Einkennilegar aðstæður.
Einkennilegar aðstæður.
Þar sem ég er að lesa bókina "Svar við bréfi Helgu" eftir Bergsvein Birgisson, fékk ég mjög skrítna hugmynd. En í bókinni segir frá er aðal söguhetjan er að rifja upp lífshlaup sitt að hann hafi "skotið ref skítandi"
Þarna fékk ég hugmynd um að forvitnast hver sé nú skrítnasta skotstaða sem menn hafa komist í? En ég viðurkenni að eitt sinn á gæsaveiðum fékk ég steinsmugu og þegar vöðlurnar voru á hælunum ofan í skurðinum komu gæsir fljúgandi
en ég var nú ekki meiri hetja en það að þær flugu burt án þess að ég setti skot á eftir þeim 
Kv. Þórður Sigurðsson Spíri. Borgarnesi
- Veiðimeistarinn
- Posts: 1917
- Joined: 17 Jul 2010 09:47
- Fullt nafn: Sigurður Aðalsteinsson
- Location: Vaðbrekka Hrafnkelsdal
Re: Einkennilegar aðstæður.
Hvort var það refurinn eða söguhetjan sem var skítandi 
Með beztu kveðju!
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
Sigurður Aðalsteinsson
sa1070(hjá)simnet.is
- Gunnar Óli
- Posts: 71
- Joined: 16 Jun 2012 06:16
- Fullt nafn: Gunnar Óli Kristjánsson
- Location: Akureyri
Re: Einkennilegar aðstæður.
sælir/sælar
kannski ekki skrítin skotstaða en kímlegur aðdragandi að skoti.
en málið var það að ég og félagi minn fengum leyfi í gegnum síma til að sitja fyrir gæsum, höfðum aldrei komið á tiltekna jörð en höfðum mjög svo grófar leiðbeiningar frá þessum ágæta bónda. fórum snemma og komum því í miklu myrkri. fundum engan skurð né annað skjól, tókum til þess ráðs að liggja flatir á bakinu í grænfóðursakri. ekki leið að löngu að þreytan fór að segja til sín. liggjandi á bakinu reyndist mér ómögulegt að halda mér vakandi og sama var með félagann! vakna svo nokkru síðar með látum við garg í gæs sem var svo gott sem að lenda á höfðinu okkur, hálf-sofandi, ringlaður og í adrenalín sjokki var gamli 870 rifinn á loft, eitt skot látið fara og gæsin steindauð. því næst sé ég útundan mér hvar félaginn jafn ringlaður og ég hafði verið hálf tekst á loft með hólkinn, miðandi í allar áttir
hefur oft verið hlegið af þessu í skurinum síðan

Gunnar Óli Kristjánsson
murtur525@gmail.com
ef þú átt gamlan cal. 22 þá er ég að safna þeim
(það er betra að spyrja og vera asni í einn dag en að spyrja ekki og vera asni alla ævi)