Search found 57 matches

by Dr.Gæsavængur
22 Jul 2015 12:03
Forum: Hreindýr
Topic: Verð á hreindýrakjöti
Replies: 12
Views: 6994

Re: Verð á hreindýrakjöti

Sæll Árnmar, Óskar og fleiri.

Þið voruð að velta fyrir ykkur verði á hreindýrakjöti. Í fyrra seldi ég helminginn af mínum tarf. Þetta var um 80kg tarfur. Ég lét vinna skrokkinn og vacumpakka, sat eftir með rúmlega 40 kg af kjöti. Ég seldi uþb. helminginn eða rétt rúm 20 kg á 6000kr/kg. eða á 120 ...
by Dr.Gæsavængur
22 Jul 2015 11:41
Forum: Hreindýr
Topic: hreindýr 2015
Replies: 1
Views: 2688

Re: hreindýr 2015

Takk fyrir skemmtilega frásögn! Þetta hefur verið fínasta ferð.
Ég verð þarna sjálfur um helgina að eltast við Tarfinn minn. Gott að vita af honum þarna :D Ég hafði einmitt hugsað mér að byrja leit á þessu svæði. Æðislegur staður. Ég labbaði þarna um í fyrra og árið þar áður. Þá fundum við hóp af ...
by Dr.Gæsavængur
17 Jul 2015 16:03
Forum: Græjur
Topic: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?
Replies: 215
Views: 141566

Re: Hafa spjallverjar verið að kaupa sér eitthvað dót ?

Ég fékk nýjan handsjónauka í gjöf fyrr í sumar. Hann heitir Olympus 10x42 EXPS I og fæst í sjónvarpsmiðstöðinni á 29.990kr. http://www.sm.is/product/10x42-sjonauki-oly-10x42expsi

Þetta er virkilega bjartur og tær sjónauki úr professional línunni frá Olympus. Hann fær mín bestu meðmæli. Virkilega ...
by Dr.Gæsavængur
17 Jul 2015 15:44
Forum: Hreindýr
Topic: Umhverfisstofnun
Replies: 28
Views: 18126

Re: Umhverfisstofnun

Ég fékk úthlutuðum Tarf á svæði 7 þann 12. júní. Ég sá samt ekki póstinn fyrr en mánudaginn 22. júní þar sem ég var ég var ekki nógu duglegur að skoða pósthólfið, enda há sumar og svona :) Ég var líka farinn að halda að ég þyrfti að bíða eftir að skotpróf kláruðust, 1.júlí, eftir að eitthvað færi að ...
by Dr.Gæsavængur
24 Apr 2015 13:11
Forum: Hreindýr
Topic: Umhverfisstofnun
Replies: 28
Views: 18126

Re: Umhverfisstofnun

Vá, anda með nefinu.. ef það er ekki hálf stíflað einsog á mér núna... snifff..
Það gengur greinilega hratt á biðlista á svæði 6, enda kannski ekki langur. Ég fékk á miðvikudag úthlutað kú á svæði 6 sem var varaumsókn hjá mér. Aðalumsóknin er tarfur á svæði 7 en þar er ég númer 49 á biðlista. Sendi ...
by Dr.Gæsavængur
03 Nov 2014 09:39
Forum: Óska eftir
Topic: Sjónauki fyrir 22LR [Reddað]
Replies: 7
Views: 4431

Re: Sjónauki fyrir 22LR

Sæll Maggi.

Ég get alveg mælt með sjónaukanum úr vesturöst sem Bjarki talaði um. Virkilega fínn fyrir peninginn og flottur á 22lr. Þetta er Bushnell 3-9x32 og borgaði ég 17.000 fyrir hann. Það fylgja honum festingar sem ég ráðlegg þó að verði ekki notaðar lengi. Ein festiskrúfan brotnaði hjá mér ...
by Dr.Gæsavængur
30 Oct 2014 15:06
Forum: Allt um veiði
Topic: Gönguskór?
Replies: 12
Views: 7549

Re: Gönguskór?

Já, það væru nú aldeilis uppgrip hjá skósölum ef allir væru atvinnugöngumenn einsog þú Sigurður :) Þú ættir kanski að athuga það líka að skipta um skó svo þú getir fækkað pörunum þínum niður í einsog tvö. Fá þér þá skó sem ekki eru alltaf að blotna svona eða þurfa stöðuga viðgerð :) Segi svona ...
by Dr.Gæsavængur
30 Oct 2014 14:12
Forum: Vargur
Topic: Eltingaleikurinn við hvíta yrðlinginn
Replies: 28
Views: 23807

Re: Eltingaleikurinn við hvíta yrðlinginn

Virkilega spennandi eltingaleikur! Verður gaman að fylgjast með þessu áfram í máli og myndum.. Ég er viss um að hann muni liggja innan fárra daga.. Gangi þér sem allra best! :)

En varðandi kaldar hendur er fínt að vera með svona litla hitapúða sem hægt er að stinga inn í vetlinga í svona langri ...
by Dr.Gæsavængur
27 Oct 2014 16:55
Forum: Allt um veiði
Topic: Gönguskór?
Replies: 12
Views: 7549

Re: Gönguskór?

Sæll og blessaður Konni

Ég er í nákvæmlega sömu sporum og þú. Verð nauðsynlega að endurnýja North Face gönguskóna mína sem hafa þjónað mér vel síðustu 13 ár. Þeir eru gamlir, stífir og slitnir, munstrið á sólanum við það að hverfa og nú síðast komið gat á aðra tánna.

Ég nota gönguskó aðalega í ...
by Dr.Gæsavængur
27 Oct 2014 15:59
Forum: Vargur
Topic: Ref fækkar!
Replies: 7
Views: 10097

Re: Ref fækkar!

Undarlegt að refnum fækki meira í friðlandi þar sem veiði hefur ekki áhrif á stofnstærð. Ætli hann sé búinn að éta sjálfan sig út á gaddinn blessaður.. Það er þá kanski bara ágætt, náttúran sér um sína.. Ég vona að þetta sé raunin og honum fari nú fækkandi. Alls staðar hafði hann farið um á undan ...
by Dr.Gæsavængur
16 Oct 2014 14:20
Forum: Fuglar
Topic: Rjúpnaskot
Replies: 9
Views: 11989

Re: Rjúpnaskot

Takk fyrir svörin drengir.

Skemmtilegt að heyra þessar pælingar og hvað menn eru að nota. Ég hef einmitt ekki verið að velta þessu mikið fyrir áður, bara keypt það sem hefur verið til á viðkomandi stað. En síðustu ár hef ég alltaf sett Rio skotin í beltið og byrjað á þeim. Ætli maður haldi því ekki ...
by Dr.Gæsavængur
15 Oct 2014 16:58
Forum: Fuglar
Topic: Rjúpnaskot
Replies: 9
Views: 11989

Rjúpnaskot

Jæja.. bara rétt rúm vika í fyrsta rjúpnadag.

Var að fara yfir skotbyrgðirnar og þarf nauðsynlega að "fyllann".

Ég er þvi farinn að huga að því hvaða skot maður ætti að taka. Ég er ekki að skjóta það mikið af fugli árlega að ég leggi verðið mjög mikið fyrir mig. Hvort pakkinn er á 1500 eða 2500 ...
by Dr.Gæsavængur
01 Oct 2014 11:13
Forum: Fuglar
Topic: Gæsaveiðiland
Replies: 6
Views: 9305

Re: Gæsaveiðiland

Sæll.

Veit nánast ekkert um þessa staði og ég tek það fram að ég hef aldrei prufað þá. En þetta gæti verið í áttina að því sem þú ert að leita að. Hef heyrt ágætis hluti um þjónustuna í Gunnarsholti.

http://lax-a.is/index.php/iceland/gunnarsholt

http://www.villtbrad.is/veidileyfi/

http://www ...
by Dr.Gæsavængur
31 Jul 2014 14:36
Forum: Allt um veiði
Topic: 6,5mm veiðikúlur?
Replies: 38
Views: 12769

Re: 6,5mm veiðikúlur?

Sæll Tóti.

Ég notaði Lapua 100gr. Scenar í fyrra með góðum árangri. Dýrið (Kú) tók ekki nema tvö þrjú skref áður en hún féll. Hreint lungnaskot af um 70metrum og engar kjötskemmdir. Kúlan fór inn um síðu á milli rifja og skildi eftir sig fremur smekklegt útgat hinumegin örlítið aftar sem tók í ...
by Dr.Gæsavængur
31 Jul 2014 14:22
Forum: Endurhleðsla
Topic: Veiðikúla/hleðsla í 6,5x47
Replies: 9
Views: 4391

Re: Veiðikúla/hleðsla í 6,5x47

Takk fyrir það Árni.

Ég sá þennan þráð um daginn en einhverra hlutavegna fann ég hann ekki aftur. Er búinn að finna hann núna og einsog þú segir er margt gagnlegt í honum þó ég sé aðalega að leitast eftir reynslu af kúlum í 6,5x47 hylkjum. Ég væri einmitt helst til í að prufa Nosler 120gr. BT ...
by Dr.Gæsavængur
30 Jul 2014 13:46
Forum: Endurhleðsla
Topic: Veiðikúla/hleðsla í 6,5x47
Replies: 9
Views: 4391

Veiðikúla/hleðsla í 6,5x47

Góðan daginn Veiðimenn.

Er með vangaveltur um heppilega veiðikúlu og hleðslu fyrir komandi hreindýraveiði. Ég er með tarf á svæði 7 og legg af stað austur þann 15. ágúst og mun taka mér góða vikuferð ásamt fleirum.

Riffillinn minn er af gerðini Rössler Titan6 í kaliberinu 6,5x47 Lapua.

Ég væri ...
by Dr.Gæsavængur
18 Sep 2013 23:33
Forum: Vargur
Topic: Refur í borgarlandinu.
Replies: 6
Views: 2767

Re: Refur í borgarlandinu.

Sælir ágætu herramenn. Ég las þessa grein í fréttablaðinu yfir morgunkaffinu nú á dögunum og ég gat ekki séð neitt athugavert við hana. Þetta er ekki alveg rétt hjá þér Einar...

Áhugaverð nálgun, ref fjölgar ekki un bygð færist nær honum! :mrgreen:

Það stendur aftur á móti skýrt í greinini ...
by Dr.Gæsavængur
21 Apr 2013 23:08
Forum: Óska eftir
Topic: Sjónaukafestingar óskast
Replies: 1
Views: 1216

Re: Sjónaukafestingar óskast

Sæll.

Ég á til þessar hérna ef þær henta þér... http://spjall.skyttur.is/til-solu/308-h ... t1128.html
by Dr.Gæsavængur
10 Apr 2013 17:24
Forum: Hreindýr
Topic: Endurúthlutun hreindýraleyfa
Replies: 10
Views: 4252

Re: Endurúthlutun hreindýraleyfa

Ég er allavega sáttur! Var númer 33 á biðlista á svæði 7 og hef núna fengið endurúthlutað kusu :)
Takk fyrir mig !
by Dr.Gæsavængur
23 Mar 2013 00:46
Forum: Byssur til sölu
Topic: -Seld- Maverick pumpa
Replies: 1
Views: 1208

Re: T.S. Maverick pumpa 25þúskr.

Lækkað verð á þessari. Fæst á 25þúsund kr. og með fylgir góð taska og lás :)