Page 1 of 1
Púður og hitastig
Posted: 21 May 2012 12:01
by maggragg
Útfrá öðrum þræði þá ákvað ég að stofna þráð um þetta málefni. Þ.e. áhrif hita á púður. Það er þekkt að púður eru viðkvæm fyrir hitabreytingum en það er mismikið eftir púðurtegundum. Hitastig hefur einnig áhrif á feril kúlunnar en á Íslandi á venjulegum veiðifærum hefur hitastigið meiri áhrif á púðrið.
Því heitara sem púðrið er, því hraðar brennur það og veldur því að kúlan fer hraðar sem hefur jú áhrif á ákomuna. Einnig getur það valdið yfirþrystingi ef hleðslan var "heit" í miklum kulda.
Ekki eru til neinar óháðar rannsóknir á því hversu mikill munur er á þessum púðrum en gaman væri að heyra reynslu manna af þessu. Ég hef prófað að hraðamæla skot hjá mér og ég sá mun á hraða eftir því hversu lengi ég geymdi skot í heitu skothúsi áður en ég skaut.
Mikill munur getur verið á milli tegunda og hægt er að hraðamæla skot í mismunandi hitastig og gefa sér formúlu um hversu mikið hraðinn eykst við ákveðna hitabreytingu. Einnig bera að hafa í huga á veiðum hvort að maður geymir skotin inn á sér eða utan á sér en það færi þá eftir því hvort að riffillinn sé stilltur miðað við skot sem er "kalt" og "kaldan" riffill eða hvernig sem það er.
Hodgon hefur sett inn rannsókn um þetta efni en það skal tekið fram að þetta er ekki óháð rannsókn og því tek ég hana með fyrirvara. Hinsvegar hefur maður lesið á spjallborðunum erlendist þegar þessi mál ber á góma að Hodgon Extreme púðrin séu minni viðkvæm en það byggir þó mikið til á tilfinningu notenda en auðvitað þyrfti maður að geta hraðamælt hleðslurnar sínar miðað við mismunandi hita.
Hér er úr rannsókninni en tölurnar sýna munin frá -17°c til 51°c eða 0-125°F

Cartridge: 30-06
Case: W-W
Primer: WLR
165 gr. Hornady SP

Cartridge: 300 Win. Mag.
Case: W-W
Primer: WLRM
180 gr. Sierra Boat Tail SP

Cartridge: 308 Win.
Case: W-W
Primer: WLR
168 gr. Sierra BTHP

Cartridge: 22-250 Rem.
Case: W-W
Primer: WLR
55 gr. Speer FMJ-BT
Hérna er tengill á heimildina:
http://www.hodgdon.com/smokeless/extreme/page2.php
Væri gaman að heyra reynslu annara af þessum efnum og skoðanir.
Re: Púður og hitastig
Posted: 26 May 2012 21:05
by Norz
Einu USA púðrin sem ég hef einhverju reynslu af eru Reloder 17 og Hogdon Varget fyrir utan ríkispúðrið Vhitavouri í 308win.
Re-17 er varasamt ef það nær að hitna mikið t.d. í bíl á leiðinni að skjóta. Hleðslan var í hærri kantinum á bakvið 208gr Hornady A-max og hylkið ónýtt þegar því var skotið við stofuhita en í fínasta lagi ef skotið fékk að aðlaga sig í Íslenskan útihita svona 5-10 gráður. En, N550 hleðslan á bakvið sömu kúlu þurfti töluvert hærri hita til að sýna merki um yfirþrýsting og eða að eyðileggja hylkið.
Varget er svipað og N140 þegar kemur að hitasveiflum, það er lítill munur, varla merkjanlegur miðað við chronoinn og ekkert sjáanlegt á hylkjunum. Ég þorði ekki að ofbjóða púprinu meir þannig að ég hætti hitaprófinu því á endanum klikkar eitthvað. Þarna voru afar háar hleðslur á bakvið 168grSMK.
´
Ég notaði eingöngu Mólý-húðaðar kúlur og hitaði skotin í 12 tíma í hitakössum áður þeim var skotið og eingöngu prófað á nýjum hylkjum í sama 308 win rifflinum, en þetta ætti að taka með vissum fyrirvara þrátt fyrir að þetta sé á pari við aðrar tilraunir erlendis. Og ég vil ekki birta við hvaða hitastig og púðurmagn breytingar áttu sér stað.
Re: Púður og hitastig
Posted: 26 May 2012 23:49
by Gisminn
Takk fyrir þetta Magnús ég skil reyndar ekki gröfin þau virðast miða á mismunandi cal en ég verð vel var við þetta á 160 VW munar ca 8 cm á 150 metrunum hvort það er -2 eða 10 stiga hiti og þá geymd úti en munar sama sem engu ef ég tek þau úr skápnum og er með þau innan á mér í magasíninu og set þau í riffilinn þegar á að skjóta.
Re: Púður og hitastig
Posted: 27 May 2012 10:12
by Norz
Gisminn wrote:Takk fyrir þetta Magnús ég skil reyndar ekki gröfin þau virðast miða á mismunandi cal en ég verð vel var við þetta á 160 VW munar ca 8 cm á 150 metrunum hvort það er -2 eða 10 stiga hiti og þá geymd úti en munar sama sem engu ef ég tek þau úr skápnum og er með þau innan á mér í magasíninu og set þau í riffilinn þegar á að skjóta.
Hvernig hegðar ákoman sér, breytist hún lárétt eða lóðrétt?
Verði mikil breyting á þrýstingshegðun, (ekki endilega mjög aukinn hraði á kúlu útúr hlaupi), heldur hversu hratt fullum þrýstingi er náð, áhvaða tíma miðað við staðsetningu kúlunnar í hlaupi og hversu miklu púðri hefur verið brennt þá, mun ákoman fara útúr og leita réttsælis kringum þá ákomu sem þú upprunalega hlóðst til að ná!!
ps. Þarna á ég við hækkun á þrýsting!!
Re: Púður og hitastig
Posted: 27 May 2012 10:28
by Veiðimeistarinn
Norz, menn með sjúklega vinsemd, grunsamlega virðingu og smá öfund, bara smá, ættu ekki að vera að tjá sig um háalfaleg málefni í hálfkveðnm vísum, samanber tlvitnun ,, Og ég vil ekki birta við hvaða hitastig og púðurmagn breytingar áttu sér stað" tilvitnun lýkur.
Ég get ekki litið á það sem neitt gamanmál þegar menn eru að tjá sig um víðan völl hér undir nafnleysi, vð höfum komist að því fullkeyptu á spjallborðum þessa lands!
Sýndu okkur þá viðingu að koma hér fram undir fullu nafni eins og þeir rúmmlega tuttugu menn sem mest spjalla hér á þessu spjalli. Ef ekki skaltu halda þínum hugleyðingum fyrir þig eins og nafninu!
Re: Púður og hitastig
Posted: 27 May 2012 15:05
by Padrone
Ég tel að ef NORZ vill halda nafni sínu og hleðslu upplýsingum leyndum þá á hann fullan rétt á því. En þar sem hann ekki vill skrifa undir réttu nafni þá verða þeir sem nota þennan vef að taka því sem hann segir eða setur á spjallið með fullum fyrirvara og geri ég það frá upphafi.
Persónulega veit ég að ef ég er að hlaða skot þá byrja ég amk 10% undir MAX hleðslu framleiðanda púðursins og ég FER EKKI yfir max hleðsluna frá þeim því mér er mjög annt um andlit mitt og heilsu. Og það ættu allir að vita að þetta er ekki eitthvað sem maður leikur sér að og verður að taka há alvarlega.
En það er ekkert skrítið það sem Gisminn er að tala um þegar maður er að skjóta í frosti eða hita (þegar hitamismunur er úti) þá er eðlismunurinn á skotunum eðlilegur finnst mér. En nú spyr ég, getur hitastigið líka haft mikil áhrif á brassið og kúluna, því jú málmur þenst út og herpist saman við hitabreytingarnar
Re: Púður og hitastig
Posted: 27 May 2012 15:22
by Norz
Padrone wrote:........En nú spyr ég, getur hitastigið líka haft mikil áhrif á brassið og kúluna, því jú málmur þenst út og herpist saman við hitabreytingarnar
Nei, það getur ekki haft nein merkjanleg áhrif, því hér erum við að tala um mjög grannt bil hitalega séð og langt frá þeim hita sem þaft til að breyta eiginleikum málmsins og þá er einnig um að ræða í þessu dæmi málma sem hegða sér ekki eins stál og ál blöndur t.d. sem vissulega geta breytt eiginleikum sínum á því hitabili sem við ráðum við að lifa í og við.
Re: Púður og hitastig
Posted: 27 May 2012 21:06
by Gisminn
Sæll Norz ákoman leitaði meira til hægri og grúbban stækkar merkjanlega en mér fannst þau halda hæð nokkurnveigin á 4 skotum var mesti hæðamunur 10mm en vil taka það fram að þá voru grúbburnar mínar að jafnaði um 3 cm á 150 en er búin að bæta þar um betur en hæðerbreytingin var mikil,
Og eins líka þegar ég hleypi fyrsta skoti af eftir hreinsun það er altaf ca 5 cm hærra en öll þau sem koma á eftir þar til drullustigi í hlaupi er orðið það hátta að kúlan fer að lyfta sér vegna aukinns þrístings
Re: Púður og hitastig
Posted: 27 May 2012 22:42
by Veiðimeistarinn
Árni, það er alger óþarfi að vera að verja gerðir Norz hér, þær eru og verða ekki til fyrirmyndar, nafnleynd á ekki að þekkjast á spjallvef sem er annt um virðingu sína.
Þú hefur kannski séð aumur á honum þar sem hann virðist algerlega ófær um að verja hendur sínar sjálfur!
Það er eitt að koma fram undir nafnleynd en annað að gefa okkur langt nef með þeirri kveðju sem hann setur undir pósta sína, sem er í hæsta máta ósmekkleg og lyktar óneytanlega af illa þefjandi leðjuslag sem tíðkast á ónefndum spjallvef.
Þú segist taka því með fullum fyrirvara sem hann segir hér vegna nafnleysisins. Þá er nú miklu hreinlegra að segja honum hreint út að halda þessum hugleiðingum fyrir sig eins og nafninu. Það á ekki að þurfa að taka hlutum með fullaum fyrir vara á svona spjallborði sem hefur hreinskilni og virðingu að leiðarljósi

Re: Púður og hitastig
Posted: 27 May 2012 23:22
by Padrone
Satt er það, en það eru alltaf skemmd epli innan um þau góðu.
Eg persónulega hef ekkert á móti NORZ, hann er líklega gæðablóð, en nafnleysi gefur mér ekki ástæðu til að setja út á hann eða annan. A meðan reglur spjallborðsins fara ekki fram á að hafa góða og fallega undirskrift, eins og svo margir hér hafa, þá sé ég ekkert að þessu og ætla ég bara að taka ráðleggingum/hugmyndum þeirra sem ekki koma undir nafni með fyrirvara svo lengi sem ég viti ekki betur. Ef maður reynir að leiðrétta ákv. einstakling og hann lætur ekki segjast þá missir hann virðinguna.
I þessu tilviki hefur Norz ekkert gert nema koma með sýna reynslu (tók það fram sjálfur að taka ætti þetta með fyrirvara) ræða málin á almennilegu nótunum. Enn sem komið er hefur hann bara verið heiðursmaður og að auki ekki sokkið í rifrildisgírinn.
Eg hef komið minni skoðun í ljós, þótt hún hafi ekkert að gera með hita í púðri í skotum eða slíku.
(bara til að minnast á það, ég hef ekki séð neinar reglur um spjallborðin)
Fyrirgefiði strákar ef ég rændi þræðinum.