Page 1 of 5
Veiði dagsins 2012
Posted: 19 Jul 2012 21:39
by Veiðimeistarinn
Ég fór fyrsta túrinn í dag að leiðsegja á hreindýraveiðar. Síðan fer ég ekki fyrr en 1. águst næst og verð flesta daga að frá því þá, fram að lokum veiðitíma 20 sept.
Ég mun í þessum þræði leitast við að birta myndir af þeim veiðimönnum sem ég mun leiðsegja á þessu veiðitímabili.
Í dag fór ég upp af Öxi norður með Ódáðavötnum, út að Steninum og sá dýrin (reyndar sá konan í hópnum þau fyrst) úti á Klapparlækjardal.
Þar skaut Andri Freyr Þorsteinsson 87 kílóa tarf, sem er gott af júlí tarfi að vera, hann hefði orðið um 100 kíló í september en aðeins bætt við sig fitu á þeim tíma.
Vopnið var Tikka cal. 243 með 100 gr. Orix kúlu og færið 150 metrar

Re: Veiði dagsins
Posted: 19 Jul 2012 21:46
by gkristjansson
Þetta er flott!!!
Ekki spurning að hann hafi náð prófinu margumræddu, maður sér hvar skotið fór inn, á 150 metrum þá er sko ekki hægt að kvarta yfir þessu!
Re: Veiði dagsins
Posted: 19 Jul 2012 22:55
by joivill
Sammála , flott mynd og uppstilling. Flott skot og flottur tarfur,
Til hamingju með þetta
Jóhann Vilhjálmsson
Re: Veiði dagsins
Posted: 19 Jul 2012 23:06
by E.Har
snirtilegt

Til lukku.
Re: Veiði dagsins
Posted: 20 Jul 2012 00:22
by Tf-Óli
Vel gert og flott mynd.
Að stilla upp bráð er kúnst sem Siggi er mjög góður í.
Til hamingju.
Re: Veiði dagsins
Posted: 20 Jul 2012 09:24
by iceboy
Flott mynd.
Mér líst mjög vel á að þú setjir inn myndirnar hérna Siggi.
Það er alltaf gaman að skoða veiðimyndir
Re: Veiði dagsins
Posted: 24 Jul 2012 09:38
by Veiðimeistarinn
Ingólfur B. Bragason leiðsögumaður fór með veiðimann á Múlann milli Norður og Suðurdals Skriðdals á svæði 6 í skörun af svæði 2.
Ég fékk að fljóta með sem gormaður, þó ég þyrfti ekki einu sinn að taka innanúr, Ingólfur gerði það með sóma við erfiðar aðstæður.
Tarfur 88 kíló var felldur norðan Langavatns niður í Norðurdal sem stundum er kallaður Geitdalur eftir að þangað inneftir er komið.
Vopnið var Tikka varmit 6,5x55 140 gr. soft point kúla, verksmiðjuhlaðin, Fedral að mig minnir.
Færið kringum 200 metrar, afleitar aðstæður hellirigning og þoka með köflum, ekki hægt að mæla með fjarlægðarmæli, hann virkar ekki í rigningu og illa í þoku.
Re: Veiði dagsins
Posted: 26 Jul 2012 15:33
by Stefán_Jökull
Gamla 6.5x55 virðist ætla að standa fyrir sínu. Fallegt dýr.
Re: Veiði dagsins
Posted: 26 Jul 2012 19:24
by T.K.
Já, sammála. 6,5x55 er ótrúlega vel heppnað.
Vildi annars bara fá að hrósa Sigga fyrir fréttirnar og myndirnar. Frábær lesning fyrir okkur sem fengu ekki dýr, getum amk látið okkur dreyma.
Kv
Re: Veiði dagsins
Posted: 01 Aug 2012 22:56
by Veiðimeistarinn
Eingin.....fann ekki dýrin.....djöfulsins bömmer
Fyrsti dagur í kúm, fann ekki kýr en sá nóg af törfum

Re: Veiði dagsins
Posted: 02 Aug 2012 17:05
by Veiðimeistarinn
Jæja þá, í dag gekk rófan,ein kýr komin í hús
Hjónin Sveinn Aðalsteinsson og Helga Pálmadóttir veiddu í dag við Ytra Eyvindafjall niður við beygju á Ytri Fjallakvísl (Kiddi það er rétt hjá þar sem þú fékkst hælsærið um árið)
Vopnið var Tikka T3 6,5x55 kúla 120 gr. ballistic tip, færið 90 metrar, hreint lungnaskot vel aftarlega, flott, kjötskemmdir 0%, veturgömul geld 33kg. skrokkur
Síðan snaraði Sveinn kúnni á bakið eftir að ég hafði búið til bakpoka úr henni, þá var hún 40 kíló með feldi og fótum og bar hana í bílinn tæpa 4 kílómetra
Hver var að tala um ,,aktu taktu" á svæði 2

Re: Veiði dagsins
Posted: 02 Aug 2012 20:16
by Tf-Óli
Snilld!
Afbragðs myndir sem hrista vel upp í veiðieðlinu.
Re: Veiði dagsins
Posted: 03 Aug 2012 10:51
by E.Har
Virkr soldið nett.
Hvernig líta beljurnar út uppi á 2 núna?
Fannst þær magar í léttari kanntinum í fyrra.
Farin að naga mig í handarbökin, verð að rúlla austur

Re: Veiði dagsins
Posted: 04 Aug 2012 18:22
by Veiðimeistarinn
Einar ég held að beljurnar á svæði 2 séu vænni en í fyrra.
Veiðin í dag er komin í hús, Atli Ómarsson og Anton Örn sonur hans veiddu kú við Innri Fjallakvísl við beygjuna norðan við Innra Eyvindafjallið úr um 300 dýra blandaðri hjörð sem rann bítandi út og upp í Fjallaskarð eftir skotið.
Kýrin var 5 til 6 vetra mylk, skotin með Mossberg cal. 243, Sako verksmðjuhlöðnu skoti með 100 gr. Gamehead soft point kúlu, færið var 150 metrar.
Skotið losaði hjartað frá lungnastykkinu, hefði að skaðlausu mátt vera 5 tommum aftar en fantagott skot engu að síður.
Re: Veiði dagsins
Posted: 04 Aug 2012 18:44
by Bowtech
Gaman að fylgjast með, endilega fleiri setji inn myndir hérna af veiðum sýnum, svona fyrir á sem komast ekki.

Re: Veiði dagsins
Posted: 05 Aug 2012 15:39
by Veiðimeistarinn
Ólafur Friðriksson skaut mylka kú ca. 5 vetra, norðan Ytri Fjallshala í Eyvindafjöllum, skrokkurinn vóg 37 kíló.
Vopnið Sako cal. 243, kúlan 100 gr. Sierra gameking hleðsla 41 gr. N160.
Færið var 120 metrar, lungnaskot rétt fyrir ofan hjartað.
Re: Veiði dagsins
Posted: 06 Aug 2012 17:12
by Veiðimeistarinn
Pabbi, alltaf kallaður Danni, fór með veiðimann í tarf á svæði 2 í gær, veiðimaðurinn felldi tarfinn við Folavatn á Múla á Tanganum í Keldárlóninu.
Hann var bara nokkuð ánægður með fyrsta túrinn sinn á þessu ári, hann er búinn að stunda hreindýraveiðar í 65 ár, varð 80 ára síðasta vetur, nýbúinn að ganga á Snæfellið ásamt mömmu sem er bara 75 ára.
Þarna við Folavatnið veiddu þeir vænan tarf sem var 105 kíló. Vopnið var Baikal express cal. 3006 fantanákvæmt vopn.
Get ekki sett inn mynd núna, hún kemur þegar ég kemst aftur í tölvuna mína
Þá er myndin komin inn

Re: Veiði dagsins
Posted: 06 Aug 2012 21:24
by Tf-Óli
Ég fór minn fyrsta hreindýratúr með Aðalsteini á Vaðbrekku. (Þeim áttræða þ.e.)
Það var ógleymanleg veiðiferð.
Gaman að heyra að hann sé enn að.
Re: Veiði dagsins
Posted: 07 Aug 2012 21:31
by Veiðimeistarinn
Myndin af pabba komin inn!
Re: Veiði dagsins
Posted: 15 Aug 2012 23:34
by Veiðimeistarinn
Í dag veiddu hjá mér Páll Jóhannsson og Jón Ægir Sigmarsson, í Dragamótum inn af Hrafnkelsdal.
Kýr Páls var 43 kíló skotin með Tikka T3 Varmint cal. 308 færið var 130 metrar.
Hleðslan var 47 gr. af N-135 bakvið 125 gr. Nosler Ballistic Tip. Hraðinn mældur 3140 fet á sekúndu.
Kýr Jóns Ægis var 41 kíló skotin með Tikka T3 Laminated cal. 308 færið einnig 130 metrar.
Hleðslan var 46,5 gr. af N-140 á bakvið 150 gr. Sierra Gameking. Hraðinn mældur 2770 fet á sekúndu.