Sælt veri fólkið.
Veit einhver hér um góðar veiðivörubúðir í Boston eða Orlando, þá er ég að hugsa um fatnað fyrst og fremst en eflaust mun fleira slæðast með
MBK
Gæi
Garðar Tryggvason Gardartr@gmail.com
Engar áhyggjur...þetta fer aldrei verr en illa!!
Basspro er með rosa flotta og góða verslun rétt fyrir utan Boston.......hún er bara 150m. frá Gillette Stadium heimavöllur New England Patriots....auðvelt að finna.
Takk fyrir þetta, hef ekki komið til Boston svo ég er ekki að átta mig á hvar þetta er en skoða þetta klárlega.
OK, úr því að það er Cabelas í Orlando þá er ég í góðum, vissi ekki af henni... og já, ég lendi á sanford.
Þórir; kíkirinn stóð vel undir væntingum
Garðar Tryggvason Gardartr@gmail.com
Engar áhyggjur...þetta fer aldrei verr en illa!!
Hef komið við í Basspro þarna hjá Gillet stadium (Foxboro boston)
það var virkilega ervitt að vera þarna.
ástæðan var að það var ekki nógu stór heimild á vísa og ferða taskann mátti ekki vigta meir en 22kg
en svona upp á funnið þá eru hérna nokkrar myndir sem ég tók.
fékk að máta
vonandi virka myndirnar .
þetta er ein flottasta veiðibúð sem ég hef stigið fæti í .
kv
Erling
Jesús henry á hjólaskautum með túrbínu, ég á eftir að missa glóruna þarna Þetta eru glæsilegar myndir Erling og ég á eflaust eftir að eiga við sama vandamál að stríða og þú hehe.
k kv
Gæi
Garðar Tryggvason Gardartr@gmail.com
Engar áhyggjur...þetta fer aldrei verr en illa!!
Best að gera lista yfir hvað mann langar mest í....og helst mæta edrú. Annars gætirðu kolfallið fyrir Lazyboy stólnum í camo eða 300 kilóa byssuskápnum
Elskið friðinn og strjúkið kviðinn
Þórir Kristinsson
Þakka heilræðin Þórir Það er nú lítil hætta á öðru en ég verði edrú í búðarferðinni en gæti samt fallið í lazyboy gildruna
Ég vissi um þessa Basspro búð á Intl Drv. en er líka búinn að heyra að það sé ekki mikið um fatnað þarna sem henti Íslenskum aðstæðum. Er einhver hér sem hefur komið í hana ???
k kv
Gæi
Garðar Tryggvason Gardartr@gmail.com
Engar áhyggjur...þetta fer aldrei verr en illa!!
það var allavega gott úrval af camo fatnaði í versluninni í foxboro sem hentar okkur að eg held.
fékk mér úlpu og buxur frá redhead á flottum prís , úlpan er verðlögð á 40+ hérna heima en fekk hana á 18-19þ.
var að fara í mína fyrstu rjúpnaferð , það var kalt en var samt allt of vel klæddur .
annars er ég engin pro í þessu meira svona wannabe hobbýisti
Já Elli, ég er nú í wannabe hópnum líka, er að sullast af stað í þetta aftur eftir 20 ára hlé og langar í þokkalegan galla sem heldur mér amk volgum á köldum haust morgnum þegar maður liggur í einhverjum skurðinum og bíður. En þetta er einmitt málið að verðmunurinn er svo mikill að maður verður að nota ferðina og finna sér sett þarna úti.
Ég hefði nú alveg getað hugsað mér að koma með þér í svartfugl á þessu fleyi
MBK
Gæi
Garðar Tryggvason Gardartr@gmail.com
Engar áhyggjur...þetta fer aldrei verr en illa!!