Þróunin heldur áfram hér á þessu ágæta spjalli. Ég tók saman af gamni mínu svona helstu statistikk varðandi spjallið.
Nú eru 250 notendur komnir á spjallið, heimsóknir gesta stöðugt yfir 200 á sólarhring oftast um 220 til 230. Virkir notendur auk þess inni á spjallinu kring um 30 á sólarhring.
Skemmtilegt að fylgjast með hvað fastar undirskriftir eru orðnar almennar hjá virkum notendum.
Af 250 notendum eru 111 með nafn í fastri kveðju sem er rétt tæpur helmingur, góður árangur það.
Virkir notendur eru með enn hærra hlutfall af nafni í fastri kveðju.
Allir sem eru með 5 pósta eða fleiri hérna á spjallinu utan 3, koma fram undir nafni, alls eru 74 notendur með 5 pósta eða fleiri þar af 66 með nafn í fastri kveðju.
Allir með 9 pósta eða fleiri koma fram undir nafni 51 alls.
Þeir föstu notendur sem hafa skrifað 10 pósta eða fleiri, 43 notendur alls, eru allir með tölu með nafn í fastri kveðju.
Þetta er frábær árangur og afsannar þá kenningu rækilega sem haldið hefur verið fram annarsstaðar að það að koma fram undir nafni á svona spjalli eyðileggi um leið spjallið.
Höldum áfram á þesari braut, mér finnst spjallið hérna fræðandi og skemmtilegt og algerlega laust við ,,yfirskitu" eins og einn hérna orðaði svo frábærlega.
Hins vegar hafa margir hérna ákveðnar skoðanir og halda þeim sumir ósveigjanlega fast fram en það er bara hið besta mál, hér standa menn og falla með skoðunum sínum undir fullu nafni, það gerir gæfu muninn
