Primer vesen

Allt tengt endurhleðslu. Kúlur, hylki, púður og ýmis tæki og tól
Forum rules
Allar upplýsingar um hleðslutölur eru án ábyrgðar og hver sem hyggst nýta sér þær skal fylgja öryggisreglum um hleðsu skotvopna og ávalt byrja á lágmarkshleðslu og vinna sig upp.
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Primer vesen

Unread post by Gisminn »

Sælir ég er með smá spurningu vegna þess að ég tók að mér að finna góða hleðslu fyrir vin minn en hann er með 270 en ég þekki engöngu 6,5x55 og 243 nema hvað að mér finnst svakaleg þvingun að koma primernum í 270 hylkið miðað við hin hylkin og þau eru öll frá Norma En er að sjálfsogðu með dia og haldara fyrir hanns hylki.
Þekkið þið þetta vandamál og afhverju það stafar
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
User avatar
skepnan
Skytta
Posts: 256
Joined: 01 Apr 2012 12:35

Re: Primer vesen

Unread post by skepnan »

Er enginn af öllum hleðslu snillingunum hérna með með einhverja hugmynd um af hverju þetta gæti verið. Eða er 270inn minn semsagt fullorðins og hin kaliberin bara svona barna? :lol: :lol:

Kveðja Keli
Þorkell D. Eiríksson
keli.skepnan@gmail.com
Fljótsdalur í Fljótshlíð
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

Re: Primer vesen

Unread post by gylfisig »

Eru ekki flestir snillingarnir í þessum geira, sjálfskipaðir :D
Annars hef ég orðið var við þetta þegar ég er með ný hylki, og er að hlaða í þau í fyrsta eða annað skiptið.
Síðan hafa þau lagast, eftir tvö þrjú skipti.
Hvaða tegund af hylkjum er þetta?
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
User avatar
Aflabrestur
Posts: 490
Joined: 25 Feb 2012 08:01
Location: Sauðárkrókur

Re: Primer vesen

Unread post by Aflabrestur »

Sælir.
Hann talar um Norma í póstinum.
Ég kannast ekki við þetta, en ég er nánast aldrei með sponsa ný hylki hef held ég ekki nema einusinni hlaðið í Norma sem ekki var búið að afmeyja áður og það var í 7,5x55 sviss gekk fínt.
kv.
Jón (Jónbi) Kristjánsson
Sauðárkróki
"I don´t have to be careful, i´ve got a gun" Homer J. Simpson
User avatar
skepnan
Skytta
Posts: 256
Joined: 01 Apr 2012 12:35

Re: Primer vesen

Unread post by skepnan »

Sæll Gylfi, þetta eru einskotin Norma hylki. Hlað var með 50 fullmetal jacket skot á um 9000 svo að ég skellti mér á nokkra pakka ;)
Við Steini erum enn að reyna að finna "drauma"hleðsluna í Howuna en gengur hægt, það er nefnilega smá spotti á milli bæja í okkar tilfelli :lol:

Kveðja Keli
Þorkell D. Eiríksson
keli.skepnan@gmail.com
Fljótsdalur í Fljótshlíð
Hjölli
Posts: 27
Joined: 02 Jun 2012 21:55
Location: Kopavogur Iceland

Re: Primer vesen

Unread post by Hjölli »

Var að hlaða í ný 270wsm norma hylki um helgina það er vel stift að setja primerinn í
þessi hylki cirka 30% styfara en ny remington vonandi er það visbending um góða endingu

kv
Hjörleifur Hilmarsson
User avatar
gylfisig
Posts: 598
Joined: 22 Feb 2012 13:03

Re: Primer vesen

Unread post by gylfisig »

Ég hef trú á því að þessi hylki verði í lagi eftir að búið er að hlaða þau tvisvar þrisvar sinnum.
Kv.
Gylfi Sigurðsson
Húsavík
User avatar
Gisminn
Posts: 1349
Joined: 29 Aug 2011 21:47
Location: Blönduós

Re: Primer vesen

Unread post by Gisminn »

Takk fyrir svörin var smá farin að hafa áhyggjur að primerstæðið væri of grunt einhverja hluta vegna og að ég væri að krumpa hvellettuna eða skemma kökuna en vildi einmitt fá að heyra hvort ég væri einstakt tilvik með þetta.
Kveðja
Þorsteinn Hafþórsson
Post Reply