Því heitara sem púðrið er, því hraðar brennur það og veldur því að kúlan fer hraðar sem hefur jú áhrif á ákomuna. Einnig getur það valdið yfirþrystingi ef hleðslan var "heit" í miklum kulda.
Ekki eru til neinar óháðar rannsóknir á því hversu mikill munur er á þessum púðrum en gaman væri að heyra reynslu manna af þessu. Ég hef prófað að hraðamæla skot hjá mér og ég sá mun á hraða eftir því hversu lengi ég geymdi skot í heitu skothúsi áður en ég skaut.
Mikill munur getur verið á milli tegunda og hægt er að hraðamæla skot í mismunandi hitastig og gefa sér formúlu um hversu mikið hraðinn eykst við ákveðna hitabreytingu. Einnig bera að hafa í huga á veiðum hvort að maður geymir skotin inn á sér eða utan á sér en það færi þá eftir því hvort að riffillinn sé stilltur miðað við skot sem er "kalt" og "kaldan" riffill eða hvernig sem það er.
Hodgon hefur sett inn rannsókn um þetta efni en það skal tekið fram að þetta er ekki óháð rannsókn og því tek ég hana með fyrirvara. Hinsvegar hefur maður lesið á spjallborðunum erlendist þegar þessi mál ber á góma að Hodgon Extreme púðrin séu minni viðkvæm en það byggir þó mikið til á tilfinningu notenda en auðvitað þyrfti maður að geta hraðamælt hleðslurnar sínar miðað við mismunandi hita.
Hér er úr rannsókninni en tölurnar sýna munin frá -17°c til 51°c eða 0-125°F

Cartridge: 30-06
Case: W-W
Primer: WLR
165 gr. Hornady SP

Cartridge: 300 Win. Mag.
Case: W-W
Primer: WLRM
180 gr. Sierra Boat Tail SP

Cartridge: 308 Win.
Case: W-W
Primer: WLR
168 gr. Sierra BTHP

Cartridge: 22-250 Rem.
Case: W-W
Primer: WLR
55 gr. Speer FMJ-BT
Hérna er tengill á heimildina:
http://www.hodgdon.com/smokeless/extreme/page2.php
Væri gaman að heyra reynslu annara af þessum efnum og skoðanir.