Page 1 of 1
Primer vesen
Posted: 05 Oct 2012 23:28
by Gisminn
Sælir ég er með smá spurningu vegna þess að ég tók að mér að finna góða hleðslu fyrir vin minn en hann er með 270 en ég þekki engöngu 6,5x55 og 243 nema hvað að mér finnst svakaleg þvingun að koma primernum í 270 hylkið miðað við hin hylkin og þau eru öll frá Norma En er að sjálfsogðu með dia og haldara fyrir hanns hylki.
Þekkið þið þetta vandamál og afhverju það stafar
Re: Primer vesen
Posted: 10 Oct 2012 00:07
by skepnan
Er enginn af öllum hleðslu snillingunum hérna með með einhverja hugmynd um af hverju þetta gæti verið. Eða er 270inn minn semsagt fullorðins og hin kaliberin bara svona barna?
Kveðja Keli
Re: Primer vesen
Posted: 10 Oct 2012 01:25
by gylfisig
Eru ekki flestir snillingarnir í þessum geira, sjálfskipaðir
Annars hef ég orðið var við þetta þegar ég er með ný hylki, og er að hlaða í þau í fyrsta eða annað skiptið.
Síðan hafa þau lagast, eftir tvö þrjú skipti.
Hvaða tegund af hylkjum er þetta?
Re: Primer vesen
Posted: 10 Oct 2012 07:49
by Aflabrestur
Sælir.
Hann talar um Norma í póstinum.
Ég kannast ekki við þetta, en ég er nánast aldrei með sponsa ný hylki hef held ég ekki nema einusinni hlaðið í Norma sem ekki var búið að afmeyja áður og það var í 7,5x55 sviss gekk fínt.
Re: Primer vesen
Posted: 10 Oct 2012 10:04
by skepnan
Sæll Gylfi, þetta eru einskotin Norma hylki. Hlað var með 50 fullmetal jacket skot á um 9000 svo að ég skellti mér á nokkra pakka
Við Steini erum enn að reyna að finna "drauma"hleðsluna í Howuna en gengur hægt, það er nefnilega smá spotti á milli bæja í okkar tilfelli
Kveðja Keli
Re: Primer vesen
Posted: 10 Oct 2012 13:24
by Hjölli
Var að hlaða í ný 270wsm norma hylki um helgina það er vel stift að setja primerinn í
þessi hylki cirka 30% styfara en ny remington vonandi er það visbending um góða endingu
kv
Re: Primer vesen
Posted: 10 Oct 2012 13:44
by gylfisig
Ég hef trú á því að þessi hylki verði í lagi eftir að búið er að hlaða þau tvisvar þrisvar sinnum.
Re: Primer vesen
Posted: 10 Oct 2012 18:04
by Gisminn
Takk fyrir svörin var smá farin að hafa áhyggjur að primerstæðið væri of grunt einhverja hluta vegna og að ég væri að krumpa hvellettuna eða skemma kökuna en vildi einmitt fá að heyra hvort ég væri einstakt tilvik með þetta.