Nákvæmni í skammtara

Allt tengt endurhleðslu. Kúlur, hylki, púður og ýmis tæki og tól
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
iceboy
Posts: 466
Joined: 26 Apr 2012 15:58
Contact:

Nákvæmni í skammtara

Unread post by iceboy »

Nú er ég nýbyrjaður að hlaða sjálfur og mun því koma með helling af misgáfulegum spurningum hérna á spjallið.

Sú fyrsta til að byrja með er .... hversu mikil er nákvæmnin í skömturunum?

Nú veit ég að það er nákvæmast að vikta í hvert skot en það er náttúrulega tímafrekt og þessvegna eru menn með skammtara.

En hversu miklu skeikar á milli skota þegar verið er eð nota skammtara, eða skeikar kannski engu?

Þar sem menn vilja sem mestar upplýsingar þá er best að segja bara strax að ég er með hornaday hleðslusett. Ekki veit ég hvort það er gott sett eða ekki en þetta er nú það sem ég notast við og er að læra á .
Árnmar J Guðmundsson
TriCoreBallistics
Posts: 9
Joined: 15 Jun 2012 18:29

Re: Nákvæmni í skammtara

Unread post by TriCoreBallistics »

Í tilviki mekkanískra skamtara sem eru þá handvirkir, getur munað allt frá 0,1gr til 2,0gr. Þar skiptir mestu máli að nota alltaf sömu hreyfingarnar, reyna að hafa ekki of lítið af púðri í skammtaranum jafnvel þó skammtarinn hafi þrengingu í púðurhólfinu.

Ef þú ætlar að nota electrónískan skammtara, er farsælast að lesa sig vel til um notkun þeirra á netinu. Það eru ótal upplýsingar um þá og hvað má og má ekki-eða ætti ekki að gera, og þeir standa fyllilega fyrir sýnu.

Ég nota handvirkan skammtara en skammta samt ekki beint ofan í hylkið. Ég stilli skammtarann sirca 1-2gr undir hleðslunni. Þannig lendi ég sjaldan í því að hleðslan sé yfir vigt. Þá er skammtað ofan í elektróníska vigt eða RCBS 10-10 sláarvigt sem ég nota í dag ásamt púður trickler, þannig eru síðustu gr vigtuð nákvæmt í hvert hylki.

Hvort það sé einhver sjáanlegur munur á hleðslum sem eru skammtaðar beint eða vigtaðar með mikilli nákvæmni, er erfitt að segja. Ég sé ekki mun nema færið sem verið er að skjóta á sé yfir 600 metra og ýmsar breytur komi til. Allavega líður mér betur með þannig hleðslur. Fjölmargir nota bara skammtaðar hleðslur og gera frábæra hluti með þeim, þannig að munurinn getur legið í handbragðinu og reynslunni á skammtaranum.

Kveðja.
Kveðja.Geir G.
Tri-Core-Ballistics LLC
User avatar
E.Har
Posts: 624
Joined: 27 May 2012 23:26
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Nákvæmni í skammtara

Unread post by E.Har »

Ég er með rcb s skamtara og hann er ekki nógu nákvæmiur fyrir mig.
Vigta því bara allt frá honum, enda er ég mest bara að hlaða fyrir mig og til að steja saman nokkur skot í einu þá skipptir það engu máli. Stilli skamtaran ca .2 undir og bæti svo í :-)
E.Har

Einar Kristján Haraldsson
860 99 55
Menn eiga að hafa manndóm til að setja nafnið sitt við það sem þeir segja ;-)
User avatar
maggragg
Skytta
Posts: 1287
Joined: 02 Jul 2010 07:59
Fullt nafn: Magnús Ragnarsson
Location: Vík
Contact:

Re: Nákvæmni í skammtara

Unread post by maggragg »

Nota einhvern ódýrann LEE plast skammtara og geri eins og nefnt er hér fyrir ofnan, skammta örlítið undir og trikkla svo í rétt vigt með digital vog. Treysti ekki skammtaranum einum og sér...
Magnús Ragnarsson
Vík
868 0546

"Maður er meistari orðanna sem maður segir ekki en þræll þeirra sem maður segir"
iceboy
Posts: 466
Joined: 26 Apr 2012 15:58
Contact:

Re: Nákvæmni í skammtara

Unread post by iceboy »

Takk fyrir þetta
Árnmar J Guðmundsson
Post Reply