Þá er Atlasinn kominn í hús. Hann er hluti af "upgrade" sem ég er að vinna í þessu dagana á Tikku Varmint í 260 Rem.
Tvífóturinn var keyptur í USA og við fyrstu skoðun þá er óhætt að segja að ég sé sáttur. Allt við þennan fót gefur til kynna gæði og fagmennsku. Efni, áferð og allar stillingar eru tipp topp. Allt mjög traustlegt og "solid".
Get í raun ekki beðið eftir að setja railið á riffilinn og prufa græjuna. En til þess að það gerist þarf ég nú fyrst að fá skeftið
Jú hann á að gera það. Er náttúrulega ekki kominn á riffilinn en ég tel mig finna á honum að hann mun gera það. Allar stillingar á honum er frábærar. Hvort sem það er halli - snúningur eða gráðustillingar á fótunum.
Atlas er einfaldlega toppurinn í tvífótum! Það sem hefur alltaf "böggað" mig varðandi Harris og Caldwell er þetta utanáliggjandi gormadót....klunnalegt og virkar sem heljarinnar mekanismi í kringum þetta. Og manni hefur tekist að flækja ótrúlegustu hluti í þessu í gegnum tíðina
Vonandi styttist í að hægt verði að bjóða riffilskyttum uppá þessar græjur