Page 1 of 1

Einkennilegar aðstæður.

Posted: 15 Nov 2012 17:43
by Spíri
Þar sem ég er að lesa bókina "Svar við bréfi Helgu" eftir Bergsvein Birgisson, fékk ég mjög skrítna hugmynd. En í bókinni segir frá er aðal söguhetjan er að rifja upp lífshlaup sitt að hann hafi "skotið ref skítandi" :lol: Þarna fékk ég hugmynd um að forvitnast hver sé nú skrítnasta skotstaða sem menn hafa komist í? En ég viðurkenni að eitt sinn á gæsaveiðum fékk ég steinsmugu og þegar vöðlurnar voru á hælunum ofan í skurðinum komu gæsir fljúgandi :oops: en ég var nú ekki meiri hetja en það að þær flugu burt án þess að ég setti skot á eftir þeim :D

Re: Einkennilegar aðstæður.

Posted: 15 Nov 2012 18:06
by Veiðimeistarinn
Hvort var það refurinn eða söguhetjan sem var skítandi :mrgreen:

Re: Einkennilegar aðstæður.

Posted: 15 Nov 2012 20:36
by Gunnar Óli
sælir/sælar

kannski ekki skrítin skotstaða en kímlegur aðdragandi að skoti.

en málið var það að ég og félagi minn fengum leyfi í gegnum síma til að sitja fyrir gæsum, höfðum aldrei komið á tiltekna jörð en höfðum mjög svo grófar leiðbeiningar frá þessum ágæta bónda. fórum snemma og komum því í miklu myrkri. fundum engan skurð né annað skjól, tókum til þess ráðs að liggja flatir á bakinu í grænfóðursakri. ekki leið að löngu að þreytan fór að segja til sín. liggjandi á bakinu reyndist mér ómögulegt að halda mér vakandi og sama var með félagann! vakna svo nokkru síðar með látum við garg í gæs sem var svo gott sem að lenda á höfðinu okkur, hálf-sofandi, ringlaður og í adrenalín sjokki var gamli 870 rifinn á loft, eitt skot látið fara og gæsin steindauð. því næst sé ég útundan mér hvar félaginn jafn ringlaður og ég hafði verið hálf tekst á loft með hólkinn, miðandi í allar áttir :)

hefur oft verið hlegið af þessu í skurinum síðan :)