langaði að segja frá einni aðferð til að læra að meta haglabyssufæri!!
ég hef ekki prufað þetta sjálfur en þekki þó einn sem hefur prufað þetta með góðum árangri!
takið flugdreka og merkið spottann með 5 eða 10 metra millibili (eða því millibili sem hver og einn kýs)
og svo er farið út (skemmir ekki ef það er vindur;)) flugdrekanum flogið og færin metin..

sá er sagði mér frá þessu talaði um að þetta munaði miklu þegar hann fór svo í gæsir eftir að hafa gert þetta nokkrum sinnum og var hann fljótt farinn að getað sagt fjarlægðina á færinu þó svo að annar (sonur hans) væri með drekan..
væri gaman að heyra fleiri "húsráð" frá mönnum um hitt og þetta!!