrot úr varmint kúlum, ekkert vandamál ef kúlan fer á réttan stað. Ef hún fer í lærin þá ertu með hammaraefni!

Annars er ég sammála Sigga. Splæstu á okkur nafni :-)